Fálkinn - 21.03.1947, Side 7
FÁLKINN
7
Mountbatten á skíðum. — Louis
Mountbatten, lávarður, sem nú hefir
veriff skipaður varakonungur í Ind-
landi í staff Wavells lávarðar, dvald-
ist um lirið í vetur í Sviss. Þar
lærði hanan að standa á skiðum og
renna sér spottakorn. - Ilér sést
hann með konu sinni á leið til
skíðabrekkanna, dreginn af „skíða-
lyftunni".
Norsk gestrisni. — 45 skólabörnum frá Kaupmannahöfn var
í velur boðið til hálfsmánaðar dvalar á Rondablikk háfjalla-
hótelinu í Noregi. Myndin er tekin af hópnum um borð í
skipinu, sem flutti þau til Osló.
Með bíladellu! — William, elsti son-
ur hertogahjónanna af Gloucester, er
þégar búinn að fá bíladellu, þótt
ungur sé. Ilann kærir sig ekki inn
barnabíla, heldur vill hann hand-
fjatla og skoða í krók og kring bil-
inn hans föður síns. Hér er snáðinn
að bóna bilinn í Devenport á Tas-
maniu, þar sem fjölskyldan dvald-
ist um hríð.
Frá veðurathuganastöðinni í Thule
á Norður-Grænlandi.
Frá Haifa. — Skip þetta hafði irmanborðs hóp Gyðinga, sem
ætluðu að flytja búferlum til Palestinu, en það var stöðvað af
breskum herskipum og farið mað það til Haifa, þar sem Gyð-
ingarnir voru settir í fangelsi. fyrst um sinn.
------
Eru kossar hættulegir? — Um þetta
hefir margt verið ritað og rætt, og
margir merkismenn hafa bannsung-
ið kossana ngknt og heilagt. En hvað
um þ.að, þá verður varla hægt að
gera kossaverkfall i bráðina. —
Ameriskur visindamaður réðst ekki
alls fyrir löngu á kossaflens og
taldi það smitberandi með afbrigð-
um. Þetta kom skrambi illa við
stúdentana i Washington, og átta
þeirra ákváðu að afsanna þessa fá-
sinnu. Þeir héldu til visindastofnun-
ar nokkurrar og gerðust af fúsum
vilja tilraunadýr við rannsóknir
á þessu. Myndin sgnir stúdent og
stúdinu kyssa glerplötu, sem vætt
hefir verið i næringarvökva fyrir
bakteríur. Niðurstaðan varð sú, að
ýmsar bakteriur komu af vörunum
í vökvann, og stúdentarnir höfðu
miklu minna af þeim en stúdinurn-
ar og stafaði það af fegurðarsniyrsl-
unum. Margir kossanna voru þó
ekki smitberandi.
Sírenur Kaliforníu. — Þegar við
heyrum „sírenur'* nefndar, þá verð-
um við að minnast þess, að það
getur táknað fleira en hin hvínandi
öskurtól, sem boðuðu yfirvofandi
hættu á stríðstímunum. Samkvæmt
grískum goðsögnum og ævintýrum
voru „Sirenur" lika undraverur i
kvenmannsliki, sem sátu á kletta-
snösum og seiddu sjómennina til
strandar með töfrasöng sínum, en
þar beið dauði og óhamingja þeirra.
Myndin sýnir kalifornískar blómu-
rósir leika listina eftir, en við skul-
um vona að vel fari fyrir piltunum
sem þær kunna aff seiða til sín.
Sindbað sæfari. — Hér sést Douglas
Fairbanks jr. í hlutverki Sindbaðs
sæfara í litkvikmynd frá Hollywood.
Tage Erlander forsætisráðherra Svia
síðan Per Albin leið, er maður sem
fremur lítið hefir borið á út á við
i stjórnmálum Svia undanfarið. —
Hann er mjög hlédrægur að eðlis-
fari og lét lítið að sér kveða á
mannamótum, en innan flokksins
starfaði hann manna mest og átti
miklum vinsældum að fagna, enda
tók flokkurinn hann fram yfir kunn-
ari menn, sem gegnt höfðu miklum
virðingarstöðum.