Fálkinn - 08.02.1946, Side 1
6. | Reykjavík, föstudaginn 8. febrúar 1946. XIX.
nkIðankáli vikiagn
Vm þetta leyti árs eru það ekld skemmtistaðirnir i bænum, kvikmyndahúsin og dansstaðirnir, sem Reykjavíkur-æskan
leitar mest á sér til afþreyingar, heldur skemmtistaðirnir á Hellisheiði, sldðaskálarnir og brekkurnar umhverfis þá. Um
seinustu helgi voru t. d. fleiri hundruð ungra Reykvíkinga á skíðum þarna efra, enda var veður hið ákjósanlegasta og færi
sæmilegt. Flest af þessu fólki hafðist við í hinum myndarlegu skálum, sem íþróttafélögin lxafa á síðari árum reist sér í
námunda við Hengilinn. — Myndin hér að ofan sýnir einn þeirra, Víkingsskálann, sem stendur í Sleggjubeinsskarði og
kemur sér þvi vel sem hvíldarstaður fyrir þá, sem ætla í Innstadal. — Ljósm.: Guðmundur Iiannesson.