Fálkinn


Fálkinn - 01.02.1961, Side 28

Fálkinn - 01.02.1961, Side 28
* ffi 21. MARZ — 20. APRlL 21. APRÍL — 21. MAl 22. MAÍ — 21. JÖNÍ 22. JÚNl — 22. JÚLl 23. JÚLÍ — 23. AGÚST 24. ÁGÚST— 23. SEPT. 24. SEPT. — 23. OKT. 24. OKT. — 22. NÓV. 23. NÓV. — 21. DES. 22. DES. — 20. JAN. 21. JAN. — 18. FEBR. 19. FEBR. — 20. MARZ STJÖRNUSPÁIN HrútsmerkiS: Vikan byrjar sérlega vel, og það verður sáralítið, sem verður yður til leiðinda. Það verður mikil birta og gleði um- hverfis yður bæði á vinnustað og í einkalífi. Á föstudag eða laugardag gerist atvik, sem kemur sér mjög vel fyrir yður. NautsmerkiS: Fyrstu daga vikunnar verður einhver tregða hjá yður á flestum sviðum, en þegar líða tekur á vikuna færist fjör í starfsemina og þér fáið meira en nóg að gera upp frá því. Hikið ekki við að fitja upp á nýjungum og skiptið meira að segja um stöðu, ef það er yður hagstætt fjárhagslega. TvíburamerkiB: Hagstæðir vindar blása í lífi yðar þessa viku, ef svo má að orði komast. Þér takið yður fyrir hendur starf, sem er yður framandi í fyrstu, en allt gengur samkvæmt áætlun, þegar fram í sækir. Gætið yðar í peningamálunum! Útgjöldin eru orðin ískyggilega há. KrabbamerJciB: Vikan verður heldur strembin. Miklar kröfur verða gerðar til yðar og þér verðið að taka á öllu sem þér eigið til þess að valda ekki vonbrigðum. Gætið þess vel að halda stillingu yðar, leysa verkefnin í áföngum hvern fyrir sig, unz verkinu er blessunarlega lokið. LjónsmerlciB: Þetta verður friðsamleg vika, en dauf og allt annað en spennandi. Samt skuluð þér hafa augun hjá yður og gæta vel að, hvort ekki leynast einhvers staðar möguleikar. Reynið að gera gott úr lítils háttar rifrildi í fjölskyldunni. Ella get- ur þetta lítilræði vaxið og orðið að heiftugu stríði. Jómfrúarmerkið: Það er dálítið drungalegt umhverfis yður þessa viku, og því vissara að leggja ekki út í neina tvísýnu eða nýjar braut- ir. Erfiðleikar verða á vegi yðar og ástandið verður verra, ef þér sneiðið hjá þeim og reynið að komast. undan að leysa vandamálin. Það birtir til í vikulokin og helgin verður kær- komin hvild. VogarskálarmerlciB: Þetta verður vika mikilla tíðinda. Áföll og þrengingar, sem leika yður grátt, breytast stuttu síðar í gleðileg tíðindi. — Þannig er þet.ta oft: Það, sem í fljótu bragði virtist hræði- legt, var til góðs, þegar alít kom tii alls. SporBdrekamerkiB : Stjörnurnar eru yður hliðhollar í þessari viku, og ef þér hafið að undanförnu haft í huga að framkvæma djarfa hug- mynd, þá er einmitt núna rétti tíminn til að gera það. Reynið að vera sjálfstæður og taka ekki alltof mikið tillit til skoðana annarra. Ef þér gerið það, uppgötvið þér dag nokkurn, að þér standið á eigin fótum í ríkara mæli en yður óraði fyrir. BogmannsmerkiB: . Það er varasamt að treysta öðrum en sjálfum sér. Jafnvel þeir, sem maður heldur beztu vini sína og stuðningsmenn, bregðast, þegar mest á rcynir. Athugið þetta mjög vel í þess- ari viku. — Eitt kvöld vikunnar verður eins og vin í eyði- mörkinni. Þér munuð lengi minnast þess kvölds. SteingeitarmerkiB: Viðburðarrík vika og allt gengur skár en horfur voru á. Lítið atvik breytir viðhorfi yðar til hins hversdagslega lífs: