Fálkinn - 25.10.1940, Side 11
F Á L K I N N
11
SVARTUR KLÆÐISFRAKKI
með mörgum hnöppum.
Þetta er hentugur frakka-kjólt í
þremur gerðum. Er hver fyrir sig á-
gœtur göngukjóll, og það er hægt að
nota slá eða swagger við hann þegar
lcólna fer í veðri.
Konungur í viku.
Hin nýja stórmynd Paramount-
fjelagsins, „Væri jeg kóngur“, gerist
á timum Ludvigs XI. Aðalpersónan
er hið rómantiska fornskáld Fran-
cois Villon. Dag nokkurn sjer hann
eina af fegurstu hirðmeyjum kon-
ungsins, Katherine de Vancelles
(Frances Dee) og verður strax skot-
inn í henni.
Nokkru siðar vill það til, að
Francois gerir Ludvig konungi
greiða. Konungi geðjast'vel að lion-
um og þegar Francois leyfir sjer
að gagnrýna stjórn ríkisins, dettur
kóngi snjallræði i hug. Hversvegna
ekki að leyfa Franiois að fá tækifæri
tii að framkvæma hugmyndir sínar?
Og þetta verður. Konungur fær jæssu
fornskáldi í hendur allar stjórnar-
skyldur. í þessa viku, sem Francois
er konungur lendir hann í mörgum
spennandi æfintýrum og lifir átta ó-
gleymanlega daga.
Francois Villon er leikinn af Ron-
ald Colman, og enski skapgerðarleik-
arinn Cecil Rathbone leikur dutl-
ungafulla Ludvig XI.
Hin nýja stjarna, Vivieti Leigh, í
„Yankee“ í Oxford
„Yankee“ í Oxford.
Enska leikkonan Vivien Leigh er
fjörugur kvenmaður og hefir góðaí
listgáfur. Fyrsta stórhlutverk sitt
fjekk hún í myndinni „Yankee“ i
Oxford.“
Margai'et Sullavan og James Steumrt
10 kg. í viðbót!
í Metro-kvikmyndinni „Fallni
cngillinn“ (The Shopworn AngeD
leikur Margaret Sullavan fræga skop-
leikkonu. Hún varð að æfa sig við
dans og hopp og hí ásamt tíu öðr-
um meyjum. Á fætur kl. 9 og æfa
svo dans^ viðstöðulaust til kl. 6 að
kvöldi.
Eitt var þó hót í máli fyrir Mar-
garet meðan á þessu stóð: hún mátti
borða eins mikið og hana lysti. —
Myndin gerist nefnilega 1917, en þá
var horað kvenfólk ekki í tisku.
Þessvegna urðu Margaret Sullavan
og kórmeyjar hennar að fita sig
um 10 kg! Þetta gekk furðufljótt,
einkum fitnuðu þær prýðilega af
allskonar „bannvöru“, sem þær ella
mega ekki einu sinni þefa af. En
þarna fylgir böggull skammrifi, þvi
að sennilega verða þær að grenna
sig aftur.
Auk Margaret Sullavan leikur James
Stewart. Hann leikur ungan her-
mann, sem fer til vígvallanna eftir
að Margaret licfir gifst honum af
brjóstgæðum. — Þessi mynd var
sýnt hjer s.l. vetur, eins og ýmsa
mun-reka minni til.
BRÚNN JERSEY-FRAKKI,
sem hnept er með stórum, fóðruð-
um hnöppum. Kraginn er grænn og
fjöðrum skreyttur. En á annan vas-
ann er saumaður „fugl“, sem breiðir
úr vængjunum.
PRJÓNUÐ TREYJA, HÚFA OG
MÚFFA.
Sæblár ullarkjóll, með útsaumuð-
um tungum í pilsjaðrinum og breið-
um, rauðum linda, sem á vel við
treyjuna og kósakkahúfuna.
frú Ivaisa Kallio sjest hjer á mynd-
inni. Hún hefir tekið öflugan þátt í
finsku hjálparstarfseminni.
Loks er BRÚNN EÐA BLEIKTÍGL-
ÓTTUR FRAKKI, teiknaður af Hart
nell, frægum tízkuhöfundi.
FORSETAFRÚIN FINNSKA,
(KkWHWWiíi
er miðstöð verðbrjefavið-
skiftanna.
Egils ávaxtadrykkir
KVIKMYNDAFRJETTIR