Fálkinn - 12.12.1947, Qupperneq 4
4
F Á L Ii I N N
ÞAÐ VAR 9. júlí í sumar, sem
sú tilkynning barst frá
Buckingham Palace að
konungshjónin lýstu yfir trúlof-
un Elisabetar dóttur sinnar og
Philips lautinants af Mountbatten.
Þá hafði þegar verið skrafað um
þennan ráðahag, og hún var ekki
nema 13 ára þegar byrjað var
að tala um hver verða skyldi mað-
ur hinnar tilvonandi Bretadrottn-
ingar, sem átti að feta í fótspor
hinnar frægu nöfnu sinnar frá 16.
öld og hinnar þaulsætnu lang-
ömmu sinnar, Victoríu. En þó að
Elisabet gamla væri kona, sem
þjóðin var stolt af, vildi fólk þó
ekki láta þessa Elisabetu verða
meykong eins og þá gömlu. Og
það er langt siðan það fór að
kvisast, að Elisabeth vildi engan
mann eiga nema Philip frænda
ginn. Þau hafa þekkst síðan þau
voru börn, og alltaf verið trún-
aðarvinir. Svo að hér var það
ástin sem réð, en ekki stjórnmál-
in.
Það er sagt að faðir hennar hafi
samþykkt ráðahaginn daginn sem
hún varð 21. árs, í febrúar í vet-
ur sem leið, en þá var hún í ferða-
lagi í Suður-Afríku ásamt foreldr-
um sínum. Hún fékk með öðrum
orðum mannsefnið í afmælisgjöf.
HVER ER HANN?
„All the nice girls love the
landi og Danmörku. Og tveim-
ur dögum áður en hann giftist
gerði konungurinn hann að her-
toga af Edinborg.
Hann kom í þennan heim suður
á Korfu árið 1921, og var faðir
hans Andreas Grikkjaprins Ge-
orgsson, bróðir Konstantíns kon-
ungs, en sonarsonur Kristjáns IX.
Þessi gamli „faðir Evrópu“ er því
langafi Philips en hann er líka
langa-langafi Elísabetar. En Vict-
oria drottning er langa-langamma
þeirra beggja.
Andreas prins varð að flýja land
er Philip var í reifum og settist
að í Frakklandi, en Philip komst
til ömmu sinnar í Englandi. Hún
var ekkja eftir þýska furstann
Louis von Battenberg, sem gerð-
ist enskur ríkisborgari og varð
First Sealord Breta. Afkomendur
hans tóku sér nafnið Mountbatten.
Hinn víðfrægi Louis Mountbatten,
landstjóri Indlands og síðasti
varakonungur, er föðurbróðir
Philips hertoga.
Philip fékk hermennsku-uppeldi
og tók þátt í stríðinu og var m.
a. í landgönguliðinu á Italíu 1943,
en ekki sótti hann um breskan
ríkisborgararétt fyrr en í lok
stríðsins, en fékk hann í febrúar
í ár. Um leið afsalaði hann sér
prinstitlum sínum og öllum rétt-
indum í Grikklandi, svo að þang-
að til um það leyti sem hann gift-
Þeöar drottnim^arefmí
sailor“ stendur i visunni, sem raul-
uð var í gamla stríðinu. Það ger-
ir Elisabet líka, því að maðurinn
hennar er liðsforingi í sjóliðinu.
En svo er hann líka prins af Grikk-
ist var hann réttur og sléttur
„Philip Mountbatten liðsforingi“.
820 ÁR SlÐAN SÍÐAST.
Þetta er í annað skipti í sögu
Bagshot höllin, sennilegur frrhtíffarbústaðiir Elisabetar og Philips.
20. NÓVEMBER FÖGNUÐU BRETAR VIÐBURÐI, SEM EKKI
HEFIR GERST 1 SÖGU ÞEIRRA 1 820 ÁR, ER ELISABET RlKIS-
ARFI GIFTIST PHILIP FRÆNDA SlNUM, HERTOGA AF EDIN-
BORG, OG ÞÓ AÐ TILKYNNT VÆRI FYRIRFRAM, AÐ BRÚÐ-
KAUPIÐ ÆTTI AÐ VERA SEM VIÐHAFNARMINNST, VARÐ
ÞAÐ ÞÓ EINN AF MESTU HÁTlÐISDÖGUM ÞJÓÐARINNAR,
SEM GLEYMDI ÖLLUM SlNUM VANDRÆÐUM OG
ERFIÐLEIKUM ÞÁ STUNDINA.
i____________________________________________________
Englands sem ríkiserfingi, sem er
kona, gengur í heilagt hjónaband.
Hítt skiptið var árið 1127, er
Maud, dóttir Hinriks I. giftist. —•
En það eru ekki nema 100 ár síð-
an Victoria giftist Albert prins,
mun einhver segja. En þar var sá
munur á, að Victoria var orðin
drottning þegar hún giftist, en
Maud og Elísabet ekki. En samt
liggur nær að gera samanburð á
þessu brúðkaupi ogbrúðkaupi Vic-
toriu. Eins og þá, var núna gerð
sérstök breyting á rítúalinu, nfl.
að þar sem brúðurin lofaði að
vera manni sínum undirgefin, þá
var það tekið fram, að undirgefn-
in nái til brúðinnar sem konu,
en ekki sem drottningar. „Sem
drottning mun ég ríkja, en sem
kona heiti ég undirgefni." En
Elisabet er ekki orðin drottning
enn og er undirgefin föður sínum
sem þegn og dóttir og manni sín-
um sem kona.
Viðvíkjandi erfðaréttinum er
svo fyrir mælt í enskum lögum,
að rómversk-kaþólskt fólk fái
ekki erfðarétt og ekki heldur með-
limir kirkjufélaga, sem eigi hafa
samvinnu við ensku kirkjuna. —
Philip er skírður í grísk-kaþólskri
trú, en sú kirkja hefir haft sam-
vinnu við England og hann hefir
alist upp við ensk trúarbrögð, svo
að væntanlegir erfingjar þeirra
hjónanna verða arfbornir. Verði
þau barnlaus stendur Margaret
Rose, systir Elísabetar, næst til
ríkiserfða.
BRÚÐKAUPIÐ.
Almenningur kunni því illa, að