Fálkinn


Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 8

Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 8
BRAGÐI-Ð Flotinn safnaðist saman úti á hafinu þegar byrjaði að dimma og stefndi á Ventotene-ey með hraða, sem hafði ver- ið reiknaður nákvæmlega út, til þess að vera á ákvörðunarstað, er tunglið hyrfi. Það var næstum fullt tungl, og við vild- um ekki að íbúarnir vissu nákvæmlega um styrk okkar. Árásin átti ekki að hefjast fyrr en orðið væri aldimmt. Hægt og rólega mjökuðust skipin áfram yfir lygnan sjóinn. Landgönguliðarnir, sem valdir höfðu verið til árásarinnar, sátu á þilfari eins tundurspillisins og horfðu á tunglið. — Mánuðum saman höfðu þeir verið þjálf- aðir i að falla niður í fallhlíf, og nú áttu þeir að fara inn í eldlínuna í fyrsta sinn — á sjónum. Þeir voru óöruggir og fannst sér misboðið. Meðfram strönd Ítalíu gerði lofther- inn ákafar árásir. Frá skipunum mátti óijóst greina fallandi sprengjur, heyra sprengingar og bál sáust greinilega blossa upp. En flugmennirnir voru of önnum kafnir til að geta sinnt litla flot- anum, sem sigldi í norður-átt. Stundin hafði verið nákvæmlega á- kveðin. Tunglið varð eldrautt, og þessa stuttu stund áður en það hvarf niður í hafið bar hálenda eyjuna eins og svart- an skugga í glóandi tunglið. í sömu svipan varð niðamyrkur svo að maður greindi ekki þann, sem stóð við hlið manns. Ekkert ljós var að sjá á eynni. Hún hafði verið algjörlega myrkvuð síðustu þrjú árin. Jafnskjótt og skipaflokkarnir voru komnir hver á sinn stað, skreið lítill bátur, sem í var hátalari inn að ströndinni. Um það bil 4—500 metra frá landi var hátalarinn settur í gang og ógnþrungin rödd kallaði í átt til myrkv- aðs bæjarins. „ítalir! gefizt upp! Við erum á leiðinni með mikið lið. Hinir þýzku bandamenn ykkar hafa yfirgefið ykkur. Þið fáið 15 mínútur til að ákveða ykkur. Ef þið viljið gefast upp, þá skjótið á loft þrem- ur flugeldum. Að þremur mínútum liðn- um skjótum við — ég endurtek, ítalir! gefizt upp! ... “ Síðan varð algjör þögn. Á einum tundurspillanna stóðu liðs- foringjarnir í hóp í brúnni og störðu út í myrkrið í átt til eyjarinnar. Óbreyttu hermennirnir hölluðu sér yfir borðstokk- inn og horfðu í sömu átt. Liðsforinginn, sem stjórna átti árásinni, leit í sífellu á úrið, og það var svo dimmt að sjálf- lýsandi úrskífan sást úr 5—6 metra fjarlægð. 8 FÁLKINN Fallbyssurnar voru tilbúnar — þeim var öllum beint að eynni. Mínúturnar þokuðust áfram. Enginn var hrifinn af að beita tortímandi vopnum. Tíminn leið löturhægt — 10 — 11 — 12 mínút- ur. Grænu vísarnir á lýsandi úrskífunni hreyfðust hægt — mjög hægt. Höfuðsmaðurinn sagði nokkur orð, lágum rómi í símann, og dauft hljóð heyrðist er dyrnar á stjórnklefanum opnuðust og lokuðust. Á því augnabliki er vísirinn sýndi að 14 mínútur voru liðnar, var þrem hvítum flugeldum skotið á loft á eynni. Þær voru eins og blóm á svörtum himn- inum, svifu í yndislegum boga — og féllu niður. Síðan komu aðrir þrír, til frekara öryggis. Skipstjórinn kinkaði kolli alls hugar feginn og sagði aftur eitthvað í símann. Það var eins og allt skipið andaði léttar. í matsal liðsforingja sat foringi árás- arinnar. Hann var í khakifötum — skyrtan var opin í hálsinn og ermarnar uppbrettar. Hann var með hjálm á höfð- inu, og á borðinu fyrir framan hann lá vélbyssa. , Ég fer í land og tek við uppgjöfinni,“ sagði hann og kallaði svo upp nöfn fimm manna, sem áttu að fylgja honum. „Sendið landgönguliðssveitirnar í land eins fljótt og unnt er,“ skipaði hann, „setjið bátinn útbyrðis.“ Það var dimmt á þilfarinu — menji urðu að þreifa sig áfram. Björgunarbát- arnir voru úti, eins og alltaf í árás, og nokkrir sjóliðar voru að setja út skips- bátinn. Eitt andartak hékk hann í hæð við þilfarið, svo áhöfnin kæmist um borð — stýrimaðurinn og vélstjórinn voru þegar komnir á sinn stað. Fimm liðsforingjar vopnaðir vélbyssum klifr- uðu yfir borðstokkinn og tóku sér sæti. Allir voru með hylki með skotum á byssunni — og hulstur með öðru hylki. Báturinn var settur út og um leið og hann var kominn í sjóinn var vélin sett í gang. Báturinn var leystur frá og tekin var stefna á eyna. Beita varð ágizkun, því það grillti ekki einu sinni í eyna. Foringinn mælti — „Við verðum að komast í land og afvopna þá áður en þeir skipta um skoðun. Það er ekki að vita upp á hverju þeir kunna að taka, ef þeir fá tíma til.“ „Hættið ekki á neitt,“ hélt hann á- fram, „skjótið strax ef einhver sýnir minnsta vott um mótstöðu.“ Báturinn nálgaðist myrka ströndina — vélin gekk með hálfum hraða og það heyrðist lítið sem ekkert til hennar .... Höfn Ventotene er þröngur fjörður, og í botni hans er klettur, sem liggur í hálfhring. Á þessum bogmyndaða kletti stendur bærinn, hátt yfL hafinu. Hægra megin við fjörðinn er hafnar- garður og lítill brimbrjótur, sem ekki er landfastur — en honum er komið þarna fyrir til að hindra að stórar haf- öldur skelli yfir hafnargarðinn. Vinstra megin við innsiglinguna er lítill fjörður, mjög líkur höfninni sjálfri, en þar geta engin skip lagzt að. Báturinn nálgaðist ströndina með mennina fimm, og jafnskjótt og foring- inn áleit að þeir væru rétt við land, kveikti hann á vasaljósinu sínu eitt and- artak og koma auga á eitthvað, sem virtist vera djúpur fjörður. Hann gerði

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.