Fálkinn - 12.09.1947, Page 5
F Á L Ií I N N
5
ið prýðilega. Við spiluðum fyrst
lengst af, en fingurnir urðu svo
stirðir, að við gá'tum það ekki
lengi. Og svo þegar pakkarnir
féllu niður allt í kringum okkur,
þá var það alveg eins og þegar
jólasveinninn kemur.“
Svo fór nóttin í hönd. Björg-
unarmennirnir héldu sig i snjón
um fyrir utan flugvélaskrokk-
inn, sem nú var næstum fennt
yfir, en flugvélaráhöfnin og far-
þegarnir komu sér fyrir inni.
Þessa einu nótt þjáðust Sviss-
lendingarnir meira af kali en
Ameríkumennirnir gerðu allan
tímann. Sumir þeirra röltu
meira að segja um í snjónum
alla nóttina og börðu sér til
þess að forðast kuldabólguna.
Aðrir gerðu sér snjóhús eða
lögðust í skjól við flugvélar-
skrokkinn. Þeir, sem verst voru
á sig komnir, kveiktu bál úr
kassafjölunum, sem voru utan
um vistirnar, sem þeir höfðu
meðferðis, og ornuðu sér þar.
Næsta morgun liófst svo ferð-
in niður. Ákveðið var að fara
aðra leið, en björgunarleiðang-
urinn liafði komið. Ætlunin
var að fara til Innerkirchen,
horgar, sem er 3 km. suð-aust-
ur frá Meiringen, en ferðin upp
hafði verið farin frá Rosenlaub,
sem er þorp beint í suður frá
Meiringen og við rætur Wetter-
liorns, næsta tindjöfurs við
Schreckhorn. Leið þessi var tal-
in öllu betri, en kostaði þó
meira klifur, því að 900 metra
hátt klettabelti er á leiðinni. —
Hópnum var nú skipt í smærri
flokka og hverjum farþeganna
voru fengnir gæslumenn. Síðan
var haldið af stað niðúr.
En þá var það, að undarleg-
asti atburðurinn í þessu öllu
átti sér stað. Rétt yfir höfðum
þeirra kom í Ijós flugvélarkrýli,
búin bæði lijólum og skíðum.
f henni voru Hitz, majór í sviss-
neska flughernum, og Snave-
ley hershöfðingi i ameríska
flughernum. Storch-flugvélin
sveimaði um stund yfir hópn-
um, sem nú var kominn kíló-
metersveg frá Dakota-vélinni.
Flugmaðurinn kastaði niður
niður bréfi, þar sem hann
spurði, hvort hann ætti að gera
lendingartilraun. Svarið var
gefið frá jörðu með merkjum,
og það var á þá leið, að slíkt
skyldi hann ekki láta sér koma
til hugar.
Hitz var nú samt á annarri
skoðun. Hann var viss um að
aðstæðurnar væru ákjósanleg-
ar. Það var vindlaust að heila
mátti og hann sá greinilega að
jökullinn var þarna hallalítill
og sléttur. „Eg ákvað að virða
aðvörunina að vettugi", sagði
hann siðar, „og ég lenti á ca.
300 metra löngum spöl. Það var
mjög auðvelt. Eg hefi lent 200
sinnum áður uppi á fjöllum".
Síðan tóku Hitz majór og
annar svissneskur flugmaður,
kapteinn Hug, á annari Storch-
flugvél, að fljúga fram og til
haka milli Meiringen og hóps-
ins uppi á jöklinum. Á 6 klukku
tímum fóru þeir 8 ferðir fram
og aftur og fluttu alla þá, sem
í flugvélinni höfðu verið til
flugvallarins í Meiringen. Hug
er engin viðvaningur í flug-
mennsku fremur en Hitz. Hann
hefir meira að segja lent uppi
á háfjöllum 2000 sinnum til
þess að bjarga fólki, eða 10
sinnum oftar en Hitz.
Sá fyrsti, sem fluttur var í
flugvélinni ofan af jöklinum
var Loyal Haynes hershöfð-
ingi. Hann var að vísu ekki
særður, en mjög aðframkominn
af þreytu. Síðast var farið með
Ralph Fate, flugmann. Hann
var reifaður um höfuðið vegna
meiðsla þeirra, sem hann lilaut
við lendinguna. Móðir hans,
sem var meðal farþeganna,
þoldi vosbúðina ekki vel og
var talsvert illa lialdin, þegar
hún kom til Meiringen.
