Fálkinn


Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 14

Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 14
ÆVINTÝRAFRINSESSAN Það er erfitt að viðurkenna, að pen- ingar séu undirrót alls ills, en hins veg- ar er ljóst, að hamingjan fæst ekki ein- göngu með þeim. Eitt dæmi af mörg- um er Barbara Hutton, ríkasta kona veraldar. Móðir hennar, Edna, var dótt- ir Woolworths, sem varð milljónamær- ingur á þúsundum tímarita, sem hann stofnaði og sem öll kostuðu annað hvort 5 eða 10 sent. Edna giftist kauphallar- mangara, og þau eignuðust eina dóttur, Barböru. Þegar Barbara var fimm ára gömul, fleygði móðir hennar sér út um glugga á tuttugustu hæð á Hotel Plaza. — Ég hef aldrei þekkt móður mína og hef saknað hennar allt mitt líf, hef- ur Barbara oft sagt. Hvort sem það er maklegt eða ekki, þá er föður hennar borið á brýn, að hafta fengið sér oft í staupinu og verið of mikíð upp á kvenhöndina. Hvað sem því líður, hefur hann ekki sinnt barni sínu sem skyldi. Þegar hann kvæntist öðru sinni, varð stúlkan mest 1 eldhús- inu! Hún var ekki falleg, stirðbusalega vaxin og hafði mjög slæma húð í and- litinu. Þegar hún tólf ára gömul erfði i-n 78 milljónir dollara eftir afa sinn, ósk- aði heimilisþjónninn henni til hamingju með þessum orðum: — Vertu glöð yfir þessum pening- um! Án þeirra giftist þú aldrei. Hún tók þessi ummæli mjög nærri sér. Eins og allar ungar stúlkur á henn- ar reki dreymdi hana um rómantíska ást, og kennslukonan hennar hafði oft sagt henni, að hjónaband án ástar væri viðbjóðslegt. Þegar hún sagði föður sín- um frá þessum ummælum þjónsins skömmu síðar, virti hinn mikla kvenna- maður dóttur sína fyrir sér, stundi og sagði: ■— Því miður held ég að William hafi á réttu að standa. Vanmáttarkennd hennar hefur að sjálfsögðu vaxið við ummæli af þessu tagi. Fimmtán ára gömul fór hún í ferða- lag til Evrópu Það þótti amerískum milljónamæring jafnnauðsynlegt og að fermast. Rík frænka kynnti hana fyrir heldra fólkinu í París. í þeim félags- skap kepptist fólkið við að vekja á sér athygli og Barbara reyndi eins og hinir. Hún lakkaði til dæmis neglur sínar svartar og sagði hverjum sem hún mætti, að hún væri barnabarn hins mikla Woolworths. Þetta hreif, alls stað- ar nema í París. Þá voru flugsamgöng- ur enn ekki hafnar og borgin hafði ekki orðið fyrir áhrifum frá New York. Hana dreymdi um ævintýraprins og varð djúpt snortin, þegar hún var kynnt fyrir prins Mdviani. Það var raunar efast um titil hans, en hann var af rúss- neskum ættum og þess vegna erfitt að sanna neitt í málinu. Og Alexis Mdviani var gæddur þeim sérstaka hæfileika að geta alltaf komið sér í kynni við stúlk- ur, sem voru hvort tveggja í senn: mill- jónamæringar og þyrstar í ást. Hann lagði þegar í stað snörur fyrir Barböru, enda þótt hann væri giftur frægum og ríkum afkomanda Astor-ættarinnar. — Hann fékk lánaða álitlega peningaupp- hæð hj á bróður sínum til þess að hrinda áætlun sinni 1 framkvæmd. Hann ætlaði ekki að hegða sér eins og Hans klaufi og nota dauða kráku og aur til þess að vinna kóngsdótturina. Nei, hann kom fram eins og fullkomnum riddara sæmdi Barbara Hutton er ríkasta kona heims og í lífi hennar hefur vissulega ekki skort tiginborna eiginmenn. En þeir hafa viljað girnast milljón- irnar fremur en hana sjálfa...

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.