Fálkinn - 12.12.1947, Qupperneq 11
FÁLKINN
11
Riddarar úr lifverði konungs og
stallsveinar voru skrautbúnii' við
hdtiðahöldin. Þeir voru í gömlum
og fögrnm brynjum, höfðu skraut-
hjálma á höf&i og var afsk'ornu
tagli hiujtt aftan í þá.
----oOo------
Þegar drottningarefni giftist.
Framhald af bls. 5.
Þá brosti hertogafrúin af Kent og
einhverjir fleiri.
Nú hélt öll brúðkaupsfylking-
in til Buckingham Palace og áð-
ur en sest var til borðs var tekin
hin „autoriseraða“ ljósmynd af
brúðhjónunum. Er mikið af því
látið, hve falleg drottningarefnið
sé á þessari mynd og yfirleitt hve
brúðurin hafi „tekið sig vel út“.
Yfir borðum hélt George kon-
ungur aðalræðuna, og svo kom
að þeirri athöfn er Elisabet skyldi
stykkja sundur brúðkaupskökuna.
Tók hún nú sverðið af manni sín-
um og notaði fyrir hníf, því að
hér dugði enginn smákuti, því að
kakan var hið mesta ferlíki.
En fyrir utan höllina stóðu
hundruð þúsunda af fólki. Fór loks
svo að fjöldinn ruddist gegnum
varðlínur lögreglunnar og upp að
grindverkinu kringum höllina og
hrópaði hástöfum á brúðhjónin.
Stóðu þau hróp og köll samfleytt
40 mínútur en sumsstaðar í fylk-
ingunni var sungið. Loksins komu
brúðhjónin út á efri hallarsval-
irnar klukkan rúmlega tvö og ætl-
aði þá allt um koll að keyra af
hávaða. Skömmu síðar sýndu
konungshjónin sig einnig ásamt
Margaret Rose prinsessu. Þetta
dugði, því að nú hafði fólkið feng-
ið það sem það vildi, og fór nú
að týnast heim til sín. En margir
fengu konungshollustukvef upp úr
þessu.
Eftir borðhaldið óku brúðhjón-
in til Waterloo Station og fóru
þáðan með hraðlest til Romney
House í Hampshire en þar er set-
ur Montbatten lávarðar. Þar eiga
þau að njóta hveitibrauðsdag-
annaó Nú var prinsessan komin úr
brúðarkjólnum og í gráblá ferða-
föt og leit út „eins og hver önn-
ur manneskja“, og Philip í bláu
•liðsforingjafötunum. Og nú heitir
prinsessan framvegis „hertogafrú-
in af Edinburgh“ en ekki prins-
essa.
Það getur orðið lengi, sem hún
Hertoginn af Windsor og frú hans
voru ekki viðstödd vigsluhátiðina.
Þau hafa verið i Englandi i haust,
en héldu vestur um haf með „Queen
Mary“ fgrir skömmú.
heldur því nafni, því að faðir
hennar getur orðið konungur í
marga áratugi enn.
VIM hreinsar fljótt-
og svo vel
Hvar svo sem þér þurfið að hreinsa.
gerið ])að á fljótastan og auðveldast-
an hátt — með VIM, hinu örugga og
fullkomna lireinsidufti. Óhreinindi
og fita hverfa sem töfrar væru, hlut-
irnir verða aftur bjartari og líta út
sem nýir.
VIM hið örugga
hreinsiduft.
X-V 449/2-1110 A LEVER product
Hreinsar allt.
En Barrabas var ræningi.
Framli. af bls. 9.
Hvíslingarnar læðasl inn að
hjartarótum Barrabas og svo
veikt var þetta hugboð, sem
hann hafði fengið rétt áðan að
nú nær reiðin tökum á Iionum.
Hafði lýðurinn ekki sjálfur beð-
ið um að liann yrði látinn laus?
Og nú hleypur hann inn i mann
hafið, sparkar og slær og ryðst
áfram. Hræðileg barátta er í
sál lians, og hann verður að
finna hatur fólksins í kring
um sig til þess að freistast ekki
til nýrra illgerða.
Undir miðnætti, er liann reik-
ar þreyttur og slæptur um göt-
urnar þrýstir liann í örvænt-
ingu og reiði herðunum að dyr-
um á einu húsinu, mölbrýtur
þær, lemur húsráðandann þang-
að til Iiann liggur í öngviti og
rekur konuna út. Og svo mölv-
ar liann alll sem næst hendi er
og hljóð gatan bergmálar af
öskri hans:
— Gef oss Barrabas lausan . .
fyrir armbandsúr, sem var stolið frá
honum fyrir tíu árum. Nafnlaust bréf
fylgdi, og í því stóð, að úrið hefði
ekki verið n.otaðar í mörg ár, og
þessvegna væru 100 krónur fullgóð
borgun fyrir það.
GRÁÐUGUR ÞORSKUR.
Maður nokkkur í Noregi keypti
sér stóran þorsk á bryggjunni og
fór beint heim með hann lii að
láta hann í pottinn. En hvað skeður
þegar hann slægði þorskinn? í mag-
anum voru 5 gylltir hnappar af
sjóliðsforingjabúningi og þetta varð
tii þess að þorskinum var lient
beina leið í forina. Það er trú
manna að makríllinn sé mannæta á
styrjaldarárum, en þorskurinn hef-
ir hing'að til ekki verið bendlaður
við þann ósóma, og vonandi að
hann verði það ekki, því að það
gæti spillt inarkaðnum. Liklega hef-
ir það verið hégómagirni hjá þorsk-
inum, að hann gleypti gljáandi
hnappana, þvi að fiskar eru ólmir
í það sem gljáir.
ÞJÓFUR VIRÐIR ÚR.
Nýlega fékk Lester Turner 100
krónur sendar í pósti, sem borgun
MAGABELTIN.
Nelly litla van Echold í Hertog'en-
boscli i Hollandi liefir lengi safnað
magabetum af vindlum. Nýlega fékk
hún góða viðbót við safnið því að
Winston Churchill sendi henni úr-
vai af magabeltum af vindunum,
sein liann reykir mest.