Fálkinn - 17.01.1941, Page 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLA0 MEÐ MYNDUM.
Ritstjóri: Skúji Skúlason.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Simi 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-0.
Blaðið keinur út hvern föstudag.
kr. 6.00 á ársfj. og 24 kr. árg.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura millim.
HERBERTSprent.
Skraddaraþ ankar.
I>að cr sagt að lófatakið sje göfug-
um anda örvun en veikum spilling.
Hrifning áliorfanda eða áheyranda
gleðnr ávalt þann. sem í hlut á, en
áhrifin verða að öðru leyti tvenns-
konar. Hinum sanna listamanni verð-
ur hrifningin örvun til að geu-a enn
betur og komast enn lengra. En sá
sem veikari er fyrir og vantar vil.j -
ann hugsar sem svo: „Úr því að
fólkið er svona hrifið ])á liefi jeg gert
minar sakir svo vel, að jeg þarf ekki
að gera betur.“ Og honum hættir að
fara fram og dálætið dvínar, því að
heimurinn sættir sig ekki við kyr-
stöðu en heimtar altaf meira og
meira.
Þelta liel'ir orðið mörgum að falli,
sem hefir byrjað vel. Hann hefir ver-
ið dáður og borinn á liöndum sjer
um stund, en áður en h .nn vissi var
hann orðinn aftur úr — nýir keppi-
nautar komu og skutu honum aftur
fyrir sig. Þetta getur að vísu hent
listamenn þó að þeir sjeu vaxandi,
þvi að nýjir vendir sópa jafnan best.
En oft mega menn sjálfum sjer um
kenna, — þeir gæta ekki fengins sig-
urs. Þeir standa í stað, en kröfurnar
til þeirra fara vaxandi og keppinaut-
um þeirra fer fram.
Og því auðfengnari sem liinn fyrsti
sigur var var þeim því meiri er hætt-
an. Braut listamannsins er þröng og
erfið og hann verður í flestum tilfell-
um að herjast iengi fyrir viðurkenn-
ingunni. Því lengur sem hann hefir
barist fyrir henni því ciginlegri er
baráttan orðin honum. Hún er orðin
þáttur úr lífi lians, hún er orðin vani,
sem eigi legst niður, þó að fyrsti sig-
urinn sje unninn. Baráttan hefir kent
manninum, að gera kröfur til sjálfs
sín og listaafreka sinna og liann liætt-
ir því ekki þó að hann sje dáður.
Kröfur hans til sin og listafreka sinn-
ar fara vaxandi með vaxandi dálæti.
Honum vex liugur þá vei gengur.
En sá sem liefir hlotið ljettunninn
sigur liefir farið á mis við skóla bar-
áttunnar. Hann liefir oft verið betur
búinn undir baráttuna en hinn, haft
betri hæfileika og þessvegna orðið
minna á sig að leggja. Og þessvegna
hefir liugur lians og vilji farið á mis
við þann skóla baráttúnnar og von-
brigðanna, sem er svo nauðsynlegur
til að þjálfa þol og þrek. Það er svo
úm marga ágæta námsmenn að þeir
gleyma fljótt, en aðrir sem eiga erf-
iðara með að læra, muna betur. Þeir
eru lengur að sigra en sigur þeirra
verður varanlegri.
Sigvaldi Kaldalóns sextugur
Vinur allrar söngelskrar þjóð-
ar, Sigvaldi Kaldalóns hjeraðs-
læknir, varð sextugur síðastlið-
inn mánudag. Útvarpið mintist
afmælisins með því að flytja
ýmsar af tónsmíðum hans, og
aðstoðuðu við það tækifæri Út-
varpshljómsveitin, Dómkirkju-
kórinn og Kristján Kristjánsson
söngvari, en Hallgrímur Ilelga-
son tónskáld flutti erindi um
Sigvalda. Og það má telja vafa-
laust, að margar hlýjar liugsan-
ir hafi borist hæði „þráðlaust“
og á annan hátt til Sigvalda
Kaldalóns þetta kvöld.
Því að hann er fyrir löngu
orðinn ástsæll af þjóðinni. Þar
sem hljóðfæri er til eru líka til
einhver af lögnm Sigvalda
Kaldalóns — og sumstaðar mörg
því að það er mikið, sem cftir
hann liggur. Og þar §em söngur
er hafður um hönd, hvort Iield-
ur samkvæmið er fáment eða
margment, þá mun eitthvað
raulað eftir hann. llann á því
láni að fagna, að vera ekki að-
eins til á prenti heldur og í hug-
um þeirra, sem yndi hafa af
ljúfum lögum.
Fálkinn óskar honum til liarn-
ingju með al'mælið og vonar, að
þó árin sjeu orðin þetta mörg,
þá meg'i sú æð hans halda á-
franx að renna óhindruð, sem á
undanförnum áratugum liefir
yljað svo mörgu hljómelsku
hjarta.