Jafnvel þessi vanabundna vinna yðar, verður alls ekki sem verst og fjölskyldulífið vel viðunanlegt, ef það er litið réttum augum. VatnsberamerkiB: Vikan byrjar illa, en fyrr en varið gerist nokkuð, sem fangar hug yðar til fulls. Þér fyllist að nýju lífi og áhuga, en varist að leggja út. í fyrirtæki, sem fjárhagslega er yður um megn. — Ástamálin yðar eru orðin talsvert flókin, og fyrr eða síðar hlýtur eitthvað að rekast á í þeim efnum! FislcamerkiB: Vikan verður starfsöm en skemmtileg. Annríkið verður ekki einasta á vinnustað, heldur einnig í einkalífinu, og ýmsar breytingar t.il bóta verða á þeim vígstöðum. Hættið nú að láta þetta gamla ástarævintýri gera yður gramt í geði! Það er enginn vandi að gleyma, ef maður vill. l! I ::: Íii ::: 1 6 BRAGOIO - Framh. af bls. 9. unum, — þeir reyna eflaust að halda þeim.“ í sömu andrá kvað við mikil spreng- ing, og uppi í fjöllunum fór að loga svo mikið bál, að öll höfnin og innsigl- ingin var uppljómuð. „Þetta var áreiðanlega radarstöðin,“ sagði gamli maðurinn. „Þeir sleppa engu. Það var leitt, að menn ykkar skyldu ekki verða á undan.“ „Já, gremjulegt!“ sagði foringinn þurrlega. Alltaf birtust fleiri og fleiri ítalir og afhentu vopn sín. Þeir virtust næstum fegnir að losna við þau. Á bryggjunni stóðu Bandaríkjamenn- irnir fimm — í útliti voru þeir eins og kaldar myndastyttur. En þeim var hreint ekki rótt innanbrjósts. Þeir voru alltaf með byssurnar reiðubúnar til að skjóta, og þeir renndu augunum rann- sakandi meðal ítalanna. Skuggar hús- anna við höfnina urðu langir og dimmir í birtunni frá brennandi byggingunum á klettinum. Foringinn sagði rólega: „Ég vildi óska að landgönguliðssveitirnar kæmu bráð- lega! Ef Þjóðverjarnir komast að því að við erum aðeins fimm, býð ég ekki mikið í líftóruna í okkur.“ Brátt heyrðu þeir í vélbát utan af sjónum •— foringinn brosti alls hugar feginn, — þetta voru landgönguliðarnir fjörutíu og þrír á leið að landi. „Látið þá fá ljós, stýrimaður,“ hrópaði hann, „svo þeir sjái, hvar þeir eiga að sigla inn.“ Þessir fáu menn af tundurspillinum gengu eirðarlausir fram og aftur á bryggjunni við höfn Ventotena, sem þeir höfðu hertekið næstum af tilviljun. Ekkert landgöngulið var komið, og þeir höfðu ekki séð tundurspillinn, sem lá úti á hafiu, gefa neitt merki. Mínút- urnar urðu að klukkustundum. Þeir mönnuðu myrka bæinn uppi á klettunum laumuskeyttum í huganum, og hvað eftir annað gullu við spreng- ingar frá Þjóðverjunum, sem nú voru hinum megin á eynni. Grænliðarnir höfðu bersýnilega enga hugmynd um hve margir Bandaríkjamenn væru á eynni — og þeir voru aðeins fimm —, en Bandaríkjamennirnir vissu um fjölda Þjóðverjanna — þeir voru nefnilega 87. Auðvitað var það Bandaríkjamönnun- um í hag, að þeir vissu ekki hvað þeir voru margir; því hefðu þeir vitað — nei, það var bezt að vera ekkert að velta því fyrir sér! Það er ekki vitað, hve langur tími leið, áður en mennirnir 43 komu loks í land. Það gat hafa verið hálftími, eða þrír tímar, — mönnum, sem gengu um á ströndinni og biðu, virtist það vera þrír dagar. En líklega hafa ekki liðið nema þrír stundarfjórðungar.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.