Fálkinn - 12.12.1947, Page 3
FÁLKINN
3
Fyrsta bókin um
Heklugosið
Komin er í bókabúðir fyrsta bókin um Heklugosíð.
Titill bókarinnar er „Heklugosið 1947“, og skrifar Guð-
mundur Einarsson frá Miðdal annan aðalkafla bókarinn-
ar, en liinn Guðnmndur Kjartanssoji, jarðfrséðingur. Auk
þess er bókin prýdd fjölda mynda.
Fyrri kaflinn er frásögn um Heklugosið, og skrifar
Guðmundur Einarsson frá Miðdal kafla þann. Dvaldist
Guðmundur austur við eldstöðvarnar marga daga sam-
fleytt í byrjun gossins, auk ])ess sem hann hefir farið
þangað með stuttu millibili i allt sumar. — Guðinundur
Kjartarisson, jarðfræðingur, skrifar síðari kaflann, og
fjallar hann um sögu Heklugosa frá öndverðu. Eins og
kunnugt er, hefir Guðmundur helgað sig rannsóknum á
Heklu og er manna fróðastur um sögu liennar.
Guðjón Ó. Guðjónsson annast útgáfu bókarinnar með
aðstoð Rangæingafélagsins. Væntanleg'ur ágóði af bók-
inni rennur í sjóð til styrktar þeim, sem hart urðu úti
á öskufallssvæðinu.
40 ára ríkisstjórnarafmæli
Gustavs V. Svíakonungs
Mánudaginn 8. desember var mik-
ið um dýrðir í Stokkhólmi. Þá voru
liðin 40 ár frá þvi, að Gustav V.
tók við konungstign í Svíþjóð. Var
mikil og almenn þátttaka í hátíða-
höidunum, og' báru þau ljósan vott
um virðingu l)á og vinsældir, sem
hinn níræði öldungur á að fagna
meðal landa sinna.
Gustav V. er fæddur 10. júní
1858, og verður hann því 90 ára
gamall á næsta sumri. Rétt nafn
hans er Oscar Gustav Adolf. Eor-
eldrar hans voru Oscar II. og Sofia
af Nassau. Hann var hcrtogi af
Varmlandi, uns hann varð konungur
árið 1907, og krónprins Svíþjóðar
og Noregs frá 18. september 1872
fram til ársins 1907. Hann lauk stúd-
entsprófi 18 ára gamall og stundaði
siðan framhaldsnám í Uppsölum
og Osló. Upp frá því fór hann svo
að taka virkan þátt í störfum og
skipulagrtingu hersins og var ætíð
mikill áliugamaður um framfarir
meðal þjóðarinnar. — Þegar liann
kom til valda 8. desember 1907, tók
liann sér kjörorðið: „Með fólkinu,
fyrir fósturjörðina".
Gustav V. giftist Viktoriu prins-
essu af .Baden 20. sept. 1881. Hún
var þá 19 ára gömul. Viktoría dó
í Rómaborg árið 1930 eftir lang-
varandi vanheilsu. Gustav V. og
Viktoríu varð þriggja barna auðið.
Þau cru: Gustav Adolf krónprins,
f. 1882, Vilhelm, hertogi af Söder-
manland, f. 1884, Erik, liertogi af
'Vastmanland, f. 1889 — d. 1918.
Magnús Slmonarson, hréppstjóri i Grimsey og kona hans, frú Sigyerö-
nr fíjarnadóttir, áttu 25 ára hjnskaparafmœli þann 29. nóv. s.l.