Fálkinn - 19.03.1938, Síða 8
8
F Á L K I N N
HEIMSSTYRJÖLD ER YFIRVOFANDI
hina óbætanlegu menningarfjársjóði
í Shanghai Museum, og síðar í skól-
um og smærri stofnunum, sem höfðu
sætl sömu meðferð, var jeg að brjóta
heilann um hvernig á því stæði, að
sumum húsum var þyrmt, en það
vildi aldrei til að kínverskur skóli
stóð óbrunninn eftir, þar sem Jnp-
anar höfðu farið um.
Neill Malcolm hershöfðingi hefir
- sem formaður „Universities China
Commission“ — safnað saman óvje-
fenganlegum heimildum sem sýna,
að til 15. nóv. 1937 hafa þrír há-
skólar verið gereyddir í borgunum
Shanghai, Nanking, Paotinfu og
Nanchang, 14 eyðilagðir og 53 fram-
haldsskólar og 25 alþýðuskólar ver-
ið jafnaðir við jörðu. Eignatjónið
al' þessari eyðileggingu nemur um
40 miljón krónum. Og 50.000 nem-
endur hafa orðið að hætta námi i
bráð.
Japanir hafa lagt svo mikið land
undir sig síðan 15 nóv. að nú eru
þessar tölur senniléga tvöfaldaðar.
Ástæðan er sú, að Japanir vilja
ganga milli bols og höfuðs á öllum
„andróðri gegn Japan“ og þeir telja
með rjettu hina upprennandi menta-
manna-stjett verstu fjandmenn sína.
Þessvegna er þeim umhugað um, að
uppræta allar menningarstofnanir í
Kína, sem voru hröðum skrefum að
breyta hugsunarhætti þjóðarinnar í
þá átt, að hún skyldi verja sjálfstæði
sitt og verða heimsveldi.
Sem vopn i þjóðernisbaráttunm
er þetta jafn forsvaranlegt og að
skjóta á vopnlausa menn til þess að
knýja þjóðina til uppgjafar. En Kín-
verjar tigna lærdóminn og þá tekur
Engir Kínverjar voru um borð i
„Jean Laborde“ en fjöldinn allur af
Japönum. Þeirra hluta vegna gátum
við eins vel verið í Japan. Þessa þrjá
daga sem við vorum á leiðinni var
hlerað eftir samtölum hvítra manna.
Japanskir menn sátu allstaðar
nærri hvitum mönnuni. Háværir
Frakkar lægðu róminn, en allir
hvítir menn um borð, frá amerik-
anska flugvjelasálanum til frönsku
liðsforingjanna töluðu aðeins um
eitt: „hina 'komandi styrjöld milli
hvítra og gulra inanna".
Kemur sú styrjöld?
Þegar við vorum komnir inn fyr-
ir hafnargarðana í Kobe tók jeg
eftir mörgum kafbátum á sveimi.
Jeg fann að jeg gerði rangt er jeg
einblíndi á þá.
„Ægileg tilhugsun“, hugsaði jeg
þegar jeg fór að reyna að koma tölu
á l>á.
Alt í einu kenmr japanskur liðs-
foringi i einkennisbúningi að mjer.
Jeg hætti að telja kafbátana en fór
að telja á fingrum mjer í staðinn.
Eftir HUBERT R. KNICKERBOCKER.
Japanski flotinn ræður nú þeg-
ar yfir hafinu fyrir öllum ströndum
úr því að komið er austur fyrir
Singapore. Þegar við förum frá
Shanghai um borð á franska skipinu
„Jean Laborde“, sem átti að fara tii
Kobe, mættum við ekki minna en
150 japönskum herskipum og flutn-
ingaskipum, sem lágu i 30 enskra
inílna löngum boga frá herskipinu
„Idzumo“ er lá í Shanghai og að
stóru flugvjelamóðurskipi sem lá fyr-
ir mynni Yangtsefljótsins.
Þegar jeg sá „Idzumo“ i síðasta
sinn gat jeg ekki varist að hugsa til
hinnar skrítnu gestrisni Kioshi
Hasegawa aðmiráls, þegar liann tók
á móti okkur um borð í skipinu. I
viðræðunni lýsti hann með fjálgleik
góðu hugárþeli sinu til okkar allra,
en á meðan voru flugvjelar, sem
höfðu verið að ausa sprengjum yfir
Shanghai, að lenda við skipið.
Öll þessi stríðsvjel var undir yfir-
ráðum Hasgawa. Þetta er bara þriðji
flotinn. Hann hefir bækistöð sína í
Japan, 500 enskar mílur undan Flota-
stöð Englendinga er í Singapore -—
3000 mílur undan. Honkong verður
ekki talin með því að hún hefir enga
hernaðarþýðingu. Englendingar vita
nð þeir geta ekki varið jiessa borg
ef á hana yrði ráðist.
Floti Japana er ástæðan til, að
Bretar hafa ekki aukið her sinn í
Shanghai. Þegar Kínverjar tryltust
þar árið 1927 höfðu Bretar einir um
25.000 manna her í alþjóðahverfinu.
