Fálkinn - 22.10.1938, Síða 7
F Á L K I N N
7
Myndin til hægri er af nýjum kapp-
akstursbíl, sem Englendingur John
Cobb hefir látið smíða sjer og ætl-
ar að reyna að setja heimsmet með
á seltulandinu í Utah. Bifreið þessi
er með tveimur Napier-hreyflum
og hefir hvor þeárra 1250 hestöfl.
Annar hreyfillinn knýr áfram aft-
urhjólin en hinn framhjólin og eru
þeir ekki í neinu sambandi innbyrð-
is. Hefir þetta fyrirkomulag ekki
verið reynt áður, en það þykir mjög
efasamt að það gefist vel. Eins og
sjá má af myndinni er ökumaður-
inn alveg inniluktur, þegar hettan
hefir verið sett á bifreiðina.
Nú ætla Þjóðverjar að fara að
smíða bifreiðar, sem verði svo ó-
dýrar, að þær geti orðið almenn-
ingseign. Lagði Hitler hyrningar-
steininn að verksmiðjunni í vor
og árum saman hafa verið gerðar
rannsóknir í tilhögun þessarar bif-
reiðar. Á hún að kosta 990 mörk,
en Þjóðverjar eiga að fá hana
keypta með 5 marka afborgun á
viku og verða því á fjórða ár að
borga bifreiðina að fullu. Bara að
hún verði elcki orðin ónýt löngu
áður! Hjer að neðan er mynd af
bif reiðinni.
Dansldr skátar höfðu í sumar stóra
sýningu í Forum í Kaupmannahöfn
til auglýsingar og ágóða fyrir starf-
semi sína. Iljer að ofan er mynd
af þessari sýningu, sem kvað vera
mjög margháttuð og vel fyrir
komið.
Hollendingar eru frægir fyrir túlí-
panarækt og önnur laukblóm og
er ræktun lauka mjög mikil tekju-
grein hjá þjóðinni. Laukekrueig-
andi einn, sem ekki þóttist græða
nóg, fann upp á því snjallræði i
sumar að hafa sýningu fyrir skemti
ferðafólk á laukekrum sínum, og
til þess að hafa alt sem þjóðtegast
flutti hann fólkið á síkjabát um
ekrurnar, að gömlum hollenskum
sið. Þótti fólki þetta mjög eftirsókn-
arvert ferðalag ekki síður en skemti
ferðafólki sem hingað kemur þyk-
ir gaman að fara riðandi kringum
Austurvöll. Á myndinni til vinstri
sjest Hollendingurinn með fjölda
ferðamanna í eftirdragi.