Fálkinn - 21.03.1947, Side 5
FÁLKINN
5
hvorki til flotamálaráðuneytis-
ins eða á prent, því að fjórum
dögum síðar gerðust tíðindi, sem
allt annað varð að víkja fyrir.
Núna í vetur kom ég aftur til
Sóla. Yöllurinn var gjörbreyttur,
eins og geta má nærri, því að
á stríðsárunum liöfðu Þjóðverj-
ar lagt 400 milljónir i að stækka
völlinn og byggja þar vélaskála
og loftvarnarbyrgi. Norðmenn
liafa sjálfir borgað þessa pen-
inga, og mannvirkin liafa vafa-
laust orðið um fjórum sinnum
dýrari en þau liefðu orðið á
friðartímum. Raunverulega kost-
ar flugvöllurinn líklega álíka
mikið og Keflavíkurflugvöllur-
inn.
Flugvellirnir eru tveir, nfl.
stóri flugvöllurinn, sem venju-
lega er kallaður Sóla, og annar
minni flugvöllur rétt lijá, Forus
flugvöllurinn svonefndi, gerður
upp úr veðreiðabraut. Á upp-
drættinum sem hér fylgir, sést
grannur skákross, sem sýnir
gömlu rennibrautirnar frá þvi
fyrir stríð (þær hafa þó verið
lengdar), en efst á myndinni
sést botninn á Hafursfirði með
flughöfninni.
Breiðu brautina, sem sést skó-
halt þvert yfir uppdráttinn,
gerðu Þjóðverjar á stríðsárun-
um. Hún er 120 metra breið,
en gei't er ráð fyrir að lengja
liana og er framlengingin sýnd
með skástrikum. Eins og sakir
standa eru tvær af þeim þrem-
ur brautum, sem nefndar hafa
verið, 1800 metra langar, en ein
rúmir 2000 metrar, og styrk-
leiki þeirra er svo mikill, að
þær þola þyngstu flugvélar, sem
enn hefir komið til mála að
nota á Noðurlandaflugi, nfl.
„stratocruisers". Þá flugvélateg-
und á S. A.. S. i pöntun en notar
nú „Skymaster“.
Til þess að komast í fyrsta
flokk flugvalla, (samkvæmt regl-
um Picao) þurfa að vera þarna
, tvæi* brautir ekki minni en 2500
metra langar. Þessvegna er á-
formað að lengja breiðu braut-
ina til vesturs upp i 2500 metra
og auk þess að gera nýja braut
frá suðri til norðurs, og er hún
sýnd með skástrikaðri línu á
uppdrættinum. Sú braut nær að
heita má norður að flugliöfn-
inni. Þetta verður gert hið bráð-
asta svo framarlega sem S. <A.
S. velur Sóla fyrir aðallending-
arstað á Norðurlöndum. Þessi
mannvirki verða eigi sérlega dýr,
það er áætlað að þau kosti um
6 milljónir króna.
En það er fleira, sem vanlar
á Sóla. Þar vantar húsakynni og
þar vantar vélaverkstæði. Flug-
skýli þau, sem eru á vellinum,
eru ófullkomin. Og ef þarna á
að verða flugstöð fyrir Atlants-
hafsflug verður að reisa þar full-
komna afgreiðslustöð og tollbúð,
veitingasali og gistihús. Eins og
stendur er Sola Strandhotel not-
að fyrir þá ferðamenn sem gista
á Sóla. Það gistihús er eiginlega
sumarhótel og fullnægir ekki
þeim kröfum, sem gerðar eru til
flughafnagistihúsa. - Og þarna
þarf fullkomna vélsmiðju, sem
getur tekið að sér allar hugsan-
legar viðgerðir á vélunum. Alls
þarf þvi að verja nokkrum tug-
um milljóna til umbóta á Sóla,
en það er talið vist að þetta fé
borgi góða vexti, bæði beinlínis
og óbeinlínis.
Því að flugið dregur peninga
inn i landið og veitir atvinnu.
Ef allt kemst í fullan gang á
Sóla verða það að minnsta kosti
2000 manns, sem hafa beina at-
vinnu við flugvöllinn. Norð-
menn þykjast geta lesið það út
úr framtíðinni að á mestu árum
margfaldist flugumferðin yfir
Atlantshafið, og þau keppa að
því að verða í þjóðbraut í sam-
göngunum milli Ameríku og
Norðurlanda og Rússlands.
Það sem Sóli hefir einlcum til
síns ágætis er veðráttan. Þar mó
heita að aldrei sé þoka og oft-
ast nær hægviðri. En þokan er
versti óvinur flugmanna. Og í
mai’gra mílna umhverfi er eng-
in hæð hærri en 135 metrar.
Fyrir samgöngur suður á bóg-
inn er lega Prestwick og Kast-
rup landfræðilega hentugri, en
þessar stöðvar hafa þegar svo
mikla umferð, að varla er á það
bætandi, jafnvel þó að þeir flug-
vellir væru stækkaðir að miklum
mun. Frá Sóla ganga nú þegar
daglega flugvélar til Bergen og
Norður-Noregs, til Prestwick og
London, til Kaupmannahafnar
og til Osló og Stokkhólms. Og
margt virðist mæla með því, að
íslenskar flugvélar leggi ]>angað
leið sína þegar fram í sækir og
noti Sóla sem viðkomustað fyrir
alla farþega til Norðurlanda. -
Fyrir farþega til Noregs og Svi-
þjóðar er það t. d. mikill munur
að geta flogið um Sóla í stað
þess að fljúga til Prestwick og
þaðan til Kaupmannahafnar. -
Sóla-leiðin ætti að geta orðið
talsvert ódýrari.
-----Síðan stríðinu lauk hef-
ir Sóla-stöðin verið rekin af hern
um. Nú hefir rikið ákveðið að
taka völlinn og annaðhvort reka
hann sjálft eða leigja hann út.
Það verður ákveðið i þessari viku
hvort S. A. S. og amerísk flug-
félög velja Sóla fyrir aðallend-
ingarstað eða ekki.
— — Vesturlands-flugdeild
hersins (Luftkommando Vest)
Framhald á bl. Í4.
, s . ‘
aBpftBSp::
lllÉiil
Efst: Flugstjórinn á Sóla fylgist
með flugvélinni, sem er að koma
frá London. Á svörlu töflunni eru
miðar viðvikjandi þ.eim vélum,
sem eru á leiðinni til vallarins.
Neðar: Símritarínn fær sér sígar-
ettu í hléinu milli sendinganna.
Neðst: Varðturninn á Sóla. Þar
er bœði veðurstofa og ritsímastöð,
en á neðstu hæð lítill afgreiðslu-
salur og skrifstofur þeirra flug-
félaga, sem halda uppi flugi um
völlinn.