Þannig lauk þessari marg-
umtöluðu björgún svissnesku
flugmannanna. — Við Brienz-
vatnið lienda * Svisslendingar
ennþá gaman að öllu tilstand-
inu í Ameríkönunum í sam-
bandi við björgunina. Ilinn
táknræni og spaugilegi eft-
irmáli atburðarius er orð
þau, sem Hitz lét falla þegar
liann kom á flugvöllinn i
Meiringen: „Jökullinn er alveg
þakinn af niðursuðudósum, sem
Ameríkanarnir köstuðu niður.
Þeir gleymdu nefnilega alveg
að gera ráð fyrir vindi svo þær
dreifðust um allt, lentu jafnvel
i 5 km. fjarlægð frá markinu.
Ef eiuhvern langar í amerísk-
ar sígarettur, þá ætti hann hara
að fara upp á jökul, þar er
nóg af þeim. Og þegar vorar og
snjóa leysir, ginnast vafalaust
margir góðir hlutir uppi í fjöll-
um!
Og Svisslendingar brósa, þeg-
ar þeir minnast þess, að am-
eríski herinn i Austurríki sendi
járnbrautarlest með Weasel-
snjóskriðdreka, jeppa, malvæli
í tonnatali, 150 hermenn, loft-
skeytatæki, fallhlífarliersveitir
og fjölda af fjögurra hreyfla
flugvélum til Meiringen til að
bjarga. Svissneski herinn aftur
á móti gaf hóglátlega skipun lil
einnar flugdeildar og bað hana
hávaðalaust að vera á verði.
Sú skipun nægði til þess að
fullkomna björgunarstarfið
Stjörnulestur
EFTIR JÓN ÁRNASON
Haustjafndægur 1:947.
Alþjóðayfirlit.
Fimm plánetur eru í loftsmerkj-
um. Mikið verður rætt og ritað og
liugsað um atburðina í heiminum
og framkvæmdahæfileikinn ríkur,
þvi sex plánetur eru í aðalmerkjum.
Ástandið, sem birtist í sambandi
við afstöðurnar í ágúst mun enn
vera í fullum krafti.
Lúndúnir. — Sól, Venus, Neptún
og Merkúr í 5. liúsi. Eru afstöðurn-
ar yfirleitt slæmar, svo að örðug-
leika ýmissa má vænta í leikhús-
málum, rekstri kvikmyndahúsa o.
fl. Barnafræðsla mun undir örðug-
um áhrifum. Mun þetta áhyggjuefni
stjórnarinnar. — Úran í 1. lnisi.
Óánægju mun vart og verkföll gætu
átt sér stað og misgerðir koma í
Ijós meðal almennings. Mars í 2.
húsi. Tekjur hins opinbera munu
minnka og verðbréfaverslun undir
fargi, útgjöld aukast, cinkum við
herinn. — Satúrn í 3. húsi. Örðug-
leikar og hindranir í rekstri sam-
göngutækja. Óánægja meðal flutn-
ingamanna. Dauðsföll meðal þeirra
er stjórna slíkum störfum eða
manns, sem er kunnur blaðamað-
ur eða rithöfudur. — Júpíter í (i.
húsi. Ætti að styrkja aðstöðu verka-
manna og heilsufarið ætti að vera
sæmilegt.
fíerlín. — Sól í 4. búsi. Land-
búnaðurinn og málefni hans eru
úndir mjög athugaverðum áhrif-
um. Slæm afstaða frá Satúrn í
3. húsi, sem bendir á örðugleika
vegna flutningavandræða og ófyrir-
séðar hindranir koma frá Úran í
12. liúsi. Venus og Mars munu þó
eitthvað liðka til með góðum á-
hrifum sinum. Stjórnendur eiga þó
i örðugri aðstöðu. Júpíter í (i. húsi,
sem ætti að styðja verkamenn, iafn-
vel þó að afstöður hans séu ekki
góðar, og heilsufar ætti að batna.
— Tungl í 7. húsi. Hefir slæmar
afstöður og bendir á vandkvæði í
viðskiptum við aðrar þjóðir. — Mars
er í 2. húsi. •— Útgjöld munu auk-
ast að mun.
Moskóva. — Sól, Venus, Merkúr
og Neptún i 4. húsi. — Afstöðurn-
ar eru fremur slæmar, svo að
stjórnin á við ýmsa örðugleika að
etja. Landbúnaðurinn á í örðug-
leikum nokkrum og undangraftac-
starfsemi er sýnileg vegna slæmrar
afstöðu frá Úran í 12. húsi. —
Júpiter i 5. húsi. Hefir eina af-
stöðu góða frá Mars í 1. húsi. Al-
mcnninglir mun styðja leikhúsa-
starfsemi eftir bestu getu, en fjár-
hagur mun tefja framkvæmdir. —
Tungl í (i. húsi. Hefir slæmar af-
stöður. Verkamenn eiga i örðugleik-
um og heilsufarið mun slæmt. Þó
er framkvæmdaþrek mikið yfir
höfuð að tala.
blikkdósa- og jéppalaust, svo
að ekki sé nú lalað um falllilíf-
arhersveitir og annað slíkt. Og
ef til vill verður Svissleftding-
um ekki láð það, þótt þeir kími
ofurlítið að þessu.
