Fálkinn - 16.01.1959, Side 2
2
FÁLKINN
Hý difgyrlcgöíön^onfl
d Hótel Borg
Ung ensk dægurlagasöngkonn, Mary
Marshall, hefir verið ráðin til að
syngja með danshljómsveitinni á
Hótel Borg á kvöldin næslu fjórar
vikurnar.
Mary Marshall, sem oft er kölluð
„Kiss Girl“ í heimalandi sínu, er 24
ára gömul og hefir stundað dægur-
lagasöng um sjö ára skeið. Hún liefir
sungið á ýmsum þekktum skemmti-
stöðum í Englandi, t. d. hinum kunnu
næturklúbbum í London: Storkclub
og Keyhole; einnig sungið á skemmt-
unum breskra hermanna á Kýpur.
Hótel Borg hefir ráðið Mary Mars-
hall til að syngja með dansliljóm-
sveitinni sex kvöld í viku (milli kl.
9 og 11,30 á kvöldi) fram í febrúar-
byrjun. Syngur ungfrúin alls konar
dans- og dægurlög, auk þess sem hún
sýnir stutt kabarettatriði á hverju
kvöldi.
Stjórnandi hljómsveitarinnar á
Hótel Borg er nú Björn B. Einarsson,
sem leikur á básúnu og harmoniku.
Aðrir í hljómsveitinni eru: Stcinþór
Steingrímsson pianóleikari, Erwin
Köppen bass.aleikari og Torfi Bald-
ursson gítarleikari.
flrió m leiö vor
Loftleiðam mjög hogststt
Árið 1958 ferðuðust 20.702 farþegar
með flugvélum Loftleiða. Er ])að tæp-
lega 1.800 farþegum fleira en árið
1957 og nemúr aukning farþegatöl-
unnar um 7%. Vöruflutningar jukust
um svipaða hundraðtölu, en póst-
póstflutningar minnkuðu títillcga. Atls
voru flutt um 250 tonn af vörum.
Flugkílómetrar urðu 3 miltj. og 270
þúsund, farþegakilómetrar um 121
milljón.
Aukningin ein, sem orðið liefir á
farþegafjölda og vörumagni, segir
ckki nema lítið eitt um það, sem
mestu máti skiptir i flugrekstrinum,
cn það er hversu tekist hefir að nýta
flugkostinn, því að sá þáttur er jafn-
Framhald á bls. 15.
Orðsending til sjómanna
Fyrir rúmu ári byrjuðum við að framleiða nýja gerð af sjóstökkum.
Þeir eru saumaðir með nælongarni og síðan rafsoðnir, sem algjörlega
útilokar leka.
Sjóstakkar þessir eru léttir og mjúkir jafnframt því sem þeir eru sér-
staklega sterkir og hafa reynst mjög vel.
Þeir sjómenn sem enn hafa ekki reynt þá, ættu að reyna hina ágætu
kosti þeirra sem fyrst.
Merki stakksins er MAX, og fæst í flestum verslunum um land allt.
Verksmiðjan MAX h.f*
Söluumboð
Davíð S. Jónsson & Co. h.f.
Brýnið fyrir börnunum að fara varlega
með eldinn.
Það hefir margsannast, sem máltækið
segir: OFT VELDUR LÍTILL NEISTI
STÓRU BÁLI.
Athugið, að hafa tryggingar yðar ávallt í
samræmi við verðlag'.
ALMENNAR TRYGGINGAR H.F.
Austurstræti 10, Reykjavík
Umboðsmenn um allt land.