Fálkinn - 01.10.1938, Qupperneq 2
2
F Á L K I N N
----- GAMLA RÍÓ --------
Þeirfengnhonumvopn.
Efnisrík og fróðleg mýiíd, uin
mánn sem ekkert var nema með-
an hann hafði byssu í hönd.
Myndin er frá Metro Goldwyn
Mayer. — Aðalhlutverkin ieika:
SPENGER TRACY,
FRANCHOT TONE
GLADYS GEORGE.
Gamla Ríó sýnir á næstunni Metro
Goldwyn kvikmyndina: Þeir fengn
Iionum vopn.
Myndin hefst árið 1917, um þær
mundir, sem Bandarikin eru að
ganga lit í heimsófriðinn til þess að
berjast við hlið Englendinga og
Frakka. í herbúðum einum finnast
tveir ungir nýliðar, Fred Willis
(Spencer Tracy) og Jimmy Davis
(Franchot Tone). Þeir eru menn
mjög ólíkir að skaplyndi, en bind-
ast engu að síður innilegum vináttu-
böndum. Fred er duglegur og harð-
fylginn sjer, en Jimmy lingerður og
kveifarlegur. En Fred tekst að herða
hann upp.
Þeir fjelagarnir halda nú til
Frakklands, þar sem þeir taka þátt
i orustum. Jimmy særist alvarlega
og er lagður inn á hermannaspítala.
En Fred fær lausn frá herþjónustu
til þess að geta verið nálægt vini
sínum. Á spítalanum hittir Fred,
Rose Duffy (Gladys George), hjúkr-
unarkonu, og þau verða brátt ást-
fangin hvort af öðru. Þegar Jimmy
er úr allri hættu gengur Fred aftur
i herinn.
Áður en þau Rose og Fred skilja
heita þau hvort öðru trygðum. ■—
Skömmu síðar kemur herfylkið, sem
Fred átti heima í til þorpsins, þar
sem hermannaspítalinn er. En Fred
er ekki með, svo að þau Jimmy og
Rose telja að liann sje fallinn. Og
þau syrgja hann, hvort á sinn hátt.
Nú verður Jimmy ástfanginn af
hjúkrunarkonunni og játasl hún
honum að lokum, þegar hún hefir
mist alla von um að Fred sje lífs.
En nú skeður það óvænta, að
Fred er á lífi. Hann hafði verið tek-
inn til fanga, en slapp úr fangelsinu.
Þegar hjer er komið efni myndar-
innar hefst mjög ,„spennandi“ þátt-
ur. En honum verður ekki lýst lijer.
Innlimún Austurríkis liefir haft
talsverð úlirif á furstadæinið Licht-
enstein og komið róti á fólk þar.
Franz I. fursti hefir lagt niður völd
og Franz Jósef bróðursonur hans
tekið við. Og nasistarnir i dverg-
ríkinu — sem hefir 12.000 íbúa —
lieimta sameiningu við Þýskaland.
Þessvegna þótti öðrum skylt, að
furstinn hjeldi sig heima og gætti
ríkis síns. En gamli furstinn fjekst
ekki til þess. Hann bjó í Wien og
kaus heldur að segja af sjer en fara
þaðan.
Jón Axel Pjetursson, hafnsögu-
maður, Hringbraut 153, varð k()
ára 29. f. m.
Guðni Egilsson, múrari, Ránar-
götu 26, varð 70 ára 28. f. m.
Sigurlaug Magnúsdóttir, Amt-
mannsstíg 2, varð 75 ára 30. sept.
Jón Erlendsson, verkstjóri hjá
Eimskipafjelagi íslands, verður
60 ára 6. okt.
Helga Erlingsdóttir frá Stóru-
Mörk undir Egjafjöllum, nú til
heimilis á Laufásvegi 20, varð
80 ára 27. f. m.
Þorsteinn Einarss., bóndi Köldu-
kinn, Holtum, varð 70 ára 27.
fyrra mánaðar.
Robert Soetens.
