Fálkinn - 23.04.1938, Side 2
2
F Á L K I N N
GAMLA I5Í0
Swing time.
Bráðskemtileg og glæsileg gam-
anmynd, rneð söngvum eftir
Jerome Kern,
í aðalhlutverkunum dansparið
heimsfræga
FRED ASTAIRE og
(íINGER ROGERS.
Sýnd bráðlega!
í Gamla Bíó verður bráðlega sýnd
eldfjörug gamanmynd, sem kölluð er
„Swing Time“, og það er óhætt að
segja, að þar er bæði „híf og sving“,
því aðalhlutverkin leikur hið fræga
danstvístirni Fred Astaire og Ginger
Rogers.
Efnið er auðvitað ekki veigamikið,
en það rúmar mikið af spaugi og
glettni, söngum og dansi. Lucky heit-
ir leiðtogi efnilegs dansflokks, sem
dansar sig fram í gegnum Bandaríkin
og einmitt þegar hann kemur í ætt-
horg sína, fær hann þá óskemtilegu
og heimskulegu hugmynd. — að því
cr fjelagar hans telja — oð gifta sig
Margrjeti æskuvinkonu sinni. Félög-
um hans tekst þó að koma í veg fyr-
ir þetta, Lucky kemur of seint til
brúðkaupsins og bæði Margrjet og
tengdapabbi taka á móti honum með
lieldur óhlíðum kveðjum. Lucky, sem
er hinn slyngasti fjárhættuspilari.
leggur fram 250 dollara, sem hann
segist hafa unnið rjett á meðan þau
voru að bíða eftir honum, en tengda-
pabbi, sem heldur, að hann hafi
unnið sjer þessa peninga inn með
heiðarlegu móti, blíðkast nú og lof-
ar að gifta honum Margrjeti, ef hann
geti komið aftur frá New York með
25000 dollara upp á vasann. í New
Vork lifir hann nú livert æfintýrið
eftir annað, fyrst og fremst æfin-
týrið með dansmærinni Penny, sem
hann verður óstjórnlega ástfanginn
af. Þau ráðast til að dansa í hinni
glæsilegu stofnun, sem nefnist „Silf-
urskórinn“ og gera þar svo mikla
iukku, að Lucky sér, að hann muni
fljótt vinna sjer inn 25000 dollara
með þessu móti. Margrjet bjargar
honum þó sjálf úr klípunni með þvi
að lcoma og segja honum, að hún
elski annan mann. Getur hann nú
dansað inn í hjónasængina með
Penny, án þess að þurfa að rjúfa
heit sitt.
Kvikmyndaleikkonan Gertrude
Nielsen í Hollywood hefir tekið upp
það nýmæli að hafa loftdælu á
handtöskunni sinni. Þegar heitt er í
veðri lætur hún „dæluna ganga“
fyrir rafmagnsbatteríi, sem liún hei-
ir i töskunni.
Þuríður Runólfsdóttir, Njarðar-
(jötu 7, verður 70 ára 27. þ. m.
Guðmundur Sófus Ólason, Linn-
etsstíg 12, Hafnarfirði, verður
'i0 ára 23. þ. m.
Frú Sæunn Sæmundsdóttir,
Nönnug. 8, varð 50 ára 20. þ. m.
Belgiski prófessorinn Piccard, sem
frægur varð fyrir það að fara fyrst
ur manna upp i háloftin, er nú hætt-
ur við að leita lengra í þá áttina en
ætlar nú gagnstæða leið. Hann ætlar
að gera tilraun til þess að kafa
dýpra í sjó en nokkur maður hefir
gert á undan honum. Þýski Amer-
Daníel Kristinsson, skrifstofu-
maður hjá Eimskipafjelagi ls-
lands, varð 50 ára 22. þ. m.
Þorbjörp Jónsson, fyrverandi
útvegsbóndi, Egilsgötu 28, verð-
ur 50 ára 2A. þ. m.
Um Sonju Henie.
