Fálkinn


Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 31

Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 31
„Hve marga menn hafið þér?“ spurði Þjóðverjinn. „Við svörum ekki slíkum spurning- um,“ svaraði höfuðsmaðurinn kuldalega. Þjóðverjinn varð kuldalegur og hörku- legur á svipinn. Hann mælti: „Ég trúi ekki að þið hafið 600 manns — ég held, að þið hafið ekki nema 30—40 manns.“ Höfuðsmaðurinn hneigði höfuðið og sagði: „Við höfum sett sprengiefni und- ir húsið. Ef einhver uppsteit verður, sprengi ég allt saman í loft upp.“ Hann snerist á hæli og gekk út úr klefanum. „Það líður ekki á löngu unz þið verðið fluttir um borð í skipið,“ sagði hann og leit um óxl. Á leiðinni niður sagði liðsforinginn: „Hafið þér raunverulega látið sprengju- efni undir húsið, herra?“ Höfuðsmaðurinn brosti. „Höfum við í raun og veru 600 menn?“ spurði hann. Og bætti svo við: „Ég vona ákaft, að tundurspillirinn komi í nótt og losi okk- ur úr þessari barnagæzlu.-------Eng- um okkar fellur blundur á brá fyrr en við erum lausir við þá.“ SMERSH - Framh. af síðu 11. vera sást standa í glugganum. Hún hik- aði nokkur augnablik og stökk. Augnabliki síðar lá Oskana Kasen- kina stórslösuð á gangstéttinni. — SMERSH-menn komu þjótandi út úr byggingunni, en áður en þeir náðu til hennar, höfðu tveir lögregluþjónar kom- ið á vettvang og virtu hótanir Rússanna ekki viðlits. Annar þeirra tók sér stöðu við hlið hennar með hlaðna skammbyssu en hinn náði í sjúkrabíl í snatri. Oskana Kasenkina lifði af þessa sjálfs morðstilraun sína og er nú bandarískur ríkisborgari. Hún er ein þeirra fáu, sem sloppið hafa undan SMERSH — en hún lifir enn í stöðugum ótta við hefndar- aðgerðir. Aðrir hafa ekkf verið jafnheppnir og Kasenkina. Rússneskur hershöfðingi flýði fyrir nokkru til Vestur-Þýzkalands þegar hann uppgötvaði, að rússnesku leyniþjónustunni líkaði ekki stjórnmála- leg sjónarmið hans. Frá Vestur-Þýzka- landi flaug hann til Washington og þar sem hann nú áleit sig öruggan, veitti hann bandarísku leyniþjónustunni ýms- ar upplýsingar. Stuttu síðar fannst lík hans með stórum áverkum rétt hjá hót- elinu, þar sem hann bjó undir fölsku nafni. Allt benti til þess að hann hefði framið sjálfsmorð — en bandarísku leyniþjónustuna grunar SMERSH. Þegar Fidel Castro brauzt inn í Hav- ana, höfuðborg Kúbu, og lokaþáttur bar- áttunnar við Batista stóð sem hæst, fannst lík kaffikaupmanns nokkurs í klefa í aðalstöðvum lögreglunnar. Allir gerðu ráð fyrir, að hann hefði verið eitt af fórnardýrum lögreglu Batista — en það var bandaríska leyniþjónustan, sem komst að því, að hann hefði verið með- limur í rússnesku leyniþjónustunni og dvalizt á Kúpu í því augnamiði að taka ljósmyndir af skjölum varðandi varnir Panamaskurðarins. En Rússarnir munu líka hafa haft einhverja hugmynd um að hann veitti einnig bandarísku leyni- FRÁ SJÓNARHÓLI STJÖRNUSPEKINNAR Er skilnaður óhjákvæmi- legur? Ég vona, að þú getir leyst úr vandamáli, sem ég hef átt við að stríða, en án nokkurs árangurs enn. Ég er fædd 14. júní 1924 klukkan 4:35 e. h. Ég giftist manni, sem er fædd- ur 2. nóvember 1923. Hann fórst í bifreiðaslysi 1. janúar 1950. Litla stúlkan okkar fæddist 24- desember 1945. Ég giftist aftur 1953 manni, sem fæddist 17. septmber 1925. Okkur er mjög deilugjarnt. Hann spilar fjárhættuspil, drekkur og á mök við aðrar konur, og borgar einfaldlega ekki reikninga sína og skuld- ir. Rukkarar