Fálkinn - 12.09.1947, Side 7
FÁLKINN
7
Þau gengu nú bæði aÖ störfum
sínum í klaustrinu, Jean Valjean tók
að yrkja jörðina og Cosette stundaði
nám. Aldrei fóru j)au út fyrir klaust-
urmúrana enda kom það á daginn
að Javert var sísnuðrandi á staðn-
um, þar sem Valjean hefði gengið
úr greipum hans.
Kvöldbæn. „— — — og gefðu
mér dálítið af kökum eða kara-
mellur og súkkulaði." — Litla
ítalska stúlkan, sem hefir beð-
ið kvöldbænina sína svo fallega
getur ekki stillt sig um að
hnýta aftan við ofurlítilli bæn
um gúðgæti. Og hún væri ekki
of sæl að fá hana uppfijllta,
hún hefir ekki svo mikið af
slíku.
Dr. Petiot, franski morðinginn,
sem drap 63 menn.
Egypskur fáni við hún. — Alex-
andria er fyrsta borgin í
Egyptalandi, sem Bretar kveðja
herlið sitt frá. Hér birtist mynd
af Mustafa Pasha virkinu, sem
Bretar hafa haft síðan frá dög-
um Augustusar keisara. Nú
hefir egypskur fáni verið dreg-
inn þar að hún sem og á öðr-
um virkjum borgarinnar.
Skilmingaæfing fyrir framan
spegil.
Geri aðrir betur! — Lögreglu-
þjónar Lundúnaborgar eru
allra almennilegustu skinn. Hér
sést, hvernig þeir lyfta liltu
börnunum, svo að þau sjái bet-
ur konungshjónin bresku, þeg-
ar þau koma fram hjá.
Með dauðann við stýrið. / blað-
inu „Pas paa“ birtist þessi
mynd sem er aðvörun til bif-
reiðastjóra, sem aka undir á-
hrifum víns. Slíkir menn færa
það alltaf fram i varnarskyni,
að þeir aki betur, ef þeir eru
örlítið undir áhrifum víns. En
það eitt sannar fyrir þeim, sem
til sjá, að dómgreind mann-
anna hefir sljóvgast.
Hörgull á hjúkrunarkonum. —
Englendingum hefir reynst erf-
itt að fá nægan fjölda hjúkr-
unarkvenna á spítalana. Hér
sjást nokkrir fylkisfulltrúar í
Gloucester^héraði með vax-
brúður í hjúkrunarkvennabún-
ingi til þess að glæða áhuga
ungra kvenna á starfinu.
Næturklúbb lokað. / Hamborg
hafa bresku hernámsyfirvöld-
in látið loka 15 veitingastöðum
og næturklúbbum, þar sem vín-
föng voru seld á svarta mark-
aðs verði. Þýskur lögreglu-
þjónn sést hér festa upp aug-
lýsingu um þetta fyrir utan
einn klúbbinn.
Hlaut titil Mæðradagsins í Holly-
wood. — Iívikmyndaleikkonan
Jane Wyman, sem hér sést méð
fangið fullt af blómum, hefir
verið kjörin „Hollywood’s most
attracjive mother“ (mest að-
laðandi móðir í Hollywood)
fyrir árið 1947. — Maður henn-
ar er Ronald Reagan, sem
kvikmyndagestir hér kannast
jið úr myndinni „Kóngsgatan“
og fleiri myndum. Þau eiga tvö
börn og bráðum þrjú.
Lítill sjóliði. — Hann er aðeins
iy2 árs gamall, snáðinn þessi.
Samt er hann ákveðinn i að
ganga í sjóherinn. Sennilega
hefir hann heyrt, hvað sjólið-
arnir „gera mikla lukku“ hjá
veikara kyninu.
* Allt meö íslensknm skipum! *