Fálkinn - 12.07.1940, Side 9
JF Á LKI N N
9
lykilinn á borðið. — Nú verðuni
við ekki ónáðaðir, sagði hann.
Andlit Feverels var bleikt og
sviplaust eins og grjma þegar
liann byrjaði að stokka spilin.
Þegar hann hafði gefið síðustu
spilin leit liann upp og sá nú, að
Richards var með skammbyssu í
hendinni og miðaði á hann.
— Hvern þremilinn á þetta að
þýða? hrópaði hann og það var
beygur í röddinni.
Richards glotti fúlmannlega og
hann kastaði höfði i áttina til
klefagluggans.
— Maður fyrir borð! sagði
hann stutt. Það bragð hefir verið
notað fyr.
— Er það ekki full alvarlegt?
sagði Feverel og reyndi að brosa.
En jeg hefi verið jafn forsjáll og
þjer, — ------
Richards sá keppinaut sinn
stinga hendinni í bakvasann á
kjólnum.
• — Gott! sagði hann og Iagði
skannnbyssuna á borðið. Við
spilum þá eins og jeg stakk upp
á fyrst.
—- Ef jeg man rjett, þá stung-
uð þjer upp á því að fyrra bragði,
að við gerðum út um málið eins
og heiðarlegir menn. En það er
auðsjáanlega ekki hægt að reiða
sig á yður.
Ricliards horfði á hann um
slund, án þess að svara, en svo
ræskti hann sig og sagði:
— Hlustið þjer nú á, Fevereí.
Finst yður ekki rjett að tala við
mig í öðrum tón, ef þjer lítið á
fortíð yðar, sem ekki er alveg
flekklaus.
— Hvern fjandann eigið þjer
við? öskraði Feverel fokreiður.
Richards laut fram yfir borðið
og sagði lágt:
— Jeg á við það, sem gerðist i
Kuala Lupur.
Feverel spyrnti stólnum frá
borðinu.
— Yður er bollast að tala sem
minst um það, Richards, urraði
liann.
— Það getur vel verið, sagði
Richards rólegur. — Jeg býst
ekki við að frú Weathering kæri
sig um að heyra þá sögu heldur.
Feverel gaf honum kinnhest
svo að small í og augnabliki síðar
kútveltust þeir báðir á gólfinu og
flugust á.
Hljómsveitin inni í danssaln-
uin ljek dillandi vals og frú
Weathering, sem hafði alveg stein
gleymt keppinautunum báðum,
var að dansa við Nic Somerset og
unaðsbros ljek um varir hennar.
Ilún óskaði að dansinn stæði til
eilífðar.
All í einu var eins og bylmings
högg færi um alt skipið —glösin
duttu með braki og brestum of-
an af borðunum og fólkið, sem
var að dansa, datt kylliflatt á
gólfið. Ljósin á lömpunum depl-
uðu eins og þau ætluðu að slokna.
Skipið rjettist sem snöggvast en
seig svo hægt á aðra hliðina.
van der Horst skipstjóri stóð
uppi á brúnni og bölvaði í hljóði
— nú var það skeð, sem liann
hafði óttast alt kvöldið það
hafði siglt á þá skip. Það var ó-
mögulegt að vita ennþá hve skað-
inn var mikill. Hann sendi skeyti
niður í vjelarúmið en fjekk ekk-
ert svar ekkert nema þögn-
ina.
Háseti kom hlaupandi upp á
stjórnpallinn, bar hendina að húf
unni og sagði:
— Við höfum orðið fyrir á-
rekstri miðskipa, skipstjóri!
— Haldið þjer að jeg viti það
ekki, maður, svaraði skipstjórinn.
Er það alvarlegt?
— Jeg er hræddur um það,
skipstjóri. Skipið, sem hefir rek-
ist á okkur er alveg eins stórt og
„Armania". Jeg gat eklci sjeð
hvað það lieitir, en það hefir
auðsjáanlega brotnað mikið líka.
Annar vjelstjóri kom upp á
stjórnpallinn fölur og móður:
— Margar stálþynnur í byrð-
ingnum brotnar, sagði liann. —
Vjelarúmið er fult af sjó. — —
Sendið fyrsta stýrimann
hingað! sagði van der Horst
skipstjóri.
