Fálkinn - 13.08.1938, Blaðsíða 10
10
F Á L K I N N
Handprjónaður kjóll með ísaumaðri treyju.
Efni:
1200 gr. hvítgult garn, og dökk-
blátt eða ryðrautt garn til aS saunia
í meS. Prjónar, sem samsvara garn-
inu; 9 leSurhnappar og leSurbelti i
sama lit og ísaumið.
Athugið hvort sniðin eru mátulega
stór. SníSið svo snið úr grófum
pappír í rjettri stærð.
Prjónið:
Það sem venjulega er kölluð
ranga í prjóni er hjer látið snúa út.
PRJÓNAABFERÐ:
Vinstri boðangur:
Mynd I. Lykkjufjöldann, sem fitja
á upp er best að finna með þvi að
hekla röð af loftlykkjum jafnlanga
neðsta kanti sniðsins og jafnmarg-
ar lykkjur eru svo fitjaðar upp.
Þeim megin sem hnapparnir eru
er prjónað beint upp. Hinumegin er
tekið úr þangað til komið er að
mittinu og þaðan aftur aukið út
þangað til jafnmargar lykkjur eru
á prjónunum og byrjað var með.
Til þess að handvegurinn mynd-
ist eru feldar af 7—8 lykkjur og á
næstu 8 prjónum er feld af 1 1.
annan hvern prjón.
Hálsmálið myndast við það, að
5 1. eru feldar af, því næst prjónar
maður eftir sniðinu, svo að ávalinn
komi. Öxlin er feld af í þrennu lagi.
Hægri boðangur:
(Mynd II.) er prjónaður eins,
nema lijer eru linappagötin búin til,
og það er gert með því að fella af
4—5 1., sem eru aftur slegnar upp
á næsta prjón.
Bakið:
(Mynd III.) er prjónað svo að það
samsvari boðöngunum. Þegar búið
er að prjóna axlirnar eru lykkjurnar
feldar af í einu lagi.
Ermarnar:
(Mynd IV.) Prjónið 4 cm. brugð-
inn kant (2 1. r.; 2 1. sn.), aukið
jafnt út þangað til komið er að úr-
tökunni. Fellið þá af 7 1. í hvorri
hlið og fellið svo af smátt og smátt,
þangað til 24 1. eru eftir og eru þær
feldar af í einu lagi.
Pilsið:
Mynd V. Framstykki: Lykkju-
fjöldann finnur maður eins og áður
er sagt. Prjónið eftir sniðinu þangað
til þetta er orðið 67 cm. Þá er því
skift niður á 3 prjóna og hvert
stykki prjónað áfram og tekið úr eft-
ir sniðinu. Það er ekki nauðsynlegt
að skifta þessu niður á 3 prjóna,
en aðeins prjóna áfram þangað til
pilsið er orðið mátulega langt, en
þá verður að sauma úr pilsinu að
ofan á eftir, en það fer þá ekki eins
vel.
Afturstykkið á pilsinu er prjónað
nákvæmlega eins og framstykkið.
Samsetning:
Þegar búið er að prjóna ödl
stykkin eru þau vætt og strengd
yfir sniðin og látin þorna. Þá er
saumað í hoðanganu eftir meðfylgj-
<4-*—77—x—7/—> <—77—^-11—
andi munstri. Auðvitað er liægt að
nota annað munstur, t. d. er ágætt
að þræða strammalengjur á boðang-
ana og sauma krosssaumsmunstur
i þær og eru þá strammaþræðirnir
dregnir út á eftir.
Pilsið er saumað saman og streng-
ur látinn á það. Treyjan er saumuð
saman og ermarnar látnar í. Saum-
ið borða undir linappagötin og hnapp
ana. Síðan er þetta alt strokið ljett
undir deigum klút.
Sóldýrkendnr i Sofia.
Nýr sjertrúarflokkur í eigin klaustri.
Ný trúarvakning gengur yfir Búlg-
aríu. 50 þúsund sóldýrkendur liafa
myndað með sjer fjelagsskap undir
forystu Danoff prófessors, og hafa
þeir bygt upp heilt hverfi i útjaðri
Sofia, er minnir mest á klaustur.
Danoff átti lengi heima i Banda-
ríkjunum og meðan hann dvaldi þar
kyntist hann mörgum sjertrúar-
flokkum. Þetta varð orsök til þess,
að hann við. heimkomu sina stofnaði
sóldýrkendatrúarflokkinn.
Klaustur Danoffs er merkilegt sam-
bland af heilsuhæli og vinnustofnun,
þar sem fleiri hundruð manna safn-
ast saman árla morguns til þess að
syngja lofsöngva um sólina. Eftir
sönginn fer fram almenn leikfimi
undir hljóðfæraslætti. Síðan heldur
Danoff prófessor eða einliver full-
trúa hans prjedikun. Prjedikunin
er ekki altaf trúarleg, heldur snýst
hún um ýmislegt annað, svo sem
jarðyrkju og stjórnmál. Eftir að
þessu öllu er lokið byrjar svo líkam-
lega vinnan.
Af þessum 50 þúsund sóldýrkend-
um húa aðeins nokkur hundruð í
klaustrinu. Hinir búa í Sofia og ná-
grenni hennar. Á liverjum morgni
rísa þeir á fætur um sólarupprás',
kl. 4 á sumrin og kl. 6. á veturna.
Flestir af áhangendum Danoffs eru
konur, en allar stjettir eiga ein-
hverja innan hreyfingarinnar. M. a.
eru í henni margir lögfræðingar,
læknar og kennarar.
Algert bindindi er á stefnuskrá
sóldýrkenda og kjöts neyta þeir
ekki. Þeir verða sjaldan veikir og
eiga heilbrigða sál og hraustan lík-
ama. Taugaveiklun vita þeir ekki
livað er.
Þegar prófessorinn hóf starf sitt,
mætti hann mikilli mótspyrnu úr
ýmsum áttum og var kallaður vind-
belgur af mörgum. Honum hepnaðist
nú saml að snúa mörgum til fylgis
við sig og flokkurinn stækkar ár
frá ári. „Klaustrið" kappkostar að sjá
fyrir sjer sjálft og rekur landbúnað
af mesta dugnaði og fyrirliyggju.
■••nvo -'•u.-o ^
l Drekkiö Egils-öl $