Fálkinn - 08.02.1946, Page 14
14
FÁLKINN
MANNS BARN.
Framhald af bls. 9.
„Hann er úr sömu sveit og ég,
hann heitir Levka Osia. Við
fórum saman að heiman.“
Hann sneri sér undan. Skyrtu-
garmurinn hans var votur af
tárum, og stóru svörtu augun
voru skær. En Skorzov leit á
liann og varð glaður.
„Þú ert bjáni, Grigori,“ sagði
hann. „Þú ert eins og skógar-
hind, hversvegna komstu ekki
með Levka heim með þér, það
var nógur matur til handa ykk-
ur báðum. —- Þið getið verið
hjá mér og lært eitthvað. Hvar
er Levka?“
Grisjka leit upp.
„Hann fór til sveltihópsins
og bað um að fá að verða sam-
ferða. Eg átti að bíða hérna á
meðan.“
„Við slculum fara og leita
liann uppi. Er það vegna Levka,
sem þú seldir stígvélin?“
„Auðvitað,“ sagði Grisjka al-
varlegur. „Hann er frá sama
stað og ég.“
Þeir stóðu upp og gengu sam-
an meðfram ánni. Við stóra
timburbryggju hitti Grisjka vin
sinn. Levka liafði fengið leyfi
til að slást í sveltihópinn. Hann
leit fyrirlitlega á Skorzov.
„Við förum ekki,“ sagði Grisj-
ka við hann, „við verðum hér,
við höfum fengið atvinnu. Mörg
þúsund á vergangi en aðeins
nokkur hundruð komast lífs
af,“ þuldi liann orðrétt eins
og Skorzov hafði sagt.
Þeir settust allir þrír til að
taka ákvörðun. Loks tókst sam-
komulag með þeim þarna á
árbakkanum og Levka kom
með þeim heim. Þeir urðu
samferða upp í bæinn, allir
þrir og töluðu hægt, eins og
fullorðnir menn, þó að Levka
væri ekki nema níu ára.
„Guð gefur okkur áreiðan-
lega gott veður,“ sagði Levka.
„Það er aumi vandinn með
þennan eilífa þurk hérna.“
Slcorzov leit á skinið and-
litið á Levka og hvarmarauð
augun og sagði:
„Á morgun skal ég láta lclippa
hárið á þér, mannsbarn. Hvað
ætli þú hafir við sitt hár að
gera i þessum hita? Heyrðu,
ert þú að leita að honum föður
þínum?“
Levka svaraði með þyrkings-
legri rödd:
„Eg á engan föður!“
Neonlampinn,
sem notaður er við myndaútvarp,
er svo nœmur og fljótvirkur aS
hægt er aS kveikja og slökkva á
honum 500.000 sinnum á sekúndu.
Huep íann:
EIMREIÐARNAR?
Sú gífurlega bylting í samgöngu-
málinu, þegar eimknúnar járnbraut-
ir komu til sögunnar, hófst fyrir
120 árum. En þaS aS láta vagna
renna á teinum er miklu eldra.
Rómverjar gerSu spor úr liöggnum
steinum, sem þeir létu vagna renna
á, og sömuleiöis úr timbri, og í
Englandi var snemma farið aS nota
járnteina fyrir vagna. Hér á landi
sjást víSa í kaupstöðum brautar-
teinar frá bryggjum upp aS versl-
unarhúsunum, en mannafl var aS
jafnaSi notaS til að hreyfa vagn-
ana. — Járnbrautarteinarnir í Eng-
landi voru fyrst notaSir kringum
námugígina. Hestar voru notaðir
til aS draga kolavagnana, og járn-
brautir voru einnig niSri i námu-
göngunum, en eftir aS gufuvélin
fannst, var lmn víSa notuð til að
draga vagna. Var þá haft spil við
gufuvélina, sem var óhreyfanlegt,
en vagnarnir dregnir á streng. En
þegar talað er um járnbrautir nú
á dögum er jafnan átt við að vagna-
lestin sé dregin af eimreið á hjól-
um. George Stephenson (f- 1781,
d. 1848) er almennt talinn höfund-
ur eimreiðarinnar, en ýmsir höfðu
sýslaö um þetta á undan honum.
Fyrsti maðurinn, sem smíðaði vagn
er gekk fyrir gufuorku var Frakk-
inn Joseph Cugnot. Hann smiSaði
gufuvagn sinn ellefu árum áður
en Stephenson fæddist, eða 1770.
