Fálkinn


Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 26

Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 26
Það þarf ekki seðil til að hreppa stóra vinninginn í happdrætti lífsins. Hún varð að bíða talsvert lengi þang- að til hún sá hann koma. Hún hafði vitað það fyrir, svo að það kom ekki að sök. Að öðru leyti en því, að henni var svo hræðilega kalt. Hún reyndi að blása í kaun gegnum hanzkana, en það dugði lítið. Eigi að síður þótti henni vænt um að veðrið var svona. Því að í slíku veðri kusu margir bíleigendur að láta bílinn standa heima. Göturnar voru glerhálar og bílrúðurnar hrímaði í svona kulda. Marz gat stundum verið hræði- lega kaldur. Og það var hann í þetta sinn. Loksins — loksins kom hann, þessi maður, sem bar það utan á sér, að hann var ríkur. Hún sá hann kaupa farmiða. Vitanlega hafði hann ekki mánaðar- miða, því að hann notaði bílinn að öll- um jafnaði. Hún stóð í biðröðinni og hafði ekki augun af honum. Hún athugaði hvaða klefa hann færi inn í. Eftir hálfa mín- útu sat hún andspænis honum. Hann var með samanbrotið dagblað 1 vasan- um. Jafnvel í því tilliti hafði hann hag- að sér eftir vonum hennar. Nú vonaði hún að hann færi að lesa í blaðinu ... ★ Preben Hoff leit kringum sig í klef- anum. Að því slepptu, að honum var illa við þefinn af votum fatnaði, fannst honum gaman að nota járnbrautina, svona stöku sinnum. Það var eiginlega skrítið að sitja í járnbraut. Eins konar kassa á hjólum. Og kassinn hreyfðist eftir mótaðri línu, að einhverju ókunnu marki... Ókunnu? Hvaða bull! ... Lest- in var á leið til Holte. Hann tók blaðið úr vasanum. Það var ekki neitt gaman til lengdar að horfa á öll þessi meira og minna lokuðu andlit. Honum fannst ólundarsvipur á þeim flestum. Ólund út af vetrinum, sem var svo þaulsætinn og vildi ekki hleypa vorinu að. En fyrirsagnirnar í blaðinu voru ekkert girnilegar heldur. Ekki annað en samgöngu-erfiðleikar og veðurútlit með mínusmerki framan við. — Afsakið þér, sagði rödd rétt hjá honum. — Ég veit að það er frekja af mér, en... Röddin þagnaði eins og hún hefði orð- ið hrædd, en þegar hann leit upp horfði hann framan í stúlkuandlit. Og honum fannst langt síðan hann hefði séð svona fallegt andlit. — Já, hvað var það? sagði hann vin- gjarnlega. — Mér datt í hug ... ef þér ætluðuð að líta á happdrættisvinningalistann hvort sem var . . . sagði stúlkan. Hún tafsaði þetta og vafðist tunga um tönn. — Skiljið þér... ég kom á síðustu stundu á brautarstöðina, svo að ég hafði ekki tíma til að kaupa mér blað sjálf 26 FÁLKINN — en ég má til að sjá vinningalistann. Mig dreymdi nefnilega í nótt... Hún leit undan, og hann þorði að bölva sér upp á að hún roðnaði. — Hvað dreymdi yður? spurði hann með einlægum áhuga. — Að ég vann, sagði hún og leit aft- ur á hann. Hún var bláeyg. — Og nú vonið þér að fá staðfestingu á því? sagði hann hlæjandi, — og nú vonaði hann allt í einu að þetta gengi eftir. Honum sýndist á stúlkunni, að hún hefði þörf fyrir að vinna í happ- drættinu. Hún kinkaði kolli og hann 'fletti upp á vinningalistanum. — Hvaða númer eigið þér spurði hann. — 22131, sagði hún. Hann renndi augunum yfir listann. Þarna stóð það. Það stóð þarna svart á hvítu. Hann horfði á hana og hún virtist geta lesið hugsanir hans. Allt í einu fölnaði hún. — Hve mikið? spurði hún með kipr- ur um munninn. Hönd hennar, sem ó- sjálfrátt