Fálkinn - 12.07.1940, Side 15
F Á L K I N N
15
í hallargarðinum við Fredensborg
liefir verið afhjúpað minnismerki
um FriSrik konung áttunda og Luise
drotningu og sjást hjer myndir af
afhjúpuninni. Til vinstri sjest minn-
isvarðinn nær ailur og With general-
líiutenant leggur blómsveig á fótstail-
inn, eftir að hann liafði haldið aðal-
ræðuna við afhjúpunina. Efst sjest
konungsfjölskyldan ásamt fleiri gest-
um, sem voru viðstaddir athöfnina.
Eru þar í fremstu röð Kristján kon-
ungur, Alexandrina drotning og Há-
kon Noregskonungur. Neðst sejsl
neðsti hluti minnisvarðans með lág-
myndum af Friðrik áttunda og drotn-
ingunni, en umhverfis varðann eru
ýmsir gestanna.
Dýrasta grafhvelfing
veraldar er sú, sem indverskur höfð-
ingi í Agra ljet gera yfir jarðneskar
leifar uppáhaldskonu sinnar. Er þetta
átthyrndur turn úr marmara, en alls-
konar gimsteinar eru greyptir í
marmarann. 22.000 manns unnu að
þessu grafhýsi í meira en 20 ár, og
þó að mikið af gimsteinunum væri
gefins og vinnan ókeypis varð kostn-
aðurinn við það samt 90 miljón krón-
ur.
Orðsending
frá Skömmtunarskrifstofu ríkisins
Að gefnu tilefni vill skömtunarskrifstofan vekja
athygli almennings á því, að á þessu ári verður ekki veitt
nein úthlutun á sykri til sultugerðar, til viðbótar þeim
2 kg. handa hverjum manni, sem nú er verið að úthluta.
I>eir, sem hugsa sjer að nota sykur til hagnýtingar berja
síðar í sumar, verða því að geyma til þess sykur frá þess-
ari aukaúthlutun.
Rabarbara má geyma í vatni, á tilluktum flöskum
í langan tíma, svc. óþarft er að eyða miklum sykri nú
til að bjarga honum ifrá skemdum.
SKÖMTUNARSKRIFSTOFA RÍKISINS.
Sinn er siður —
Nokkur eftirfarandi dæmi sýna,
hve mismunandi mælikvarða þjóð-
irnar leggja á kvenlega fegurð, og
hve ólíkar snyrtingaraðferðirnar eru
í ýmsum löndum. Arabastúlkurnar
mála fingur og tær rauðar, augabrún-
irnar svartar og varirnar bláar. Stúlk
urnar i Persíu mála svartan hring
kringum augun á sjer og myndir á
andlitið. Japanastúlkur gylla á sjer
tcnnurnar, Indíánar lita þær rauðar
en i Gusurat verða þær að vera svart-
ar, ef þær eiga að þykja boðlegar.
IJottentottastelpurnar mála svarta eða
rauða tigla á kroppinn á sjer, svo að
hann verður eins og taflborð. Eski-
móadrósirnar mála sig i framan með
bláum og gulum lit og tattóvera með
því að draga nál með sótugum enda
gegnum hörundið. Þegar Hindúar
vilja halda sjer til, smyrja þeir sig
alla í feiti, sein litarefni hefir verið
lirært út í. Á flestum eyjum i Kyrra-
liafi og Indlandshafi tattóverar kven-
fólk sig ekki síður en karlmenn, eigi
aðeins allan bjórinn að meðtöldu
andlitinu, heldur líka varirnar og
jafnvel tunguna. Á Nýja-Hollandi
rífur fólk hörundið á sjer með skelj-
arbrotum og rífur sárin upp livað
eftir annað, svo að þau verði djúp
og örin verði sem ferlegust eftir þau;
þykir þgð mikil prýði. Þar sker fólk
líka framan af litlafingri vinstri hand
ar á krökkunum, um annan lið, og
þykir það sjálfsögð prýði. — Til
forna voru konur með hvast nef
hafðar i miklum heiðri i Persiu og
þóttu hinar útgengilegustu. En á
Sumatra lcýttu mæðurnar nefin á
dætrum sínum, svo að það yrði sem
flatast. Indíánar i Oregon leggja
farg ofan á liausinn á krökkum sín-
um, svo að hauskúpan verði sem
lægst. Persar hafa megnustu viður-
stygð á rauðhærðu fólki, en í Tyrk-
landi þykir rauði háraliturinn fallegri
en nokkur annar. í Afríku þykir inn-
fædd stúlka elcki falleg nema hún
hafi lítil augu, þykkar varir, breitt
og flatt nef og sje vel svört.
4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4
Besta sumarleyfið
Hafið þjer athugað, að eins og sakir standa get-
ið þjer ekki ferðast til útlanda í sumarleyfinu.
En enginn þarf að vera í vandræðum samt. Nóg
er af fögrum stöðum hjer á landi, og strand-
ferðaskipin flytja yður á allar helstu hafnirnar
kringum alt land.
Munið hinar hentugu ferðir strandferðaskip-
anna vetur og sumar.
Talið við okkur áður en þjer farið í sumarleyfið.
Skipaútgerð ríkisins
Pappírslausir vindlingar.
Vindlingaframleiðendur hafa lengi
verið að glima við, að finna efni,
sem gæti komið í stað pappirs, utan
um sígaretturnar. Loks hefir blaða-
manni og 'efnafræðingi frá Budapest
tekist þetta, og hefir hann tekið
einkaleyfi á uppgötvun sinni. Hefir
hann búið til gagnsæja kvoðu, sem
hægt er að gera úr næfurþunn hylki
utan um sígaretturnar. Svo þunn eru
þessi hylki, að þau eru tíu sinnum
þynnri en sígarettupappír. Og efnið
er bragðlaust og hefir því engin á-
hrif á tóbaksbragðið úr sigarettunni.
Hugvitsmaðurinn tók einkaieyfi á
uppgötvuninni og liefir nú selt hana
tóbaksfirma í Bandaríkjunum íyrir
eina miljón dollara. Koma fyrstu síg-
aretturnar af þessari nýju gerð bráð-
um á markaðinn.
Fágæt bók.
Prestur einn í múhameðsmusteri
i Persíu á bók eina, sem eflaust ekki
á sinn líka i heiminum. Er bókin
alrit af kóraninum, og er 9% þuml-
ungur á hæð og 4 á breidd, spjöldin
eru úr silfri en kjölur og liorn úr
gulli. Á hornuin og kili eru allskonar
helgimyndir, gerðar úr 400 demönt-
um, rúbínum og perlum. Bókin er
talin tveggja miljón króna virði.