Fálkinn - 01.10.1938, Blaðsíða 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
fíitstjórar:
Skúli Skúlason.
Sigurjón Guðjónsson.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested.
Aðalskrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavik. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-0.
Skrifstofa í Oslo:
A n t o n Schjötsgade 14.
Blaðið kemur út livern laugard.
Áskriftarverð er kr. 1,50 á mán.,
kr. 4.50 á ársfj. og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Altar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsiiíffaverð: 20 aura millim.
Herbertsprent.
Skraddaraþaikar.
Um það leyti sem Alþingishátið-
inni lauk 1930 höfðu ýmsir orð á, að
vel færi á því, að þjóðin efndi til
allsherjar samkomu á Þingvelli tíunda
hvert ár með svipuðu sniði og há-
tíðin 1930, þó að visu yrði þar alt í
nokkru minna broti. Siðan hefir ver-
ið hljótt um þetta mál. Tíminn liður
fljótt og nú er aðeins nokkuð á ann-
að ár óliðið til júnimánaðar 1940.
Enginn mun efast um, að þjóðinni
væri það holt að gera sjer einn stór-
hátíðisdag einu sinni á áratug. Koma
saman á staðnum þjóðhelga til þess
að sýna sig og sjá aðra, taka þátt í
þjóðlegum skemtunum og mannfurtd-
um, tílusta á afburðamenn þjóðarinn-
ar, gera sjer grein fyrir hvert stefnt
hefir á síðasta áratug og ráðgast
um hvert stefna beri á þeim næsta.
í landi hinna miklu fjarlægða er
þörfin eigi hvað síst mikil á þessu,
og með sítíatnandi samgiingum er
framkvæmdin á því orðin viðráðan-
lcgri en áour.
Landsmálaflokkarnir eru nú farnir
að halda þing sín, jafnvel árlega i
Reykjavík. Það er vitanlega gott og
blessað. En er þörfin minni á því, að
öll þjóðin eigi sjer þingfund einn
sinni á tíu árum og„ ræði þar vel-
ferðarmál sín án lillits til allra
flokka, jafnframt því sem hún gerir
sjer einskonar reikningsskil fyrir
tímabilið? Þarf að efast um, að slík-
ir fundir gætu orðið lil gagns, vakið
þjóðina og komið nýjuin og gagnleg-
um hugsjónum á framfæri? Mundi
ekki þjóðernisleg eining vaxa við
slíka fundi og þjóðin stælast i har-
áttunni við erfiðleikana? Við höf-
um lifað erfið ár síðan 1930 og aldrei
hefir þörfin verið meiri en nú á þvi,
að bestu menn þjóðarinnar og vitr-
ustu leggi saman orku sína og gleymi
„dægurþrasi og rig“. Er það til of
mikils mælst þó að ein samkoma á
tíu árum sje helguð þessu verkefni
]iegar menn liafa allar samkomur á
öllum árum lil að ala á úlfúðinni
og rifa niður hver fyrir öðrum?
Tugárið er vel til þess fallið, að
rifja upp liðinn tima og gera sjer
grein fyrir livar framför liefir orðið
og hvar afturför. íþróttamennirnir
eiga að sýna það, sagnfræðingarnir
stjórnmálamennirnir, skáklin, bænd-
urnir og sjómennirnir. Á slíku al-
þingi mundi það sjást, hvað þjóðin
er, hvar hún er stödd og hvert lnin
stefnir.
Stjórnin í Síam auglýsir líu þús-
und fíla til sölul Þeir hafa áður ver-
ið notaðir í hernum, en nú hafa
bifreiðar og dráttarvjelar verið tekn-
ar til notkunar þar í staðinn og ekk-
ert lengur við filana að gera.
Gollklúbbur
00
baðstofubað
t 1
Q Q D m rap 1 Q
n Í V. d
i ..
j I 1 1 1 ! 1 1 II ■
133 C-
s □
w r 3 i
l1 m p:::::; . i '"'?i II i—
j'l-'-tS+.Í.+T'I-"'-'*- - ••*-+- ••• *
w-M-t-i T'T i i-1-1—i—i,
Golfklúbburinn hefir starfað i
nokkur ár og á síðasta vori tókst
honum að koma upp myndarlegu
klúhhhúsi, á norðanverðri Öskju-
hlíð, skamt frá Golfvellinum. Er
það fyrsta klúbbliúsið hjer á Iandi,
sjerlega vistlegt og vandað. Anddyri
er á suðurhlið en í austurenda er
öðrumegin skrifstofa golfkennarans,
mr. Ruben Arneson, en hinumegin
eldhús og herbergi ráðskonunnar.