í reynsluferðinni ók þessi vagn á
múrvegg; taldi fólk því að hann
væri glæframaSur og missti áliuga á
málinu. Næstur var William Mur-
dock, sem bjó til ofurlítinn gufu-
vagn, sem liann gat borið undir
hendinni. Eina af fyrstu tilraunum
sínum gerði hann á fáförnum vegi.
Setli vélina af stað, en hún fór með
svo miklum harða, að Murdock gat
ekki fylgt henni. Hvarf vélin út veg-
inn. Innan skamms lieyrði hann
óp mikið úr fjaidægð. Það kom
á daginn, að þetta var presturinn
á staSnum, sem liafði mætt þessu
hvæsandi og eldspúandi óféti, og
liélt hann, að þetta væri djöfullinn
sjálfur, sem hefði tekið á sig þessa
skrítnu mynd. — Gufuvagnar Cug-
nots og Murdocks voru ætlaðir fyr-
ir venjulega vegi, eins og bifreiðar,
en ekki fyrir teina. Fyrsti maður-
inn, sem tengdi saman gufuvagn
og teina, hét Richard Trevithick,
hann smiðaði eimreiS fyrir teina
árið 1803. En úrslitin komu með
George Stephenson. Hann var af
fátæku foreldri, faðir hans námu-
maSur skamt frá Newcastle. George
varð vélamaður. Árið 1814 smíðaði
hann fyrstu eimréið sina, en hún
reyndist illa, og liélt hann þá áfram
tilraunum og bjó til nýjar gerðir.
Árið 1825 var fyrsta járnbrautin
samkvæmt li3ns tillögum lögð milli
Stockton og Darlington. Ekki fór
lestin hart yfir. Ríðandi maður
var látinn vera á undan til að vara
fólk við ferlíkinu þegar það kæmi,
og reka fólk og fé af teinunum.
Auðvitað sætti uppgötvun Stephen-
sons miklum andmælum. „Ilvað
mundi ske, ef eimreiðin yðar mætti
kú á sporinu,“ var hann spurður.
„Það væri leiðinlegt fyrir kúna,“
svaraði hann. Sigur Stephensons var
unninn, þegar járnbrautin var lögð
milli Manchester og Liverpool. Var
efnt til samkeppni um bestu eimreið-
ina á þessari braut, og komu fram
5 tilboö. VerSIaunin voru veitt eim-
reið Stephensons „The Racket“
en næstu verðlaun fékk eimreið
sænska hugvitsmannsins Johns
Ericsson. Upp frá þessu var þýð-
ing járnbrautanna viðurkennd og
þær breiddust óðfluga út i Eng-
landi og öðrum löndum. Varð
Stephenson ráðunaulur ýmsra járn-
brautafélaga. í Austurríki kom fyrsta
járnbrautin 1831, í Frakklandi
1837, í Danmörku 1847 og í Nor-
egi 1854.
Svör við 7 spurningum.
. .1. Friðriks VIII. Danakommgs, 2.
San Francisko - Oakland brúin hún
er 6A00 metra löng. 3. Jón Thor-
oddsen, 4. 12. des. 1711, 5. 50 kg.
6. 3 klst., 7. Feruccio Parri.
Til viðreisnarstarfsins. — Nú hefir
franska póststjórnin gefið út ný
frimerki með mýndum frá þeim
borgum Frakklands, sem verst urðu
úti í stríðinu. Gróðanum af sölu
frimerkjanna verður varið til end-
urbyggingar þessara borga. Hér sjásí
frímerki með myndum frá Dun-
kerque, Suint Malo og Caen.
í Tennessee
i Bandaríkjunum eru sumar sveitirn-
ar mjög strangar hvað allt velsæmi
snertir. Þar er til dæmis barna-
kennurum bannað að dansa.
Gagnstætt viÖ rúmföt ættu menn
að sofa á raunum sinum, áður en
þeir viðra þær.
Gömul negrakerling var spurð
að því, hvernig hún færi að því
að halda sér svo unglegri, og liún
svaraði: „Þegar ég vinn, þá vinn
ég vel; þegar ég sit, þá sit ég illa;
og þegar ég hefi áhyggjur, l)á fer
ég að sofa.“
-— Það má ekki
miklu muna að \
þetta ameríska
flugvirki fari á
kaf í snjó.