Fálkinn


Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 10

Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 10
og stefndi á lögreglustöð, sem var þar rétt hjá. Áður en hann komst þangað, náðu rússnesku SMERSH-þjónarnir hon- um. Þeir fluttu hann aftur til sjúkrahúss- ins og skipuðu lækninum, sem var á vakt, að gefa þessum „andlega vanheila“ sjúklingi stóran morfínskammt. — Því næst tóku þeir ofurstann hálfmeðvitund- arlausan og fluttu til rússneska sendi- ráðsins. Nokkrum dögum seinna voru sömu Rússarnir á flugvellinum við Rangoon, þar sem þeir skipuðu heilum hóp blaða- manna og ljósmyndara að hafa sig á brott frá kínverskri flutningaflugvél, sem rétt áður hafði lent. Blaðamennirn- ir neituðu auðvitað að verða við skip- unum þeirra, þar eð í fyrsta lagi höfðu skipanir rússneskra sendiráðsstarfs- manna enga þýðingu utan sendiráðsins sjálfs og í öðru lagi lék grunur á, að kínverska flutningavélin hefði lent í Rangoon í þeim tilgangi að smygla Stryguine út úr Burma og var að sjálf- sögðu ágætt fréttaefni, hvernig Rúss- arnir ætluðu sér að framkvæma verkn- aðinn. Blaðamennirnir voru ekki lengi í vafa. Á mínútunni kl. 6 óku tólf rússneskar bifreiðar upp að kínversku flutninga- vélinni. 40 Rússar komu út úr bifreið- unum og umkringdu blaðamennina, en fjórir menn báru rússneska ofurstann að vélinni. Max Mc Grath, fréttaritari „Time Magazine“ hrópaði til Stryguin- es, sem var næstum meðvitundarlaus: „Farið þér frá Burma af frjálsum vilja?“ Þetta var heldur barnaleg spurning, en nóg til þess að Rússarnir 40 fóru að hugsa sér til hreyfings. McGrath var sleginn niður og fengu tveir aðrir blaðamenn sams konar með- ferð, en um leið voru myndavélar ljós- myndaranna brotnar mélinu smærra. Rússarnir létu sem þeir sæu ekki lög- regluna, sem seint og síðarmeir tókst að binda endi á áflogin, og ráku diplómata- vegabréf sín upp að nefinu á lögreglu- Eftirminnilegur at- burður gerðist í Ástr- alíu fyrir nokkrum árum. — Útsendara Smersh grunaði Pet- rov-fjölskylduna um græsku og skipaði henni að hypja sig til Sovétríkjanna. Pet- rov sjálfum tókst að flýja og Ieita hælis hjá áströlskum yfir- völdum. Frú Petrov var hins vegar kyiT- sett í sendiráðinu. Það var 3. maí 1959, sem rússneski offurstinn Mikhail I. Stryguine, hern- aðarráðunautur sendiráðs Sovétríkjanna 1 Burma, tók ákvörðun sína. Hann var þreyttur á kalda stríðinu og óskaði að- eins friðar og þægilegs lífs, einhvers staðar uppi í sveit. — Stryguine hafði ákveðið að gerast liðhlaupi og leita hæl- is hjá Vesturveldunum. Hann hafði gert nákvæma áætlun um flóttann, sem hann vissi, að yrði mjög erfiður. Jafnvel í sendiráðsbyggingunni voru hafðar stöðugar gætur á honum, þótt hann væri þúsundir kílómetra frá Kreml. Kl. 3 aðfaranótt 4. maí gleypti Stryg- uine heil ósköp af svefntöflum og stuttu síðar var hann í sjúkrabifreið á fleygi- ferð til Aðalsjúkrahússins í Rangoon. Þrír aðrir menn voru í bifreiðinni með honum, tveir Rússar og læknir, sem var innfæddur. Rússarnir voru starfsmenn SMERSH- njósnahringsins. Áætlun Stryguines var ósköp einföld. Þar sem hann hafði gleypt svo mikið af svefntöflum myndi hann fluttur í flýti á sjúkrahús og Þar myndi hann reyna að setja sig í samband við yfirvöld Burma og öðlast þá vernd, sem hann áleit sér nauðsynlega. í sendiráðinu, nr. 42 við Inya Road, grunaði menn samt, að Stryguine hefði eitthvað óhreint í pokahorninu, a. m. k. voru menn þess ekki alveg fullvissir, að Stryguine hefði gleypt töflurnar ó- vart og til öryggis voru tveir meðlimir SMERSH látnir fylgja honum til sjúkra- hússins og hafa þar gát á honum. Þegar Stryguine rankaði úr rotinu morguninn eftir, varð honum brátt ljóst, að áætlun hans hafði misheppnazt. Hann vissi einnig, að varðmennirnir við rúm- stokkinn hans voru öruggt merki þess, er koma skyldi, þá er hann yrði sendur heim til Sovétríkjanna. Hann lá lengi og hugsaði málið. En skyndilega spratt hann á fætur og fleygði sér út um glugg- ann. Hann meiddist á fæti við fallið, en haltraði samt inn í næstu hliðargötu SMERSH Kalda stríðið hefur ýmislegt óskemmtiíegt r för með sér, t.d. víðtækar njósnir stór- veldanna. Hér segir frá rússneska njósna- hringnum, sem hefur að aðalstarfi að njósna um rússneska njósnara! 10 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.