Fálkinn - 14.05.1938, Page 2
2
F Á L K I N N
----- GAMLA BlÓ ----------
Aumingla
miljónaeigendnrnir.
Bró'ðskemtileg sænsk gaman-
mvnd gerS eftir skemtisögu
ERIK KÁSTNERS
ASalhlutverkiS leikur:
ADOLF JAHR
Sýnd um helgina!
Gamla Bíó sýnir nú um helgina
sprenghlægilega gamanmynd, sem
ber hiS einkennilega nafn „Aum-
ingja miljónaeigendurnir". MaSur
skyldi halda, aS ekki þyrfti aS
aumka slíka menn, en auSur og
ánægja eru þó sitt hvaS og eiga ekki
ætíS samleiS. Svo reyndist honum
miljónamæringnum, er mynd þessi
skýrir frá, aS þaS væri ekki síSur
hægt aS njóta lífsins og frjálsrar
glaSværSar jjess sem einfaldur og
óbrotinn pakkliúsmaSur, þann tíma
sem hann tók á sig hans nafn og
gervi til þess aS kynnast alþýSu
manna og hversdagsfólki nánara en
hann myndi ella hafa átt kost á.
Þar fær nú liinn strangi og harS-
skeytti fjármálamaSur og verksmiSju
eigandi, sem ótal verkamenn litu
upp til meS óttablandinni lotningu,
gott tækifæri til þess aS skygn-
ast ofurlítiS í kringum sig, njóta
samvista ýmissa manna, sem hann
hefSi aldrei átt kost á aS kynnast
öSruvísi en dulbúinn. Þar á meSal
kynnist hann hinum unga og efni-
lega, en atvinnulausa verkfræSingi,
sem leikinn er af Adolf Jahr og er
aSalpersóna ieiksins. Hinn ungi verlt
fræSingur hafSi unniS fyrstu verS-
laun í auglýsingasamkeppni, en
verSlaunin voru hálfs mánaSar dvöl
í skrautlegu fjallahóteli og fríar ferS
ir fram og til baka. Þó aS verkfræS-
ingurinn hefSi átt rólega daga aS
undanförnu, ákvaS liann samt aS
nota sjer hóteldvölina. Fyrir mis-
skilning hótelfólksins er tekiS á móti
honum meS kostum og kynjum,
vegna þess' aS þaS heldur, aS hann
sje miljónamæringurinn, sem liótel-
fólkiS fjekk aS vita í laumi, aS von
væri á þangaS. Hinn rjetti miljóna-
mæringur fær hinsvegar ofboS
liversdagslegar móttökur. Kynning
þessara manna verSur ágæt þarna
í hóteiinu. Og ekki versnar þaS þeg-
ar kona miljónamæringsins og dótt-
ir koma þangaS. Dótturinni og verk-
fræSingnum líst vel hvort á annaS
og hann fær tækifæri til þess aS
bjarga henni úr lifsháska. Skyndi-
lega hverfur þetta fólk af hótelinu
og litiu síSar fer verkfræSingurinn
einnig heim til sín til Stokkhólms.
En litlu síSar fær hann óvænt heim-
boS — til verksmiSjueigandans auS-
uga, og þaS gefur aS skilja, aS hann
fær hina hestu atvinnu og dótturina
meS. Leikur Adolfs Jahr í þessu hlut
verki er einkar skemtilegur, ekki
síSur en leikur hans í myndinni
hjer í vetur, sem átti miklum vin-
sældum aS fagna.
Fallegt hörund
fæst því aðeins, að þjer gætið
þess á hverju kvöldi, að hreinsa
burt púður og óhreinindi eftir
daginn.
PIROLA-hreinsunarkrem hjálp-
ar yður. Nuddið því vel inn í
hörundið, þurkið það síðan af og
um leið þurkið þjer burtu óhrein-
indin og púðrið.
í hreinsunarcreminu eru einnig
næringarefni, sem eru hörundinu
nauðsynleg.
Fáið yður í dag eina krús.
Munið PIROLA
fyrst og siðast.
BISKUPINN AF LONDON
sjest hjer á myndinni aS tala viS
tvo verkamenn, sem eru á heimleiS
frá vinnu sinni. Biskupinn er nýlega
orSinn 80 ára.
----------- NÝJA BÍÓ ---------------------
ELLEFTA STUNDIN
Tilkomumikil og snildarvel
samin amerísk kvikmynd
frá FOX fjelagnu. Aðal-
hlutverkin leika:
SIMONE SIMON og
JAMES STEWART.
Hjer er líst á undurfagr-
an hátt lífi tveggja af allra
lægst settu olnboga-
börnum þjóðfjelagsins, trú
þeirra á lífið og æðri mátt,
óbilgjörnum viljakrafti og
starfsþreki þrátt fyrir alt
andstreymi og volæði er
þau áttu við að búa. Þau
hopuðu aldrei, gengu ótrauð fram með glæstar vonir og sigruðu.
Utfærslan á þessu efni og leikur aðalpersónanna er einsdæmi
og er óhætt að fullyrða að með þessari mynd hafi kvik-
myndalistin komist næst hámarkihu Sýnd bráðlega.
Símofm i
5IH0N
]am&s
stewabt
Frú Sigríður Björnsdóttir og Ásbjörn Ólafsson, Þingholtsstræti
22, eiga gullbrúðkaup 17. þ. m. (Myndin teldn er gullbrúð-
kaupshjónin áttu 70 og 75 ára afmæli).
Elsa Sigfúss,
altsöngkonan, sem getið hefir sjer
góðan orðstír hjer á landi og er-
lendis, dvelur nú um tíma hjer i
bænum. S. 1. þriðjudag hjelt hún
fyrstu hljómleika sína fyrir fullu
húsi i Gamla Bíó og við hinar bestu
viðtökur áheyrenda. Á söngskránni
voru þá bæði „klassisk“ og „ný-
tisku“ lög sem hún söng öll með
mikilli snild.
En á hljómleikunum í Gamla Bíó
í gærkveldi söng hún eingöngu „ný-
tisku lög“, en slíkir ldjómleikar eru
fullkomið nýnæmi hjer. Var hrifn-
ing áheyrenda mikil, enda átti söng-
konan það fyllilega skilið. Rödd
hennar er J)ýð og blæfögur og ber
vott um mikla kunnáttu og næman
slcilning á efni. Framburður hennar
er skýr og fágaður.
Carl Billich, hinn vinsæli austur-
ríski píanóleikari Ijek í hljeinu safn
nokkurra nýtísku laga og þótti með
ágætum.
Elsa fer til Noregs og Svíþjóðar
og þaðan til Englands til að lialda
hjómleika.