hafði snert handlegginn á hon- um, titraði. — Hundrað þúsund, sagði hann. — Heyrið þér... yður er vonandi ekki að verða illt? Komið þér, við skulum fara úr lestinni hérna — það er Öster- port. Við förum inn einhvers staðar, þar sem hægt er að fá eitthvað til að hressa yður á. Ég gat ekki betur séð en að þér væruð að fá aðsvif ... — Ég er eitthvað undarleg, finnst mér, sagði hún og studdi sig við hand- legginn á honum. Hann fór með hana inn í veitinga- stað og bað um tvö konjaksglös án þess að spyrja hana. Hún var náföl ennþá. Hún horfði á hann yfir glösin og reyndi að brosa. —- Yður hlýtur að finnast ég haga mér talsvert einkennilega, sagði hún. — En, skiljið þér — þetta skiptir ákaf- lega miklu máli fyrir mig. Ég fékk ný- lega bréf frá systur minni, sem á heima í Osló. Hún er veik og spyr mig um, hvort ég geti ekki komið til sín og hjálpað sér — hún er gift og á tvö foörn. Og ég vildi fyrir hvern mun geta gert þetta — hún gerði svo mikið fyrir mig áður en hún giftist — en — ég hafði í rauninni ekki efni á að gera þetta. Og svo er ekki hægt um vik að biðja um frí frá störfum alveg upp úr þurru. Það gæti kostað mig stöðuna. En nú . . . nú get ég farið. Nú get ég endurgoldið svo- lítið af öllu því, sem Sonja hefur gert fyrir mig. Það fer skip á morgun. Ég get tekið saman dótið mitt og farið til hennar -— einmitt núna, þegar hún þarf mest á mér að halda. Mér finnst það svo dásamlegt. . . — Jæja, en vinningarnir eru nú lík- lega ekki greiddir svo fljótt, ungfrú mín góð! sagði Preben, en fannst hann hafa drýgt glæp, er hann sá vonbrigðin í augum hennar. — Ó, sagði hún. Honum hafði aldrei dottið í hug, að jafn mikil vonbrigði gætu falizt í jafn stuttu orði. — Hve langan tíma haldið þér að það taki að fá vinninginn greiddan? — Hálfan mánuð, sagði hann með semingi. — í minnsta lagi. — Ó, sagði hún aftur. Þá kemur þetta ekki að gagni, þrátt fyrir allt... ★ Honum datt í hug að biðja um ann- að koníaksglas handa henni til þess að hressa hana eftir vonbrigðin, en svo datt honum í hug, að kannski væri hún svöng, — að minnsta kosti var hann svangur sjálfur. Svo hann bað um mið- degisverð í staðinn. — Við getum þó að minnsta kosti gert okkur dagamun í tilefni af vinningnum, sagði hann. Hún kinkaði kolli og reyndi að brosa. Þegar maturinn kom gerði hún sér far um að láta sem minnst á vonbrigðum sínum bera, og henni tókst jafnvel að hlæja að sjálfri sér fyrir að hafa verið svo vitlaus að halda að hún gæti fengið happdrættisvinninginn að vörmu spori. Hún sagði honum frá hálfseðlinum — Hve erfitt hefði verið stundum að hafa peninga til að framlengja hann. En mig dreymdi alltaf um að vinningur kæmi á það, sagði hún. — Og í nótt dreymdi mig aftur um hann — og loksins kom það fram. Mér þykir svo vænt um að þér skuluð vilja gera mér glaðan dag í tilefni af því, þó að ... Hún beit á vörina, eins og hún væri að birgja síðustu orðin niður. — Þó að þér vilduð heldur vera á leiðinni til Oslóar núna? bætti hann við það, sem hún hafði sagt. Hún kinkaði kolli. — Þér megið ekki skilja það svo, sem mér þyki ekki gam- an að vera með yður, sagði hún. — Það þykir mér sannarlega, en. . . — Ætli þér komizt ekki með skipinu til Oslóar á morgun, sagði hann. Það var líkast og orðin kæmu ósjálfrátt, án þess að hann hefði í rauninni ætlað að Happdrættis

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.