Fálkinn - 17.01.1941, Page 7
F Á L K I N N
7
Ameríkumenn eiga harðskeyttari
glæpamenn enaðrar þjóðir; þar gera
bófarnir sjer það að leik, að ganga
inn í bankana um hábjartan daginn
og hirða sjóðinn meðan þeir miða
skammbyssunum á gjaldkerann, og
aka síðan á burt í bifreið, sem stend
ur fyrir utan. En afleiðingin af
þessu hefir orðið sú, að peninga-
stofnanir eru nú gerðar rammbyggi-
legar úr garði en áður, sjerstaklega
þær, sem ætlaðar eru til geymslu.
Þannig hefir nýlega verið bygt hús
í New York, sem ætlað er til að
geyma í því ómótað silfur. Er
geymslan öll neðanjarðar og eins og
sterkasta vígi. Mynditi t. h. sýnir
þegar verið er að flytja silfurbarr-
ana ofan í kjallarann. Dáti með
vjelbyssu stendur yfir burðarmönn-
unum, ef ske kynni að þeim dytti i
hug að hlaupa burt með silfrið.
Myndin að neðan er úr ítalskri
vopnaverksmiðju. Þar er sagt nóg
að gera um þessar mundir, og dugar
ekki til.
Danir eru nú farnir að láta gera
blóðrartnsóknir á hermönnum sín-
um. Ástæðan lil þess er sú, að i
heimsstyrjöldinni fórust tugir þús-
unda af hermönnum, vegna þess,
að ekki var kunnugt um í lwaða
blóðflokki þeir voru. En hafi maður
orðið fyrir blóðmissi, svo að veita
þurfi í liann blóði úr öðrum manni,
verður það blóð að vera sama flokks
og það, sem sjúklingurinn hefir. Nú
er það skráð á nafnmerkið, sem her-
maðurinn hefir um hálsinn, hvaða
blóðflokk hann hafi, og er þá fljót-
legra að sjá, hverskonar blóði má
dæla í hann. Myndin að ofan sýn-
ir blóðrannsóknina.
1 Newark i Bandaríkjunum hafa
kaþólskir menn nýlega komið sjer
upp veglegri dómkirkju, sem verð-
ur erkibiskupsdómkirkja kaþólskra
þar i ríkjunum. Og skömmu eftir
að kirkjan var fullgerð var vígður
þar nýr erkibiskup með mikilli
viðhöfn. Myndin til vinstri sýnir
biskupinn, er hann kemur út úr
kirkjunni að lokinni vígslu. Kona
úr söfnuðinum gengur til biskups-
ins og kyssir hringinn á fingri hans.