Fálkinn - 25.10.1940, Page 6
6
F Á L K I N N
William Weldin:
Auglýsingin
"M ÆTURLESTIN var að mjak-
^ ast út úr Alibene brautar-
stöðinni.
Tobias T. Thomson — í dag-
legu máli kallaður T. T. T. —
forstjóri hins heimsfræga tó-
baksfirma: Thomson-Tóbaksfje-
lag — skirpti út úr sjer togleð-
urstuggunni út um gluggann og
hallaði sjer makindalega aftur á
bak í liinar mjúku leðursessur,
Þetta járnbrautarferðalag hafði
nú staðið yfir í fulla þrjá klukku-
tíma og það var ekki laust við
að T. T. T. leiddist. Hann gaf
gætur að hinum unga manni,
sem sat beint á móti honum og
sem var éinasti samferðamaður-
inn í vagninum. Hinn ungi mað-
ur var niðursokkinn í blaðið sitt,
og hafði verið það frá því að
hann stje inn í lestina.
Það var eitthvað í fari hans,
sem vakti áhuga Thomsons for-
stjóra, sem hafi margra ára
reynslu í því að sjá hvað í mönn-
um bjó. Hann sá strax, að þessi
maður mundi fást við viðskifti
og verzlun, án efa mjög dug-
legur.
Ungi maðurinn lagði skyndi-
lega frá sjer blaðið. Það var eins
og hann liefði orðið var við að
T. T. T. virti'bann fyrir sjer.
Hann tók vindlingaveski upp
úr vasa sínum, og kveikti sjer í
vindlingi með merki frá verk-
smiðjum Thomsons.
— Mjer finst ekki að nokkrir
vindlingar í heiminum jafnist á
\áð vindlinga Tomson-Tóbaksfje-
lagsins, sagði hann og horfði
beint framan í T. T. T. — Jeg
geri ráð fyrir að þjer sjeuð sömu
skoðunar?
— Auðvitað! svaraði Thomson
liissa. — Þjer hafið fullkomlega
rjett fyrir yður í því! Thomson
vindlingar eru þeir bestu, sem fá-
anlegir eru í Ameríku. Það veit
livert barn.
Ungi maðurinn hjelt áfram að
einblína á hann.
— Það gleður mig að þjer er-
uð mjer sammála! sagði hann
undarlega kuldalega. — Annars
liefði jeg neyðst til þess að skjóta
yður .... það hefði mjer þótt
leiðinlegt.
— Hva. . ? Hvað voruð þjer að
segja?
Án þess að segja neitt, tók
hinn ungi maður upp litla, fægða
skammbyssu og strauk hana blíð
lega.
— Já, hugsið yður annað eins
og það, ef jeg liefði nú neyðst til
þess að skjóta yður, hjelt hann
áfram í sama rólega tón. —
Gera út af við yður með þessari
fallegu byssu!
Thomson var ekki ragari en
fólk er flest .... en þetta tók
á taugar hans. Hvað átti hann að
taka til bragðs? 'Maðurinn var
auðsjáanlega snarvitlaus!!!
í huganum sá Thomson feit-
letraðar fyrirsagnir dagblaðanna.
— Brjálaður maður drepur hinn
þekta forstjóra Thomson frá
Thomson-Tóbaksf jelagi!
Að þessu athuguðu, slóð Tliom-
son upp til þess að komast út
úr vagninum, en ungi maðurinn
hjelt honum kyrrum.
— Þjer gerið svo vel að vera
kyrr hjer! skipaði hann. — Ann-
ars neyðist jeg til þess að skjóta
yður, og það mundi mjer þykja
mjög leiðinlegt. Jeg kann svo vel
við yður! .... Lítið þjer nú út
um gluggann! Síðasta setningin
kom í slíkum skipunarróm, að
Thomson þorði ekki annað en
hlýða.
Landið lá baðað i skærasta
tunglsljósi — kvöldhimininn var
þjettsettur stjörnum. Það var
heillandi sjón, sem undir öðrum
kringumstæðum mundi hafa
hrifið Thomson.
Ungi maðurinn benti upp í
stjörnurnar með byssunni.
— Blekkingar! sagði hann ró-
lega. — Hreinai’ blekkingar!
Þetta kom nú svo flatt upp a
Thomson að hann brökk í kút.
Ungi maðurinn hallaði sjer að
honum og ýtti byssunni upp að
brjósti hans.
— Þekkið þjer leyndardóm
stjarnanna? hvíslaði liann í eyr-
að á T. T. T.
— Ne-h? svaraði Thomson
með röddu, sem hann ekki kann-
aðist við sjálfur.
Æsingur unga mannsins breytt
ist í draumkenda viðkvæmni.
