Fálkinn - 23.04.1938, Síða 3
F Á L K 1 N N
3
t
Skraddaratiankar.
Nágrannaþjóðunum er orðið það
áhyggjuefni hvernig sjeð verði fyr-
ir börnunum í stórborgunum. Þó
ísland eigi enga stórborg, þá er
Reykjavík samt eins stör og stærsta
borg Norðurlanda i hlutfalli við
stærð þjóðarinnar og það er fyrir
löngu orðin aðkallandi þörf á, að
gera sjerstakar ráðstafanir til að
varðveita heilbrigði barnanna, sem
alast upp á möl og malbiki höfuð-
staðarins.
Áður var það alsiða í Reykjavík
að koma börnum í sumardvöl til
kunningja i sveit og var Reykjavík
þá grasigróinn bær hjá þvi sem nú
er. En það eru ýms vandkvæði á
sumardvöl barna á sveitaheimilum,
ekki nærri öll heimili, sem geta far-
ið með þau eins og vera ber. Og
það er vandfarið með börnin og
margir eiga enga kunningja í sveit-
inni.
Hinsvegar fer barnaskólum og þar
á meðal heimavistarskólum í sveit-
unum óðum fjölgandi. Er ekki hægt
að taka þessa skóla á leigu yfir
suiparið handa Reykjavíkurbörnum.
Fá duglega og gætna kenslukonu ti)
að stjórna sumarvist í skólunum i
sveitum, þar sem hægt er að fá ó-
dýrt það, sem börnunum er fyrir
mestu: nóg af mjólk. Ef allir not-
hæfir skólar sveitanna væru fengn-
ir til þess, þá fyrst mundi muna um
það.
Þvi að markmiðið verður að vera
það, að hvert einasta Reykjavíkur-
barn komist í sveit sem flest sumur
fram að fermingaraldri og dvelji þar
eigi skemur en sem nemur átta vik-
um. Þetta er hægt að gera. Það er
hægt að fá ódýrara og hollara viður-
væri handa börnunum og á þenman
hátt kynnast þau náttúrunni og njóta
útivistarinnar. Um þá hlið málsins þarf
ekki að fjölyrða. Sannanirnar liggja
þar fyrir frá þeim sumarheimilum.
sem þegar eru starfrækt.
Það eru auðvitað margir foreldrar,
sem ekki geta sjeð af neinu til þess
at koma börnum sínum í sveit. Eu
ef vistin er ódýr þá má vel takast að
koma þessmn börnum í sólskinið
lika, bæði með lijálp bæjarfélagsins
og góðviljaðra manna. Reykvíkingar
halda uppi vetrarhjálp með góðum
árangri, en þörfin er engan veginn
minni á „sumarhjálp“. Ef henni er
ekki sint getur ekki farið hjá því,
að þörfin á vetrarhjálpinni verði
meiri. Börnin, sem ekki fá að sjá
sumarið öðruvísi en gegnum hráka-
ryk höfuðstaðarins verða illa undir-
búin að standast veturna hjálparlaust
þegar þau vaxa og eiga að sjá fyrir
sjer sjálf.
SKÁTAFÉLAGIÐ VÆRINGJAR 25 ÁRA
Vœringjav
1913.
ins, eða 1913, var stofnað fyrsta'
skátafjelagið á íslandi, „Skáta-
fjelagið Væringjar“.
Þ. 23. apríl 1913 stofnaði
sjera Friðrik Friðriksson
drengjasveit innan K. F. U. M.
Sveit þessi var skipuð urn eða
yfir 20 drengjum, sem kíædd-
ust búningum líkum þeiin, sem
Gunnar á Hlíðarenda, Egill
Skallagrimsson og samtíðar-
menn þeirra notuðu. Um liaust-
ið þetta sama ár sigldi sjera
Friðrik vestur um liaf, og fól
þá Axel V. Tulinius, að taka að
sjer stjórn sveitarinnar-
Skönnnu síðar var sveitinni,
fyrir forgöngu A. V. Tulinius,
breytt í skátafjelag, og varð
hann, að sjálfsögðu formaður
þess.
Fór nú fjelagið að starfa af
kappi að hinum ýmsu skáta-
störfum, prófum og þvilíku.
Miðaði fjelaginu nú vel áfram,
var unnið að kenslu á veturna
en ýmiskonar íþróttum á sumr-
in. Arið 1915 var fáni Væringja
vigður, og er það hinn fyrsti
íslenski fáni, sem vígður hefir
verið. Fáni þessi er nú á þjóð-
iiiinjasafnnu. Sem fyr er sagl,
iðkuðu Væringjar íþróttir mjög
mikið fvrstu árin, og unnu mörg
verðlaun i íþróttakeppnum.
Arið 1920 byggðu Væringjar
sjer skála í Lækjarbotnum. Var
það að mestu levti fyrir at-
beina A. V. Tulinius að hann
komst upp. Árið 1921 kom svo
aflurkippur í fjelagið og lá það
að mestu leyti niðri til ársins
1923, er það var endurreist af
nokkrum ungum og áhugasöm-
um Væringjum undir forustu
A. V. Tulinius. Þegar A. V. T.
tók svo við skátahöfðingjastarfi
sínu fyrir Bandalag Islenskra
Skáta, sem stofnað var 1925,
tók Ársæll heitinn Gunnarsson
Frh. á bls. 14.
Margar og misjafnar eru þær
æskulýðshreyfingar, sem starf-
andi eru víðsvegar um lieiminn,
og misjafnlega hefir útbreiðsla
þeirra gengið í hinum ýmsu
Iöndum. En líklega er engin sú
hreyfing' til, sem hefir fljótar
náð fótfestu í öllum álfum jarð-
arinnar, en skátahreyfingin. Ar-
ið 1907 stofnaði Sir Robert
Baden-Powell liið fyrsta skáta-
fjelag í lieimi og strax á næstu
árum liafði fjelagsskapur þessi
náð fótfestu í ýmsum löndum
álfunnar og víðar. Aðeins 6 ár-
um eftir stofnun fyrsta fjelags-
Stofnandi Vœringja, tiérn Friðrik Friðriksson,
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
fíilstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkn/pmdastj.: Svavar Hjaltested.
.1 ðalskrifstofa:
Bankastræli 3, Reykjavík. Simi 22W.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—(i.
Skrifstofa i Oslo:
A n I o n S c h ö t h s g a d e 1-1.
Blaðið kemur út hvern 'laugardag.
Áskriftarverð er kr. 1.50 á niánuði:
kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Uiglýsingaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent.