Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1961, Síða 5

Fálkinn - 15.02.1961, Síða 5
a'ð yfir 100.000 Ástralíubúar eru meðlimir í „Kaffiski- klúbbnum? Sjórinn er hlýr við strend- urnar enda er sund iðkað meir í Ástralíu en í flestum löndum öðrum. En þarna er líka mikið af fiski, svo að það hefur tíðkazt lengi að kafa eftir honum. Þeir, sem ekki nota súr- efni, eins og froskmennirnir, geta varla verið lengur en 20 sekúndur í kafi, en samt ná þeir oftast nær í fisk í hvert skipti sem þeir stinga sér. Oftast er fiskurinn 10—15 kíló, en við norðurströndina kemur það fyrir að 300 kílóa fiskar veiðast. Eru þeir skutl- aðir. ★ að þér getið sofið 8 tíma svefn á einum klukkutíma? Með sérstakri meðferð má láta klukkutíma svefn gefa eins mikla hvíld og átta tíma svefn undir venjulegum kringumstæðum. Fyrst er bakið nuddað góða stund og svo er maður látinn anda að sér hreinu súrefni gegnum grímu. Súrefnið fer sam- stundis út í blóðið og þá hreinsar það úrgangsefni lík- amans miklu fljótar en ella. Eftir 45 mínútna svefn er maðurinn útsofin. ★ Ungverjar hafa alltaf haldið því fram, að Attila Húnakonugur sé grafinn í Ungverjalandi, en hafa til þessa ekki haft beinar sann- anir fyrir því. Við uppgröft fannst nýlega beinagrind, sem jafnvel ef- unarsamir vísindamenn töldu líklegt að væri úr Attila gamla. Til vonar og vara voru beinin samt send til Moskvu og mannfræðistofn- unin þar beðin um að rann- saka þau. Eftir nokkra bið barst skeyti frá Moskva: — Jú, þetta er Attila. Hann hefur meðgengið! ★ ,,Ef við rekum hleypi- dóma okkar á dyr, munu þeir koma aftur inn um glugg- ana“. Friðrik mikli. ★ Spönsk hjón sóttu um skilnað. En vegna ýmislegs skyldleika og annars, varð erindi þeirra að fara til um- sagnar til ýmissa opinberra stofnana, áður en skilnaður- inn fengist. Loks eftir 26 ár kom tilkynning um; að skiln- aðurinn væri veittur. En þá hafði samkomulagið batnað svo milli hjónanna, m. a. fyr- ir það hve sammála þau voru um, að yfirvöldin væru örg- ustu slóðar, að þau voru orð- in alveg afhuga því að skilja. Og nú er beiðni þeirra um að fá að vera saman áfram / einhvers staðar á leiðinni um opinberu skrifstofurnar. Ef til vill fá þau svarið í gullbrúðkaupsgjöf, ef um gullbrúðkaup verður hægt að tala, þar sem þau hafa þá lifað í „hneykslanlegri sam- búð“ í áratugi! Það er víðar seinagangur hjá hinu opin- bera en hér á landi. ★ ★ Gárungarnir í Banda- ríkjunum segja, að Eisen- hower komi til með að sakna forsetastólsins. Hann var svo góð hvíld eftir allt golfið! — 1871 urðu sögufrægir sam- fundir tveggja hvítra manna suður í Ujiji í Afríku, milli Moero og Bangveolovatna. Þar hittust þeir skozki land- könnuðurinn David Living- stone og blaðamaðurinn Henry Morton Stanley. Liv- ingstone hafði starfað í Af- ríku sem trúboði en fór svo að kanna ókunna stigu, sem enginn hvítur maður hafði séð áður. Á leiðinni að suður- enda Tanganjikavatns hvarf hann algerlega. Árið 1868 komst hann í land svert- ingjahöfðingjans Kazemba, en rataði þar í miklar raunir. Ferðaútbúnaði hans var stol- ið og förunautar hans ýmist dóu eða struku. Eftir að bréf höfðu borizt frá honum 1869 hættu að berast fregnir af honum. En þá var það sem stórblaðið New York Herald gerði Stanley út í dauðaleit- ina. 1808 gerði tékkneski lista- maðurinn Degen eina af til- raunum sínum til að fljúga með tæki, sem hann hafði smíðað sjálfur. Hann lagði upp af aðaltorginu í Praha, klæddur bláu fötum en með rauða vængi. En flugtækið var loftbelgur, sem hann gat hækkað með því að fleygja út ballest. Og svo baðaði hann út vængjunum til þess að komast leiðar sinnar. — Það varð ekkert Atlantshafs- flug úr því.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.