Fálkinn - 14.04.1944, Síða 14
14
F Á L K I N N
Fleiri og fleiri
kaupa nú daglega
í gróðurhús og vermireiti.
15 metra langur sfrangi, 91 cm. breiður send-
ur fritt hvert á land sem er
fyrir aðeins kr 125.00.
Tryggið ydur SÓLGLER
meðan birgðir endast.
ii Gísli Haldórsson h. f.
Austurstr. 14. — Slmi 4477.
»♦♦♦♦♦♦♦»»»♦♦»♦♦♦♦♦♦♦»♦»♦»♦♦♦♦»♦♦»»♦»♦»♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦»♦
Úr leikskólanum í Tjarnarborg.
,,SUMARGJÖF“.
Frh. af bls. 3.
um ýnisra heimila, en aö öSru leyti
verður fjelagið að sjá sjer farborða
með fjársöfnuninni á sumardaginn
i'yrsta, tillögum fjelagsmanna (þeir
eru 800 en fjelagsgjaldið mjög lágt),
og gjöfum frá ýmsum velunurum og
styrk ríkis og bæjar.
-----Það var frú Jóna Sigurjóns-
dóttir, sem stjórnaði dagheimili fje-
lagsins fyrstú árin, siðar með ung-
frú Þórliildi Helgason. Hefir fjelagið
jafnan verið heppið í vali starfs-
fólks síns og nú eru forstöðukon-
urnar allar sjerlærðar og hafa feng-
ið bestu undirbúningmentun sem
völ er á erlendis.
-----Á þriðjudaginn hafði stjórn
„Sumargjafár" boð inni í Tjarnar-
borg fyrir fjölda gesta. Þar gerði
formaður grein fyrir starfsemi fje-
lagsins undanfarin 20 ár, og for-
stöðukona heimilisins, ungfrú Þór-
hildur Ólafsdóttir veitli ágætar góð-
gerðir i leikstofum hússins niðri.
Jón Jósteinsson skýrði frá næsta
barnadegi og Steindór Björnsson
æskti samvinnu við íþróttafjelag
Reykjavíkur og bauð fram aðstoð
barnastúknanna þann dag. Frú Að-
albjörg Sigurðardóttir þakkaði for-
stöðukonunum fyrir starf þeirra
fyrr og síðar, og kvað jiað með
svo miklum myndarbrag, að for-
eldrum jjætti vænt um að vita börn
sín í umsjá Sumargjafar. —- Kvæði
barst fjelaginu frá einum velunnara
sinum. Og frá Bandalagi kvenna
barst gjafarbrjef fyrir 3000 króhum
i Vöggustofusjóð Ragnlieiðar S.
ísaksdóttur, og er gjöfin tii minning-
ar um frú Kristínu Simonarson og
frú Camillu Bjarnason, sem báðar
áttu þátt i stofnun fjelagsins „Sum-
argjöf“ eins og áður getur. Hefir
Bandalagið áður gefið fjelaginu jafn-
háa uppliæð. í stjórn Bandalagsins
eru frúrnar Aðalbjörg Sigurðardótt-
ir, Guðrún Pjetursdóttir og Svan-
fríður Hjartardóttir.
Stjórn „Sumargjafar“ skipa nú:
ísak Jónsson, sem verið iiefir for-
maður síðustu 4 árin, en alls setið
í stjórn í 15 ár, síra Árni Sigurðs-
son ritari, meðlimur stjórnarinnar
í 10 ár, Jónas Jósteinsson, gjald-
keri, Aðaibjörg Sigurðardóttir,
Ragnliildur Pjetursdóttir, Arngrím-
ur Kristjánsson (í stjórninni í 16
ár) ög Helgi Elíasson.
Þegar litið er yfir það, sem „Sum-
argjöf' hefir afrekað á undanförn-
um 20 árum, er það ósk allra sem
til þekkja, að starf henar megi
dafna og vaxa. Því að verkel'nið er
fagurt og mikið, og þörfin fyrir
þetta starf fer s'yaxandi.