Fálkinn - 12.12.1947, Síða 5
F Á L K I N N
ö
brúðkaupið yrði haldið jafn við-
hafnarlítið og tilkynnt hafði ver-
ið. Hann vildi sjá skraut, fallega
einkennisbúninga og mikla við-
höfn. Þetta varð til þess að á-
kveðið var á síðustu stundu að
láta lífvörðinn taka þátt í skrúð-
göngunni í viðhafnarbúningi og
ýmislegt fleira var gert til að
gleðja augu hins mikla fjölda,
sem eyddi mörgum klukkutímum
og fórnaði meira að segja nætur-
svefni til þess að tryggja sér stað
við göturnar, sem skrúðgangan
fór um.
Brúðkaupið var þó fyrst og
fremst fjölskylduhátíð. Þjóðhöfð-
ingjarnir sem boðnir voru, voru
allir venslaðir hirðinni á einhvern
hátt, en aðrir voru ekki boðnir.
Þarna voru konungur Danmerk-
ur og Noregs og ríkiserfingi Svía
og vitanlega allir enskir hertogar
og hefðarfólk, sem nöfnum tjáir
að nefna (nema hertoginn af
Windsor). Um tvær milljónir
manna höfðu safnast saman með-
fram götunum, sem brúðkaups-
fylkingin fór um.
En í Westminster Abbey var
lítið rúm nema fyrir brúðkaups-
gestina, því að enska hefðarstétt-
in er fjölmenn. Þarna voru 27
konungar, drottningar og prinsar
og allir lávarðar, sem vettlingi
gátu valdið, svo og sendiherrar
erlendra ríkja í London.
Þegar prinsessan kom að kirkju
dyrunum í konungsvagninum,
heilsaði þar lúðraflokkur úr hern-
um. Georg konungur leiddi dótt-
ur sína inn kirkjugólfið, hann var
í aðmíralseinkennisbúningi en hún
í hvítum kjól, sem mikið var bú-
ið að tala um fyrir bmðkaupið og
eitt blaðið hafði komist yfir ljós-
mynd af og birti í óleyfi. Á und-
Á brúffkaupsdáginn voru brúöhjónin og koiuingsfjölskyldan öll kvödd fram ú svalir Buckingham Palace
og hgllt af mannfjöldanum. Taliö frú vinstri: Geor'g konungiir, Magaret fíose, Elisabet, Philip, drottningin
og Marg ekkjudrottning.
Að lokinni vígslu fóru brúð-
hjónin inn í kapellu Játvarðar
helga, en þar eru sex breskir kon-
ungar og drottningar grafin, og
undirrituðu hjúskaparheitið.
Nú hófust klukknahringingar á
ný og brúðhjónin gengu út úr
kirkjunni. Mannf jöldinn ætlaði að
ærast af fögnuði og hrópin og
köllin voru eins og skruggur. At-
höfnin hafði farið fram „sam-
kvæmt áætlun“, en minnstu mun-
aði að prinsessan dytti á leiðinni
upp að altarinu, er kjólfaldur
hennar festist á einu þrepinu.
Og mikil alvara var yfir öllu
meðan á athöfninni stóð. Það brá
ekki út af því nema einu sinni,
er Hákon Noregskonungur varð
það á að standa of snemma upp.
Framhald á bls. 11.
Frú brúökaupinu i Westminster Albeg. Erkibiskupinn af Kantaraborg stendur fgrir framan hin konung-
legu hjóndefni. Vígslan er að hefjast.
an brúðinni gengu prestar og
syngjandi kórdrengir inn kirkju-
gólfið, undir krossmarki kirkjunn-
ar, sem er úr gulli og alsett am-
etyst-steinum. Við altarið stóðu
prelátar þeir, sem áttu að aðstoða
við athöfnina, allir æðstu menn
kirkjunnar í Englandi og Skot-
landi, þar á meðal erkibiskuparn-
ir af Kantaraborg og York.
Og við altarishornið beið brúð-
guminn, í einkennisbúningi sjó-
liðsforingja og gyrtur sverði Ge-
orgs konungs V. Gengu þau brúð-
hjónin nú saman að gráðunum og
féllu þar á hné, á sama stað og
gert hafði Vilhjálmur sigursæli,
er hann var krýndur konungur
Englands 1066.
„Praise the Lord“ heitir söng-
urinn, sem sunginn var meðan
brúðurin gekk inn kirkjugólfið,
og hafði brúðurin valið hann sjálf.
Síðan hófst vígslan og annaðist
Kantaraborgarbiskup hana sam-
kvæmt helgisiðabókinni og brúð-
hjónin svöruðu spurningunum
skýrt og greinilega með „I will“,
en það nota Englendingar staðinn
fyrir ,,jáið“ hjá okkur. Og svo
urðu brúðhjónin líka að þylja löng
heit, sem biskupinn las þeim fyr-
ir. Stóð vígslan ekki lengi og á
eftir hélt erkibiskupinn af York
ræðuna en dómprófasturinn í
Westminster flutti bæn. Og loks
var þjóðsöngurinn sunginn.
Meðan á vígslunni stóð sátu
helstu brúðkaupsgestirnir í kór á
gylltum stólum. Hægra megin sat
Elisabet drottning. Mary ekkju-
drottning, hertogafrúin af Kent,
hertogahjónin af Gloucester og
Hákon Noregskonungur. — En
vinstra megin sat móðir brúðgum-
ans, prinsessan af Hellas, Mount-
batten lávarður og frú hans,
drottningin af Hellas, Michael
fyrrum Rúmenakonungur, konug-
urinn af Irak, dönsku konungs-
hjónin og sænski krónprinsinn og
frú hans.