Fálkinn - 02.06.1944, Síða 1
DALSFOSS í VATNSDALSÁ
Sunnan af einni inestu heiði norðanlands, Grímstunguheiði falla kvíslar margar til norðurs og sameinast svonefndum Forsælu-
dalskvíslum. Þessar kvíslar allar myiula Vatnsdalsá, er dregur nafn af dalnum, sem hún rennur um, hinum sögufræga dal Ingi-
mundar gamla. Það eru eigi aðeins Húnvetningar heldur og margir aðrir, sem telja Vatnsdalinn einn fegursta dal á landi hjer
og hafa þeir mikið til síns máls, því að bæði T,ru fjöllin á báðar hliðar dalsins tignarleg og dalurinn sjálfur gróðursæll. Og eigi
dregur hin tæra bergvatnsá úr unaði hans. Dalsfoss er syðsti fossinn í dalnum og fellur fram af bergstalli skamt fyrir sunnan
syðsta bæinn í Vatnsdal, en það er Forsæludalur. En Vatnsdalurinn sjálfur er um 30 km. langur, frá botni og norður í Þingið.
Myndina tók Einar Eymann.