— Einu sinni var það, að jeg
hjelt að stjörnurnar væru sálir
litlu barnanna .... en nú veit
jeg betur. Stjörnurnar eru þjón-
ai auglýsingastarfseminnar ....
Merkúr, Guð viðslciftanna hefir
gefið mönnunum þær. Jeg er
stjörnufræðingur .... jeg veit
hvað jeg er að tala um. Jeg veit
yfirleitt allt! Getið þjer sjeð þessa
stóru lýsandi stjörnu þarna uppi?
Það er Venus! Það er iðnaður-
inn! Hvað segið þjer? Trúið þjer
ekki? Gott! þá veit jeg, hver þjer
eruð! Þjer eruð málsvari and-
stæðinga minna .... minna
verstu andstæðinga, sem sitja
um líf mitt .... þá verð jeg því
miður að skjóta yður þrátt fyrir
alt ....
Angistin spratt í köldum svita
fram á enni Thomsons.
— Nei, nei! stamaði hann. —
Jeg trúi yður .... fullkomlega.
Þjer hafið rjett fyrir yður í öllu!
Ungi maðurinn hoppaði af
gleði eins og barn sem fær ó-
vænt leikfang. Hann tók upp
vasabók sína og opnaði hana á
síðu, sem var útkrössuð i und-
arlegum táknum og merkjum.
— Jeg get auðvitað ekki ætl-
ast til þess, að þjer skiljið kenn-
ingar mínar án sannana! sagði
hann. — En sjáið þjer hjer!
Hann rjetti Thomson bókina
og benti ákaft á líkingu:
— R + Mars = 16 H. P. Sinn-
um Venus -=- Jupiter Sinnum 48
+ 19.999 -f- % til vinstri ....
getið þjer sjeð? Það er augljóst,
finst yður ekki svo?
— Jeg lield nú það! svaraði
Thomson. — Jeg skil!
— Jeg er viss um, að þjer nú,
þegar þjer hafið sjeð þessa ein-
földu og skýru formúlu, munuð
ekki hafa neitt á móti þvi að
gefa mjer stuðning yðar skrif-
lega? Viljið þjer skrifa það, sem
jeg les yður fyrir?
— Með ánægju! sagði Thom-
son og tók upp sjálfblekunginn
sinn.
Ungi maðurinn lagði pappír á
borðið fyrir framan hann. —
gerið svo vel! sagði hann. — Nú
byrja jeg. Takið þjer eftir:
Mjer er ljúft að uppfylla þá
skyldu að lýsa yfir því, að Venus
er, samkvæmt eigin reynslu, hin
skærasta stjarna á himni iðnað-
arins. Ekkert jafnast á við Ven-
us. Venus er hið einasta rjetta.
— Jeg set steinvölu á höfuðið á
mjer, sagði liann, — og lijálparmað-
urinn tekur upp 16 punda sleggju,
slær af —öllum kröftum og brýtur
steininn.
— Og svo undirskrift yðar . .
Thomson flýtti sjer að skrifa
undir og rjetti hinum unga
manni siðan blaðið. Hann hjelt
því upp að ljósinu og athugaði
það og staklc því síðan í vasabók
sina. Thomson forstjóra fanst
sem steini væri af sjer Ijett. Vit-
lausi maðurinn virtist vera að
róast.
Alt í einu hrökk Thomson við
.... liinn hafði tekið eitthvað
upp úr vasa sínum .... nú sem
betur fór var það eklci nema blý-
antur, sem liann tók til að rissa
með á blað.
Skömmu seinna stansaði lest-
in á brautarstöð. Thomson var
hughægra er hann sá f jelaga sinn
búast til þess að fara út. Rjett
um það að lestin var að fara af
stað aftur, stökk hann út um
leið og liann kastaði miðanum
til Tliomsons.
Thomson tók miðann og las:
— Herra minn! Við þökkum
yður hjartanlega fyrir bin ágætu
meðmæli, sem þjer hafið gefið
hinu nýja vindlingamerki voru,
„Venus“. Svo fullkomin viður-
kenning frá stærsta og hættu-
legasta keppnaut vorum er auð-
vitað mjög kærkomin. Með þakk-
læti.
Virðingarfylst.
H.f. Nýja Tóbaksfjelagið.
Umboðsmaðurinn fjekk svima við
að liugsa um þetta.
— Þetta er undursamlegt, sagði
hann hrifinn, — en hvað um liöfuð-
ið á yður — finnið þjer alls ekki til?
Sterki maðurinn sló út hendinni.
— Vissulega, þessvegna ber jeg stund
um aspirín á mjer.
Þessar loflvarnabyssur eru á bersku beitiskipi. Þær
valda flugvjelum ávinanna miklum óþægindum.
Sterki maðurinn var að skýra um-
boðsmanni frá list sinni: