Fálkinn - 01.10.1938, Síða 10
10
F Á L K I N N
Hvit treyja með rauðum og bláum rðndum.
Mál:
Málin sem hjer eru gefin upp sam-
svara stærö 44. (92 cm. brjóstvídd,
48 cm. sídd).
Efni:
250 gr. hvítt, 100 gr. blátt og 100
gr. rautt fjórjiætt garn. 2 prjónar
nr. 3.
Prjónið:
Tvinnað brugðið: 1. I. tvinnuð
rjett (j). e. tekið er að aftanverðu
í lykkjuna), 1 1. snúin.
Sljett prjón: 1 prjón rjett, 1 prj.
snúin.
Prjónið á röndunum: 1. prjónn. Á
seinasta prjóni í sljetta prjóninu
prjónist 2 1. saman prjóninn út. 2.
prj. Takið hvítu lykkjurnar lausar af
og takið 1 1. upp milli lykkjanna og
prjónið hana snúna með bláa garn-
inu. 3. prj. Takið aftur hvítu lykkj-
urnar lausar af og prjónið bláu
lykkjurnar rjettar með bláa garninu.
4. prj. Prjónið allar lykkjurnar snún-
ar með rauða garninu. 5. prj. Allar
iykkjur rjettar. 6. prj. Allar 1. snún-
ar. Báðir með rauða garninu. 7. prj.
Prjónið 2 1. saman prjóninn út. 8. og
9. prj. eins og 2. og 3., nema hjer er
prjónað með rauða og bláa garninu.
Prjónið síðan allar lykkjurnar með
livíta garninu.
PRJÓNAAÐFERÐ.
Framstykki. (Mynd I). Fitjið upp
132 1. með hvíta garninu. Prjónið 6
prjóna brugðna og aukið út með 1 1.
á hvorri hlið. Aukið þannig út ann-
anhvorn prjón þangað til 144 1. eru
á prjóninum.
Skifling randanna. Með 7. prjóni
byrjar 1. rönd, þá koma 16 prjónar
livítir. Eftir aðra rönd 8 prjónar
hvitir. Eftir 3. rönd 8 prj. hvitir.
Eftir 4. rönd 8 prj. hvítir. Eftir 5.
rönd 6 prj. hvítir. Eftir 6. rönd, 6
prj. hvitir. Eftir 7 rönd 4 prj. livítir.
Eftir 8. rönd 12 prj. hvitir.
Handvegurinn:
Þegar búið er að prjóna 32 cm.
langt, eru feldar af 6 lykkjur í hyrj-
un næstu tveggja prjóna, því næst
eru feldar af 4 1. livoru megin og á
næstu 14 prjónum er feld af 1. i.
í byrjun hvers prjóns.
Hálsmálið:
Þegar treyjan er orðin 45 cm.
síð, eru 22 miðlykkjurnar feldar af
í einu og síoan annanhvern prjón
1 1. hvoru megin við hálsmálið, þang-
að til 35 1. eru eftir á hvorri öxl.
Þær eru feldar af í 5 umferðum,
þegar handvegurinn er 19 cm.
Bakið:
(Mynd II). Fitjið upp 120 1. af
af hvíla garninu. Það er aukið út
eins og á frainstykkinu, en lijer eiga
lykkjurnar ekki að verða fleiri en
132.
Randirnar og handvegurinn er al-
veg eins og á framstykkinu, en þeg-
ar búið er að prjóna 8 cm. af hand-
veginum er þessu skift niður á tvo
prjóna og hvort stykki prjónað 10
cm. út af fyrir sig svo opið niður
úr liálsmálinu myndist. Fellið af 35
1. í 5. umferðinni á hvorri öxl og
svo eru lykkjurnar í hálsinum feldar
af i einu lagi.
Ermaraar:
Mynd III. Fitjið upp 72 1. af hvita
garninu og prjónið 6 prjóna brugðna.
Skifting randanna. Prjónið 12 prj.
hv. Eftir 1. rönd, 18 prjóna hv. Eftir
2. rönd, 12 prj. hvíta. Eftir 3. rönd,
10 prj. hvíta. Eftir 4. rönd, 8 prj.
hvíta og þvínæst 5. rönd.
íaukning og úrtaka á erminni.
Þegar byrjað er á sljetta prjón-
inu eykur maður út um 1 1. í hvorri
hlið annan hvern prjón og þegar
ermin er orðin 17 cm. eiga Iykkj-
urnar að vera 120. Fellið af 2 1.
í byrjun hvers prjóns, prjónið þann-
ig 4 cm. Látið nú 60 miðlykkjurnar
á hjálparprjón og prjónið bæði lilið-
arstykkin þannig: Fellið af 2 1. að
utanverðu, annanhvern prjón, og
fellið af 1 1. þeim megin sem snýr
að miðjunni, á hverjum prj., haldið
þannig áfram þangað til allar 1. eru
búnar. Takið nú 18 1. af hjálpar-
prjóninum og prjónið þær þannig,
að 1 1. sje feld af í byrjun hvers
prjóns, þangað til 6 I. eru eftir, fell-
ið þær af. 24 miðlykkjurnar eru
prjónaðar á sama hátt, en hjerna
er felt af þegar 12 1. eru eftir. Sein-
ústu 18 1. eru prjónaðar eins og þær
fyrri 18. —
Samsetning:
Strjúkið öll stykkin undir deigum
klút. Saumið framstykkið og bakið
saman, takið 1. í hálsmálinu upp á
fína prjóna, byrjið og endið við
opið á hálsmálinu. Prjónið brugðið
4 prj. með raúðu og 4 prj. með bláu
garni. Fellið af. Opinu er lokað með
hnapp og lykkju. Saumið ermarnar
saman og festið þær í.
TAKA ÞAU SAMAN ?
Helene prinsessa, sem áður var
gift Carol núverandi Rúmenakon-
ungi sjest hjer til hægri á myndinni
ásamt systur sinni, á gangi í London.
Það er talið mögulegt, að þau hjón-
in taki saman aftur.
NÝR „STJÓRNARHATTUR".
Heimsókn ensku konungshjónanná
til Parísar hefir verkað á kvenhatta-
tískuna. Franskir tískufrömuðir hafa
sem sje tekið upp á því, að skreyta
kvenhattana með franslca og enska
fánanum.