Eftir fimm mínútur liafði hann
skipað svo fyrir, að allir skyldu
fara í bátana og yfirgefa skipið.
Það var mikið liapp, að árekst-
urinn skyldi verða á þessum tíma.
Nærri því allir farþegarnir voru
samankomnir i danssalnum —
og eftir að fyrsti felmturinn var
farinn af fólkinu, voru allir ró-
legir. Foringjarnir voru hinir x-ó-
Icgustu og skipuðu hægt og reglu-
lega fyrir, — en eftir tíu mínútur
yrðu allir að vera farnir frá
Í)Oi’ði.
Rafmagnsbjöllunum, sem voru
i hverjum einasta klefa i skipinu,
var hringt hátt og greinilega.
Einstaka gamalt fólk, sem hafði
verið fai’ið í háttinn, klæddi sig í
skyndi og komst upp á þilfar. En
aðeins einn klefi vai; læstur. Þeir
fáu farþegar, sem fóru um gang-
inn, voru að flýta sjer og tóku
ekki eftir livcrnig barið var á
dyrpar þar að innanvei'ðu.
Mennirnir tveir, sem voru i á-
flogum á gólfinu, gerðu sjer ekki
ljóst undir eins af liverju rykk-
irnir í skipinu stöfuðu og þeir
tóku elcki heldur eftir því, að
skipið hallaðist, fyr en ferðakista
Richards datt ofan af hillunni og
ofan á þá.
-— Guð sje oss næstur — skip-
ið er að sökkva! hrópaði Feverel
skelfdur. Þeir sleptu tökunum
hver á öðrum og stóðu upp með
mestu ei’fiðismunum. Öll heift og'
hatur var gleymt, einasta hugs-
un þeirra var sú, að sleppa út úr
klefanum sem alh’a fyrst. Fever-
el þaut til dyranna og kipti í
bandfangið. Náfölur sneri liann
sjer að Ricliai’ds og sagði:
— Lykillinn, lykilinn — livar
er lykillinn? Hann hlýtur að
liggja á gólfinu.
Richards hafði lagst á hnje á
gólfið til að leita, en fann engan
lykil. Þegar hann loksins stóð
upp hallaðist skipið svo mikið
á liliðina, að hann varð að halda
sjer í rekkjuna til þess að geta
staðið. Feverel stóð við hurðina
og barði á liana með hnefanum.
— Það heyrir enginn til okkar,
hrópaði hann og svitinn bogaði
af honum. Við vei'ðum að reyna
að komast út. Finnið þjer lykil-
inn. Náið þjer i lykilinn — fiflið!
Alt í einu liætti hann að berja
hann rjetti báðar hendur franx
því að nú kastaðist hann í áttina
að glugganum.
— Við verðum að reyna það,
Richards, sagði hann og liló eins
og vitfirringur. Richards horfði
ó hann.
— Gerið það ekki, sagði liann
aðvarandi. — Gerið það ekki!
En Feverel hlustaði ekki á það
sem hann sagði. Með skjálfandi
höndum fór hann að skrúfa róna
frá glugganum. En augnabliki
síðar liörfaði liann undan og rak
upp skelfingaróp. Vatnið fossaði
inn um opinn gluggann. Hann
reyndi að loka glugganum aftur,
en vatnið streymdi inn með svo
miklu afli, að það var eins og
ósýnileg hönd lirinti honum frá.
Ricliai’ds hjelt um handfangið
á hurðinni og kjökraði. Vatnið í
klefanum hækkaði í sífellu, en
Feverell hallaði sjer upp að veggn
um og hló krampahlátri.
p ARÞEGARNIR tóku slysinu
einstaklega í-ólega. Bátarnir
rjex'U út í þokuna og enginn
heyrði þegar „Armania“ sökk.
Frú Wethering, sem sat og vafði
Ioðkápunni sinni að sjer, hugsaði
um síðustu orðin, sem hún hafði
lieyrt Nick Somei’set segja þeg-
ar báturinn seig niður úr davið-
imnm:
'Við sjáumsf í London á
mónudaginn!
Og hún Iiafði lilegið þó að
svona alvarlega væri ástatt.
En næstkomandi miðvikudag
voru þau gift.