Fálkinn - 12.09.1947, Page 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Barikastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSpre/ií
SKRADDARAÞANKAR
»Bjarni
riddaricc
Fyrsti nýsköpunartogarinn, sem
fellur í hlut HafnarfjarSar, kom
þangaS um síðustu helgi. Er hann
af söniu gerS og Ingólfur Arnar-
son, 642 smál. brúttó. Fyrirkomulag
á vistarverum skipsmánna er þö eigi
hiS sama.
„Bjarni riddari", sem lieitinn er
eftir Bjarna Sívertsen kaupmanni
í Hafnarfirði, er smíðaSaur i Sell/y
og fór reynsIuferS sína þann 19.
ágúsK í sumar.
Skipstjóri hefir veriS ráSinn
Baldvin Halldórsson, fyrrum skip-
stjóri á Óla GarSa. 1. stýrimaSur
verSur Oddur Kristjánsson og í.
vélstjóri FriSjón GuSlaugsson.
Það er útgerðarfélag'ið Akurgerði,
sem á togarann, og framkvæmda-
stjóri er Ásgeir Stefánsson.
Á laugardaginn, eða sama dag
og skipið kom, var siglt með um 500
boðsgesti út á „flóa“, og næsta
dag var togarinn ahnenningi til
sýnis.
„Bjarni riddari“ kemur til Hafnar
fjarðar.
Yfiriit Hagstofunar, uin innflutn-
inginn til íslands á árinu sem leið,
er fidlkomin raunasaga þjóðar, sem
kann sér ekki hóf. Fjögur hundruS
fjörutíu og þrjár milljnir keyptu ís-
lendingar fyrir á því ári, en sehlu
fyrir 319.7 milljónir. Verslunarhall-
inn var 133 milljónir, eða rúmlega
þúsund krónur á íbúa.
Sextugfalt stærri þjóð en við fór
i vetur að stríðsskammta kaffi og
setja á innflutningshömlur, vegna
þess að lnin hafði haft 800 milljón
króna tekjuhalla. Að skammta kaffi
er óvinsælt, en Stjórnin gerði það
samt, og lþgleiddi margskonar inn-
flutningshömlur. Þessi sama þjóð
stendur á gömlum merg, er marg-
falt ríkari en íslendingar og hefir
góðan og vissan markað fyrir það,
sem hún getur framleitt handa öðr-
um löndum næstu ár. Svo góðan að
hún getur ekki fullnægt eftirspurn-
inni.
Það er engan veginn einlilýtt ráð
að nota innflutningshömlur til að
halda við þeim vershinarjöfnuSi,
sem þjóðfélagið krefst. Þær eru ó-
vinsælar og verða oft til jiess, að
breyta rás framleiSslunnar á óeðli-
legan liátt. En eins og stendur á
ísland verðmæti í sjónum, sem eru
svo auðfengin, að þjóðin ætti að
vera samkeppnisfærust allra þjóða
við Atlantshaf um fiskafurðir — ef
dýrtíðin liefði ekki endaskifti á öll-
um lieilbrigðum atvinntdiögum.
Þau verkefni, sem mest kalla að,
eru að auka innlendu framleiðsl-
un'a, á samkeppnisfærum grund-
velli, draga úr innflutningnum og
lækka dýrtiðina. Það kostar 129.045
krónur að byggja samskonar hús
núna og kostaði 33.283 fyrir stríð-
ið. Og vísitala sands og malar hef-
ir stigið um 714 stig! Það er hæsta
visitala byggingarkostnaðarins. „Erf-
iSisvinna og akstur er kominn í
næsthæstu vísitöluna: 529 stig, en
ekki verður séð hvort sandurinn og
mölin eru rciknuð með flutningi að
húsinu, eða á staðnum — í „nám-
unni“. En hvort heldur er, þá er
ættjörðin orðin dýr með þessum
nýja taxta. „Dýr mundi Hafliði a!l-
Ur“ ef selja ætti allan sand og inöl
íslands í þessu góðæri hins ólíf-
ræna.
/'v:
Kæliskipið
»Vatnajökull«
Um svipaS leyti og nýsköpunar-
togararnir tveir komu liingað, kom
kæliskipiS „Vatnajökull frá Stokk-
hólmi. Það er 1100 smál. brúttó að
stærð og getur flutt um 800 smál.
af fiski. Eigandi er hlutafélagið
Jöklar.
Skipstjóri er .Bogi Ólafsson, 1.
stýrimaður Jón Þorvaldsson og 1.
vélstjóri Jón Otti Jónsson. Áliöfn
verður skipuð 19. mönnum.
»Elliðaey«
T. v. sést ,,Elliðaeij“ si(ila inn á höfnina í Veslniannaeijjiun. T. h.
Árni Guðpmndsson, forseti bæjarstjórnar, býður skipið velkomið.
Vestmannaeyingar hafa nú eins
og Hafnfirðingar fengið fyrsta ný-
sköpunartogara sinn. Heitir hann
„Elliðaey“ og er eign Bæjarútgerðar
Vestmannaeyja. Hann er 649 smál.
brúttó, og 177 fet að lengd. Er hann
Jivi stærstur Jieirra nýsköpunar-
togara, sem ennþá hafa komið til
landsins. Skipstjóri verður Ármann
Friðriksson, 1. stýrimaður Árni
Finnbogason og 1. vélstjóri Her-
mann Hjálmarsson.