Leikbrúðusýning,stúdenta
Nýmæli má það beita, sem stúdent-
ai rjeðast í um jólin, að efna til
leikbrúðusýningar. Leikurinn, sem
valinn var, byggist á sögninni um
galdramanninn Faust, sem Goethe
gerði ódauðlegan með binu mikla
snildarverki sínu. En brúðuleikur-
inn, sem stúdentafjelagið sýnir, er
miklu eldri en Faust Goethes, og
sniðinn eftir leik enska skáldsins
Marlovve.
Það er Lúðvíg Guðmundsson, sem
verið liefir lífið og sálin í þessu
fyrirtæki, ásamt Þjóðverjanum Kurt
Zier handiðnakennara og frú lians.
Hafa þau, ásamt nemendum kennara-
deildar Handiðaskólans, útbúið brúð-
urnar og stjórna þeim á leiksyiðinu
og er það ómengað galdraverk, hvern-
ig þeim tekst að stjórna brúðunum.
T>eir, sem tala bak við sviðið í nafni
brúðanna eru: Drifa Viðar, Benedikt
Antonsson, Guðlaugur Guðmundssou,
Hersteinn Pálsson, Kurl Zier, Lárus
Sigurbjörnsson, Sigurður Hanilesson,
Þór Guðjónsson og Ævar Kvaran. —
Sýningin er í senn skemtileg og fróð-
leiksrík. Myndin í fremra dátki sýnir
Hansvvurst, en efri mynd í þessum
dálki Mefistofeles og sú neðri Faust.
Baden-Powell
lávarður al' Gilvvell andaðist 8. þ. m.
i ensku nýlendunni Kenya í Afriku.
Þar hafði hann dvalið síðustu árin
vegna loftlagsins, sem talið var hon-
um Vörn gegn sjúkdómi þeim, er
þjáð hafði hann hin síðari ár.
Baden-Povvell varð 83 ára og lieims-
frægur hefir liann verið siðustu 30
árin fyrir stofnun og stjórn skáta-
hreyfingarinnar, sem fyrir löngu er
orðin alheimshreyfing. Hann var'ð
kunnur maður í Búastríðinu fyrir
það hve vel honurn gekk að verja
bæinn Mafeking gegn Búum og á
næstu árum óx vegur hans innan
enska hersins. T. d. var hann aðal-
umsjónamaður riddaraliðsins enska
og fleiri trúnaðarstörf voru honum
falin.
Á þessunx árum stofnaði lxann
skátalireyfinguna og árið 1910 baðst
hann lausnar úr lierþjónustu til þess
að geta helgað skátunum alla krafta
sina. Breiddist lireyfingin til allra
menningarlanda, fyrst meðal pilta en
síðan mynduðust kvenskátafjelögin
víðsvegar um lieim. Ilefir skátalireyf-
ingin hvarvetna átt miklum vinsæid-
um að fagna nenia í einræðislöndum,
sem eðli sínu samkvæmt hafa ými-
gust á öllum alþjóðlegum fjelagsskap,
er beinist að því að efla bræðraþel
þjóðanna.
Baden-l’owell varð sir árið 1921 en
aðlaður árið 1929 undir nafninu Lord
Baden-Powell of Gilwell og hlaut auk
þess fjölda heiðursmerkja, síðast nú
fyrir þremur árum, er hann var
sæmdur hinni sjaldgæfu „Order of
Merit“. Frú hans, sem er miklu yngri
en hann, hefir einkuin lálið starfið
meðal kvenskáta sig niiklu skifta og
verið heiðruð fyrir. Ýnisar bækur urn
skátahreyfinguna og eflingu hennar
liggja eftir lávarðinn, þar á meðal
„Rovering“, sem konx úl árið 1922.
Hingað til landsins komu þau hjón-
in i ágúst 1938 á skipinu Orduna,
ásamt Heather dóttur sinni, sir
Percy Everett yfirforingja og á 5.
hundrað skátaforingja eldri og yngri.
Viðstaðan var ekki löng, en þó fór
flest fólkið til Geysis. Lord Baden-
Powell treysti sjer ekki i land, cn
ýmsum gafst kostur á að sjá liann
og lieyra um borð í Orduna, morg-
uninn sem skipið fór. Lady Baden-
Powell tók hinsvegar þátt í landferð-
inni og var allstaðar lirókur alls
fagnaðar. Eiga islenskir skátar liinar
bestu endurminningar um komu þess-
arar fríðu fylkingar og fræga manns,
skátahöfðingja veraldarinnar, frá
þessu sumri.
Lord Baden-Powell var samkvæmt
ósk sinni greftraður suður i Kenya.
En urn allan heim hafa minningarat-
hafnir farið fram í tilefni af andláti
þess mikilmennis, sem tókst að vekja
drengskap og dáð hjá miljónum luig-
linga.