Fálkinn - 12.12.1947, Qupperneq 15
FÁLKINN
15
BÆKUR
sem aldrei missa gildi sitt og þess-
vegna er vert að velja til minjagjafa
Sonur gullsmiðsins á Bessastöðum.
Húsfreyjan á Bessastöðum.
í þessum bréfum eru prentuð hin sígildu bréf bús-
freyjunnar og margt annarra bréfa er snerta liinn
ævintýrakennda og óráðna æskuferil Gríms Tliom-
sen.
Sjálfsævisaga sira Þorsteins Péturssonar á Staðarbakka.
18. aldar sjálfsævisaga áður óprentuð, bliðstæð
hinum klassisku ævisögum Jóns Indíafara og séra
Jóns Steingrímssonar.
Minningar Guðrúnar Börgfjörð.
Alveg óvenjulega skemmtileg frásögn reykvískrar
konu, er rekur ævi sína og störf og lýsir Reykja-
víkurlífinu í fyrri daga eins og það kom kvenþjóð-
inni fyrir sjónir. I bókinni er getið mikils fjölda
hinna eldri Reykvíkinga.
Fornir dansar.
Þetta eru liin gömlu íslensku danskvæði, sem þeir
Grundtvig og Jón Sigurðsson gáfu áður út, en
Olafur Briem sá um þessa útgáfu. — Dansarnir
eru sérstæður og skcmmtilegur þáttur íslenskra
bókmennta. — Bókin er með teikningum Jóhanns
Briem, sem blotið bafa einslaka viðurkenningu
jafnt alþýðu manna, sem listgagnrýnenda. Þetta
cr ein fegursta bókin.
Vísnabókin.
Bók barnanna. Vísurnar valdi ijrófessor Símon
Jóh. Ágústsson. Teikningar eftir Halldór Pétursson.
Athöfn og uppeldi eftir dr. Matthías Jónasson.
Þessi bók er nauðsynjabók fvrir alla foreldra og X
uppalendur. ♦
í djörfum leik eftir Þorstein Jósepsson. f
Frásagni r al' íþróttamönnum samtímans og afrek- x
um þeirra. X
Þeir fundu lönd og leiðir eftir Loft Guðmundsson. ♦
Þættir úr sögu hafkönnunar og landaleita og frá- ♦
sagnir af sægörpum. ♦
Illaðbúð |
>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Tilkynning
frá Hitaveitu Reykjavíkur
Bæjarráð hefir samþykkt bann við allri notkun heita
vatnsins frá Reykjum að næturlagi frá kl. 11 e. h. til kl.
7 að morgni. Á sama tíma er einnig bannað sírennsli á
köldu vatni.
Jafnframt var ákveðið að viðurlög við broti gegn
banni þessu skyldu vera:
Við fyrsta brot, lokun fyrir heita vatnið til hússins
eða kerfisis í einn sólarhring, en itrekað brot lokun í 7
sólarhringa.
Hitaveita Reykjavíkur
Býr íslenskt þjóðfélag engu foetur að þegnum sínun nú
en fyrir sjötíu árum?
Dagur er liðinn
Ævisaga Guðlaugs frá Rauðbarðaholti
skrásett af Indriða Indriðasyni.
Eru skilyrði einstaklingsins lil að njóta afkasta handa
sinna engu betri en fyrir 70 árum, þrátt fyrir verklegar
framfarir og aukinn þjóðarauð?
Áður en þér svarið þessum spurningum, þá lesið
DAGUR ER LIÐINN, söguna um manninn, sem ólst
upp á sveit fyrir sjötíu árum, skilaði fullu og fjölbreyttu
dagsverki og dó á sveit, þegar því var lokið.
Dagsverk Guðlaugs frá Rauðbarðaholti var dagsverk
venjulegs Islendings, eins og það gerðist við sjó og i
sveit.
Hér eru ógleymanlegir kaflar um Skúla Thoroddsen,
Hannes Hafstein, Jón Laxdal tónsk., Gísla Johnsen,
þættir af Álfi Magnússyni og Sólon í Slunkaríki, og þá
gleymir enginn lýsingunni á Sesselju í Rauðbarðaholti,
stórlátu en fátæku lnisfreyjunni, sem á ekkert að gefa
sveitardrengnum í veganesti, nema blessun sína.
Saga Guðlaugs er skráð af frábærri nákvæmni og vand-
virkni og ekkert undan dregið. Þess vegna er hún sönn
og blátt áfram lýsing á íslensku þjóðlífi.
Húsfreyjan í Norðurhlíð er komin i leitirnar
Steingerður
Ný skáldsaga eftir Elinborgu Lárusdóttur,
Þeir fjölmörgu lesendur, sem nutu sögunnar um Símon
í Norðurhlið, hugsjónamanninn, sem villtist á vett-
vangi dagsins inn í riki draumóra og óminnis, munu
fagna þessari sögu um bina stoltu og viljaföstu bús-
freyju i Norðurblíð. Steingerður tekur upp hanskann
fyrir bónda sinn og hefnir hans á þann eina hált sem
göfugri konu sæmir með því að láta drauma hans ræt-
ast. Með óbilandi dugnaði og hörku tekur hún upp bar-
áttuna fyrir lífi sínu og sonar síns, Matta litla. Og henni
tekst að skapa lionum þau lífsskilyrði sem föður Iians
dreymdi um og eignast „moldina, sem hún gengur á“.
Steingerður er sterk kona, róleg og köld að ytra útliti,
en heit og fórnfús í huga.
Það gleymir enginn þessari einbeittu, raunsæu konu,
sem þrátt fyrir fátækt og einstæðingsskap megnar að
gera bina ótrúlegustu drauma að veruleika.
Menn gefa Norðra-bækurnar í jólagjöf
og tryggja þannig vinum sínum þjóðleg-
ustu, skemmtilegustu og gagnvönduðustu
bækurnar.
Norðra-bækurnar eru glæsilegustu
jólagjafirnar í ár.
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦❖♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
»