í dag hafa þeir 2.500 hermenn, vegna
vegna þess að þeir sáu fram á það
þegar i byrjun stríðsins, að þeir
gætu ekki varið borgina gegn Jap-
önum.
Kínverja vantar herflota og þess-
vegna geta þeir aldrei unnið úr-
slitasigur yfir Jappnum, hvernig sem
atvikin snerist á landi. Þeir geta ekki
ráðist inn í Japan flotalausir og lagt
landið undir sig. Við skiljum þess i
styrjöld þegar við minnumst þess að
þegar skærurnar urðu milli Kína og
Jcpana árið 1894 átti Kina sterkari
og stærri flota en Japan; en keisara-
drotningin gamla hirti alla pening-
ana, sein áttu að ganga í vopn og
skotfæri og eyddi þeim í sumarhöH-
ina sína.
í dag er það flotinn, sem veldur
þvi, að allir útlendingar telja Jap-
ana einskonar lögreglu austurlanda.
Frönsku liðsforingjarnir vöruðu okk-
ur við að taka myndir af japönskum
liérskipum. Um borð í „Jean La-
borde“ lijengu stórir uppdrættir af
Japan, með stórum geirum, sem
skrifað var á: „Hersvæði Ljós-
myndun bönnuð Bannað að nota
sjónauka!“
Þegar við sigldum niður Whang-
])oo-ána notaði jeg eigi að síður kik-
irinn til þess að horfa á hinar öm-
urlegu rústir af þeim hlutum Shang-
hai, sem áður höfðu verið í blóma
— iiú voru þarna ljótar raðir af
eyðilögðum verksmiðjum, vöruhús-
um, heimilum og skólum. Skólarnir
báru þess sjerstaklega vitni, hvað
Japanar ætla sjer að gera i Shanghai.
Til vinstri sá jeg reykháfana og
svarta veggi byggingarinnar, sem
áður var þýsk-kínverski háskólinn í
Shangliai. Af einhverjum ástæðum
sýndu Japanar okkur sjerstaklega
þessa byggingu rjett eftir að hún
var brunnin og eins sýndu þeir okk-
ur miðbik borgarinnar þegar brunn-
ið var þar. Þegar jeg stóð innan um
sárara að sjá skólana eyðilagða en þó
að vopnlausir menn sjeu myrtir.
Kínverskur lærdómsmaður, sem er
frægur fyrir heims'pekilegar ritgerð-
ir sínar, lýsti þessu þannig í viðtali
við mig: „Japanar vilja auðsjáanlega
uppræta skólana okkar, því að þeir
vilja gera úr oklcur kúlíþjóð. Það
liefðu jafnvel mongólar aldrei gert“.
Þetta gefur meðfram skýringu á
því hversvegna Kinverjar hata Jap-
ana svo óstjórnlega sem raun tjer
vitni, liatur sem okkur vesturlanda-
búum kemur einkennilega fyrir sjón-
ir þvi að við erum vanir að hugsa
okkur Kínverja og Japana sem ná-
skyldar þjóðir. Útlendingar í Kína,
sem stundum eru ekki betur að sjer
en svo, að þeir eiga bágt með að
þekkja Kínverja frá Japönum, vérða
steini lostnir er þeir heyra háment-
aða Kínverja segja: „Japanar eru
ekki mannlegar verur. Þeir eru alveg
óskyldir okkur. Þeir eru apar úr
malaja-frumskógunum“.
„Þeir hafa aldrci gert annað en
eyðileggja. Stríðið er guð þeirra.
Þeir hafa enga menningu. Alt sem
þeir eiga af siðfágun hafa þeir feng-
ið að láni hjá okkur og vjelarnar
hafa þeir sótt til vesturlanda“.
Þessu svara Japanar þannig: „þið
Kínverjar eruð úrþvætti og ættlerar
kynflokks, sem einu sinni var merki-
legur. Já, við játum að ])ið voruð
miklir einn sinni. Þið talið um, að
við ætlum að gera ykkur að þræl-
um, en þið eruð þegar orðnir þræl-
ar ykkar eigin herstjóra, undirkon-
unga ykkar, skítsins á ykkur og let-
innar í ykkur. Við skulum kenna
ykkur að verða að mönnum aftur,
undir japanskri forustu. Án okkar
væruð þið orðnir nýlenda hvítra
manna. Við skulum reka hvíta menn
úr Asíu í sameiningu og ráða yfir
allri Asíu, og við skulum kenna
ykkur að þvo ykkur".
KÍNVERSKIIt PLÓTTAMENN.
I styrjöldinni hafa miljónir Kín-
verja mist hús og lieimili og aleigu
sína í liíbót. Myndin sýnir gamlan
heimilislausan Kínverja ásamt dótl-
urdóttur sinni.
SKÓLAHÚSIÐ SPARAÐ.
í Eastend í London er skóli sem
starfar allan ársins hring og jafnan
undir berum himn'i, liverju sem
viðrar. Þegar kalt er -i veðri sveipa
nemendurnir sjölum um sig.
Kinverskiv hermenn.
STRÍÐIÐ ER GOÐ JAPANA
<