Tokyo. — Neptún er í 1. húsi og
hefir slæmar afstöður. Mikil undan-
graftarstarfsemi á sér stað og mis-
gerðir munu koma í ljós og sið-
ferðisástandinu mun mjög hraka.
— Mars í 10. húsi. Stjórnendurnir
eiga í margvíslegum örðugleikum
og gæti afstaða þessi bent á hern-
aðarástand. — Tungl í 4. húsi. Land-
búnaðurinn á í örðugleikum, slæm
uppskera og námurekstur óhag-
stæður. — Satúrn í 11. húsi. Tafir
á afgreiðsfti þingmála. —tlran í
9. húsi. Örðugleikar í utanlandssigl-
ingum og verslun. — Júpíter í 2.
búsi. Hefir slæm áhrif á fjárhags-
afkomuna og bankastarfsemina og
aðstöðu ríkissjóðsins.
Washington. — Sól var í 7. búsi.
Utanríkismálin munu mjög á dag-
skrá í Randai'ikjúnum. Andstaða
stjórnarinnar mun nota sér tæki—
færin til þess að styrkja andstöðu
sína. Örðugleikar munu því koiua
í ljós í utanríkismálunum. — Tungl
í 11. húsi. Ágreiningur gæti átt
sér stað innan stjórnarinnar og
breyting orðið á henni. — Júpíter
í 9. húsi. Fjárhagsörðugleikar eru
sýnilegir og útgjöld aukast. — Mars
í 6. húsi. Eldur gæti komið upp i
herskipi og útgjöld til herþjónustu
aukast að mun. — Neptún í 8.
húsi. Dánartilfellum fjölgar og geð-
veiki mun áberandi.
ÍSLAND. — (Nýja tunglið 14. sept.
er i 7. búsi hér á landi, en Satúrn
og Plútó eru sterkastir í liúsi þessu
og bendir afstaða þessi á áframhald-
andi örðugleika í utanríkismálum.
Afstaða þessi er fremur einhæf og
bendir á að ráðendurnir eigi örð-
ugra með að ráða við viðfangsefn-
in heldur en ef pláneturnar væru
við austursjóndeildarhrig.
5. hús. — Sólin er í húsi þessu.
Leikhúsa- og skemmtanastarfsemi
mun áberandi og hafa fremur sterka
afstöðu. Satúrn er einnig í húsi
þessu og mun eitthvað tefja og
draga úr framkvæmdum. En af-
staða Venusar og Mars mun styrlcja
hin góðu áhrif. Þetta ætti að styrkja
fræðslustarfsemi barna.
1. hús. — Úran er i húsi þessu.
Bendir á óskir til breytinga og
lagfæringa, en andstaða gæti birst
frá verkamönnum, sem þó er frem-
ur Væg.
2. hús. — Tungl ræður húsi þessu.
Hefir slæmar afstöður. Bankastarf-
scmin er ekki undir heppilegum á-
hrifum. Mjög mikil óvissa mun ríkja
í fjárhagsmálunum.
3. hús. — Mars er í húsi þessu.
Örðugleikar ýmsir í samgöngumál-
um, eldur gæti komið upp i flutn-
ingatækjum, sprengingar gætu átt
sér stað og slys. Kostnaður við
rekstur samgángna gæti hækkað.
4. hús. — Sól ræður húsi þessu.
Ætti að boða betri aðstöðu bænda
og stjórnarinnar, jafnvel,' þó að
siæm afstaða sé frá Úran i 1. húsi,
e nbendir á ónægju nokkra með-
al almennings.
6. hús. — Venus, Neplún, Mcrkúr
og Júpíter eru í húsi þessu. Hafa
yfirleitt slæmar afstöður og bendir
á örðugléika meðal verkamanna.
Undirróður gæti átt sér stað meðal
þeirra. Er útlitið mjög vafasamt.
7. hús. — Satúrn ræður liúsi
þessu. Hefir eingöngu slæmar af-
stöður. örðuglcikar miklir eru sýni-
legir í utanrikisviðskiptum og þjón-
Framhald á bls. Í4.