eru tíðir gestir á heimili okkar. Hann falsaði jafnvel tekjuskattinn okkar og nýlega sagði hann mér, að bankinn sé í þann mund að bjóða húsið upp. Árið 1958 hitti ég mann, sem olli því, að ég fór að hafa áhuga á stjörnuspeki. Hann er fæddur 24. september 1942, um klukkan 1 eftir hád. Það er svo margt, sem hægt er að rannsaka og skilja í ljósi stj örnuspekinnar. En ég á enn 1 vandræðum með Meyjarmerkis-eiginmann minn. Við höfum ekki búið saman í eitt ár, og allan þann tíma hef ég vonazt til að hann sneri til betri breytni. Ef ein- hver breyting hefur átt sér stað, þá er hún til hins verra. Þar af leiðandi verð ég að sækja um skilnað. Hann er með stjörnuafstöður í Meyjar- merkinu, sem virðast hafa tals- vert að segja í sambandi við sjálfselsku hans. ★ Ég þykist Þess fullviss, að þú vitir að þú ert fædd með sólina í Tvíburamerkinu, þannig að líf þitt er stöðug- um breytingum undirorpið. í fæðingarkortinu þínu er Mán- inn, veikur, í Vatnsberamerk- inu, rétt hjá rísandanum. Rís- andi Máni gefur ávallt til kynna mjög breytilegt líferni, enda þótt þú vildir setjast að og eiga rólega lífdaga, mundi það verða þér mjög örðugt. Ef þú vildir leggja hart að þér til að koma þessu í kring, yrðir þú að breyta algjörlega um verustað langt til vesturs, þannig að Úranus færi út úr fjói ða húsi fæðingarkorts þíns og meira samræmi yrði í heim- ilislífi þínu. Þú varst hamingjusöm í fyrsta hjónabandinu, vegna þess að Máninn í fæðingar- korti þínu var í sama merki og Sól eiginmanns þíns. Þegar þú giftist Meyjarmerkismanni þá var Tunglið í fæðingarkorti þínu í gagnafstöðu við Uranus í hans korti og í vinkilafstöðu við Sólina og Júpiter. Hér er um að ræða hinar erfiðustu plánetuafstöður. Satúrn í fæðingarkorti þínu er í þrenningarafstöðu við Marz og gerir þetta þig sam- vizkusama. Hann hefur Fæð- ingarkort Marz í gagnafstöðu við Tunglið, þannig að hann er algjörlega samvizkulaus hvað félagsskap við aðra á- hrærir. Þagmælska hans við þig hvað snertir ástandið í fjár málunum, stafar frá samstöðu Venusar og Saturnusar í Sporðdrekamerkinu, í fjár- málahúsi hans. Að vissu leyti endurspeglar bréf þitt hinn aldagamla draum konunnar, að breyta manninum. En breytingarnar verða ávallt að koma frá ein- staklingnum sjálfum. Ef eigin- maður þinn var eins og þú lýsir honum, fyrir giftinguna, leikur mikill vafi á því, eins og plánetuafstöðum þínum er háttað, hvort breytingar gætu átt sér stað núna. Engum stjörnuspeking þykir gott að ráðleggja skilnað. En þegar tekið er tillit til breytts Tungls fæðingarskorts þíns núna, verður hann beint yfir Úran- usi í Fiskamerkinu og myrkv- ana 1960. Er því líklegt, að skilnaður hafi átt sér stað þeg- ar þetta fer í prentun. Ég þykist þess fullviss, að þú skiljir sökum lærdóms þíns í stjörnuspeki, að eiginmaður þinn á ekki heima í neinum félagsskap. Og það er rétt, að afstöðurnar í Meyjarmerkinu gera hann eigingjarnan. Láttu þessa reynslu þér að kenningu verða. í fyllingu tímans muntu aftur giftast. En vertu samt fullviss þess áður en svo er komið málum, að plánetuafstöður maka þíns séu í samræmi við þínar. Einnig þú átt í stríði við hið hættu- lega skilnaðarafstæði. Eina leiðin til að sigrast á þessum á- hrifum er að velja hinn rétta félaga. Þegar þetta er mögu- legt, skaltu yfirgefa fæðingar- hérað þitt. Það hefur ekki hvað minnsta þýðingu. FÁLKINN 31

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.