íslendingar, sem venja komur sín-
ar í hljómleikasali erlendra stór-
borga og lesa blaðaauglýsingar um
hljómleika að jafnaði, er þeir dvelja
erlendis, munu varla hafa komist
hjá því, að rekast á nafnið Robert
Soiitens, því að siðustu árin liefir
hann verið talinn meðal hinna „fáu
útvöldu“ í liópi fiðluleikara, maður
sem þykir ávalt vera að vaxa, þó að
mörg ár sjeu síðan hann komst í
„meistaraflokk" — svo maður noti
iþróttalegt orðatiltæki. Tónlistadóm-
arar erlendis eru sammála um, að
kalla hann meistara hins franska
skóla í fiðluleik, en hann er ein-
kendur með því, að maðurinn sem
i hlut á, liafi bæði tækni, lireimblæ
Framhahl á bls. 15.
------- NÝJA BÍÓ. --------------
Tovarich.
Amerísk stórmynd frá Warner
Bros. gerð eftir samnefndu leik-
riti eftir hinn lieimsfræga rithöf-
und Jacques Deval.
Aðalhlutverkin leika:
CHÁRLES BOYER
(sem Mikail Alexandrovitch
stórfursti),
CLAUDETTE COLBERT
(sem Tatiana Petrovna stór-
furstafrú) og
BASIL RATHBONE
(sem sendiherra rússnesku so-
vjetstjórnarinnar).
Leikurinn fer fram í Paris.
Flestir bæjarbúar er lesa heili
þessarar næstu kvikmyndar, erNýja
Bió sýnir, munu fljótt við það kann-
ast. — Tovarich var nafnið á öðr-
um sjónleiknum, er Reumerts-hjón-
in Ijeku hjer á síðastliðnu vori, og
vakti svo mikla hrifningu áhorfend-
anna að þeir munu aldrei gleynia
þeim leikhúsviðburði. Leikur þessi
er eftir einn af frægustu núlifandi
leikritahöfundum Frakka, Jacques
Deval. Og það er síst ofmælt þó að
sagt sje, að leikurinn hafi farið sig-
urför um heiminn.
Nú hefir Warner Bros fjelagið
kvikmyndað leikinn með ekki ófræg-
ari leikurum en Charles Boyer og
Claudette Colbert í aðalhlutverkun-
um. Verður nú gaman að fá saman-
burð á leik jjeirra og Reumerts-
hjónanna.
Fyrir bæjarbúa, sem sáu leikinn
í Iðnó í vor er óþarft að minnast á
efni hans, en vegna hinna mörgu
lesenda Fálkans er ekki áttu þess
kost, skal það gert í fáum orðutn.
Aðalpersónurnar eru Mikail Alex-
androwitch (Charles Boyer) og
Tatiana Petrovna (Claudette Colbert)
háaðalslijón, austan úr Rússlandi,
sem flúið hafa land fyrir bolsevikk-
um og sest að í París, þar sem þau
búa við sult og seyru. Að lokum
kreppir neyðin svo mjög að þeim,
að þau ráða sig í vist. í gegnum
alla niðurlægingu þeirra bera þau
í svip sínum og lund þau sömu
einkenni aðalslundarinnar, sem eng-
in ytri neyð fær svift þau.
í lok leiksins kemur það í ljós að
föðurlandsást jieirra er sterkari en
andúðin gegn þeim yfirvöldum, er
hafa rænt þau öllu, með þvi að þau
bjarga Rússlandi, er olíulindir þess
eru í hættu, þar eð þau hafa til um-
ráða 4 miljarða franka, er rússn-
eska keisaradæmið átti. Til eigin
þarfa nota þau ekki einn franka af
þessu fje, — en þegar Rússland
kallar, þá láta þau það laust.
Kvikmyndin sem leikurinn mun
vekja hlýja ánægju þeirra er sjá
hana og það að verðleikum.
Sem dæmi um þá aðsókn, sém
myndin liefir fengið í stórborgum
erlendis má geta þess að langstærsta
kvikmyndahús Kaupmannahafnar
sýndi hana i sex vikur samfleytt,
og var altaf troðfult hús.