í vesturenda er stór og fállegur
skáli, þar sem golfiðkendur geta
setið og hvílt sig og fengið sjer
hressingu „milli bardaganna.“ Þar
eru á liillu á norðurvegg hinir veg-
legu gripir fjelagsins, sem kept er
um á aðalmótunum.
En niðri í kjalíara eru vistarver-
ur, sem eru jafnvel enn nýstárlegri
og merkilegri en þær sem uppi eru.
Þarna hel'ir sem sje verið komið
fyrir fyrsta finska baðstofuhaðinu
á íslandi. Finsk höð eru um þessar
ínundir að ryðja sjer til rúms um all
an heim og þykja taka fram öilum
öðrum hitahöðum. Baðið er i eðli
sínu gufuhað, en þó laust við alla
þá gufusvækju, sem venjulegum
gufuböðum l'yígir. Tilhögunin er sú,
að ofan á baðofninum, sem kyntur
er með kolum, er kassi með járn-
kúlum og eru þær sjóðheitar á ofn-
inum. Með því að skvetta vatni á
kúlurnar myndast afar fíngerð gufa,
sem fyllir herhergið og hitinn verð-
ur alt að 45 stig. í þessum hita
liggja svo baðgestirnir svo lengi sem
þeim gott þykir og láta hoga af sjer
svitann og alla „óholla vessa“ úr
hörundinu. Til þe.ss að ýfa hör-
undið „húðstrýkja" menn hver ann-
an méð sóflum, en þó svo vægileg i,
að ekki verður talið til meinlæta.
Að loknu baðinu hvíla menn sig í
öðrum klefa í venjulegum stofuhita.
Þetta finska hað hefir verið iðkað
i Finnlandi frá alda öðli, þó ein-
faldari tæki hafi verið notuð til
þess að framleiða gufuna en nú er
orðið. Finnlendingar eigna liessum
böðum m. a. frækni íþróttamanna
sinna og heilsufræðingar telja þau
hin hollustu. Þess verður væntanlega
skamt að bíða, að höð þessi nái fót-
festu hjer á landi.
Iifri myndin sýnir grunnteikn-
ingu Golfhússins og herbergjaskip-
un, en hin er af húsinu sjálfu.
Það er undantekning að lijón eigi
65 ára hjúskaparafmæli. En „Gömlu
hjónin á Lágafelli“ — en svo hafa
þau lengi verið kölluð af sveitung-
um sínum í Austur-Landeyjum og
öðrum Rangæingum — eru ein af
fáum undantekningum. Gömlu hjón-
in á Lágafelli eru þau Ólafur Ög-
mundsson og Vilhorg Þorhjarnardótt
ir, sem eiga 65 ára brúðkaupsafmæli
2. oklóher. Hann verður 94 ára 4.
okt. en hún er 95 ára. Eignuðust
þau hjónin fimm hörn alls og eru
l'jögur þeirra á lífi, þar á meðal
Sæmundur hreppsnefndaroddviti á
Lágafelli, sem tók við jörðinni af
föður sínum laust eftir aldamótin.
Höfðu þau hjónin þá húið þar nokk-
ur ár. En síðan hafa þau jafnan
dvalið á Lágafelli og notið góðrar
elli og umönnunar hjá syni sínum.
Ólafur er nú mjög farinn að sjón og
heyrn og líkamskröftum, en gamla
konan er enn hin ernasta, heldur
bæði sjón og heyrn að kalla má
óskertu og gengur til ýmsrar vinnu,
þó hana skorti aðeins fimm æfiár
hundrað.
Maður einn í Hollywood að nal'ni
Tliomas Condon, 27 ára gamall, veðj-
aði við kunningja sina um það, að
liann skyldi kyssa Sonju Henie
skautadrotningu. Nokkru síðar reyndi
hann það, en Sonja hraust um svo
fast, að hann gat þetta ekki. Fyrir
þessa tilraun var maðurinn dæmdur
í 30 daga cinfalt fangelsi.
Jón E. Jónssön prentari í Guten-
berg, verður 70 ára 5. okt.