Fálkinn - 15.02.1961, Síða 17
Hrímfaxi á flugi' yfir landslagi, sem
mætir auganu síðasta spölinn til
Hamborgar. Að neðan: Fílar í hin-
um fullkomna dýragarði Hagenbecks.
VIÐ SKILDUM við hina heppnu vinnendur í Bingó-spili Fálk-
ans, þar sem þeir voru ásamt Skarphéðni Árnasyni fulltrúa
Flugfélags íslands í Hamborg um borð í stórri ferju og skoð-
uðu hina frægu og stóru höfn borgarinnar.
Þrátt fyrir allan ys og þys stórborgarinnar, er ferðalöng-
unum hin dásamlega ferð að heiman með Hrímfaxa, Viscount-
skrúfuþotu Flugfélags íslands í fersku minni. Hérna á mynd-
inni er Hrímfaxi á flugi yfir landslagi, sem mætir auganu á
flugleiðinni síðasta spölinn til Hamborgar. Landið skiptist í
reiti, akrar mismunandi litir eftir því hverju bóndinn hefur
sáð. Smáþorp hér og þar, tré á víð og dreif og vegirnir eins og
dökkar rákir.
Eitt af því, sem ferðalangarnir ætluðu að skoða í Hamborg,
er hinn frægi og fullkomni dýragarður Hagenbecks. Vegna
þess að ferðalangarnir eru ekkert að flýta sér og ætla auk
þess að sjá sem mest af borginni, fara þeir með sporvagni,
en leiðin frá miðborginni er nokkuð löng, sporvagninn nemur
víða staðar og ferðin tekur þess vegna nokkurn tíma. Við
aðalhlið dýragarðsins eru risavaxin líkneski af ljónum og
frá hliðinu sjást strax nokkur dýranna. Ferðamennirnir kaupa
sér aðgöngumiða og vegna þess að þeir eru með myndavél
meðferðis, verða þeir að greiða hálft mark aukalega.
Við skiljum svo við þá hérna rétt fyrir innan hliðið, þar
sem þeir eru að skoða fílana og væntanlega hittum við þá
aftur í nEesta Fálka.
Tölur eru nú birtar í sjötta
sinn í hinu vinsæla Bingóspili
Fálkans. Spilinu lýkur eftir
tvær vikur. Spenningurinn eykst
stöðugt. Hver hlýtur hin glæsi-
legu verilaun: flugfar fyrir tvo
til Hamborgar með Flugfélaginu?