Kvik,myndafjelagið, sem Sonja
Henie er hjá, ætlar' að kosta flug
hennar að sumri yfir Atlantshaf og
aftur vestur yfir það. Flugmaðurinn
Dick Merrill, sem fyrstur manna flaug
tvívegis um Atlantshaf, á að fljúga með
hana. Ætlun fjelagsins með þessu er
auðvitað að vekja sem mesta eftirtekt
á Sonju, áður en farið verður að sýna
nýju myndina með Sonju, sem verið
er að búa til nú í vetur. Sonja var í
iniðjum febrúar í Miami á Flórida,
og hjelt þar skautasýningar þær, er
Kaliforniu-búar ekki vildu unna Flór-
ida-búum, að væru haklnar þar, og
reyndu að aftra Sonja Henie hefir
nú um tveggja miljóna króna tekjur
á ári.
-----x----
Náttúrufræðingur einn hefir sjeð
Ijón hlaupa yfir þriggja metra liáa
girðingu með kálf í kjaftinum, bi-
flugu slökkva á kerti með því að
baða vængjunum á ljósið og nöðru-
fálka drepa tveggja metra háa kobra-
nöðru i einu höggi með klónni.
íkumaðurinn Beebe er sá, sem til
þessa hefir komist dýpst niður i
sjóinn og fór hann í 933 metra dýpi
í kafarakúlu sinni og tók þar merki
legar myndir af dýralifinu. Piccard
segist hafa smíðað kúlu, sem þoli
þrýsting vatnsins þó hún fari ofan
i 9000 metra dýpi.
——--------- NÝJA Iíló.----------
Þú liflr aðeins
einu sinni.
Spennandi og áhrifamikil lög-
reglumynd. — Aðalhlutverkin
leika
SYLVIA SIDNEY og
HENRY FONDA.
Nýja Bíó sýnir á næstunni áhrifa-
mikla lögreglumynd, sem heitir
„Þú lifir aðeins einu sinni“, og er
lýsing á viðskiftum lögreglunnar og
manns, sem í rauninni er óspiltur
og vill bjarga sjer með heiðarlegu
móti, en atvikin reka til glæpa-
verka með miskunarleysi og skiln-
ingsleysi mannanna. Að þessu leyti
er myndin alvarlegt umhugsunar-
efni. Fangi, sem hefir losnað úr
haldi, finnur það fljótt, er hann
kemur út á meðal „heiðarlegs" fólks,
að hann er hvergi velkominn, hann
nýtur ekki trausts, og hann á örðugt
m'eS að fá vinnu. Og kuldi mann-
,'inna rekur hann aftur og aftur út
á glapstigu. Kona hans er eina
manneskjan, sem elskar hann og
treystir honum og fylgir honum i
gegnum hættur og þrengingar, —
jafnvel út í dauðann, og er tryggð
hennar og staðfesta fegursti þáttur
þessarar myndar. Efnið er annars
það i stuttu máli, að Eddie Taylor
(Henry Fonda), sem setið hefir i
fangelsi fyrir að vera meðlimur i
bankaræningjaflokki, er náðáður og
ætlar sjer nú að byrja nýtt og
heiðarlegt líf. Hann giftir sig unn-
ustu sinni, sem hefir beðið' hans,
en þegar í brúðkaupsferðinni verður
hann fyrir því að vera visað út af
hótelinu. Verjandi lians útvegar hon-
um starf sem vöruflutningabílstjóra,
og hann kaupir liús með afborgun-
um, en liann missir starfann, þegar
forstjórinn kemst að því að hann
liefir setið i fangelsi. Litlu síðar
fellur grunur á hann um það að
hafa tekið þátt í bankaráni með
fyrri fjelögum sínum og hann er
aftur settur i fangelsi og dæmdur
saklaus til dauða. Á siðustu stundu
fyrir aftökuna er hann náðaður, með
því að komist liafði upp um lúna
rjettu ránsmenn. En æstur á taugum
og örvinglaður af fangelsisvistinni,
verður lionuin það á að skjóta fang-
elsisprestinn til bana. Með þessu
verki hefir hann brotið allar brýr
að baki sjer. Hann flýr með konu
sína og lögreglan er á hælum þeirra,
uns saga þeirra endar, er þau falla
fyrir kúlum lögreglunnar rjett i því
er þau eru að komast burt yfir
landamærin.
Allt með islenskum skrpom'
Gleöílegs sumars
óskar l/ikublafiið Fálkinn lesendum sinum.