Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1961, Side 26

Fálkinn - 15.02.1961, Side 26
Framhaldssaga eftir Patricia Fenwick STJÖRNUHRAP — Þá það, sagði Hugh. Hann skrifaði Bill og Valerie á list- ann og Irenu létti. Þetta voru ekki nema smámunir, en hún hafði þó komið sínu fram. — Og svo er það drengurinn, sagði Coral tungumjúk. — Hvenær á samkvæmið að verða? — Hvenær væri þér hentugast? spurði Hugh. Hún blaðaði hægt í minniskverinu sínu og sagði svo: — Það er líklega nokkuð áskipað hjá mér — það er alltaf í svo mörg horn að líta um jólin. Sá nítjándi er víst eini dagurinn, sem ég er laus. 4 — Þá segjum við nítjánda, sagði hann. Skömmu síðar fór Coral og Irena símaði til Valerie. — Við ætlum að hafa gestaboð þann nítjánda, Valerie. — Viljið þið Bill ekki koma? — Jú, það viljum við sannarlega, sagði hún, en allt í einu tók hún sig á. — Nei, bíddu nú hæg. Við getum ekki komið þann nítjánda. Bill er boðinn í samkvæmi, sem við verðum að fara í, því miður. Nú dró niður í Irenu. — Kannske við gætum breytt degin- um. Ég hef ekki boðið neinum öðrum ennþá. Bíddu snöggvast, Valerie. Hún lagði lófann á talopið og sneri sér að Hugh. Þau geta ekki komið þennan dag„ Hugh. Getum við ekki valið annan dag? — Ég er hræddur um ekki, sagði hann. — Þú heyrðir að Coral sagði að þetta væri eini dagurinn, sem hún væri laus. — Já, en... Bill og Valerie geta ekki komið. — Það var leitt, sagði hann. — Segðu henni að við ætlum að halda annað gestaboð eftir jólin, og að þau verði að koma þá. Annað var ekki að gera. Það þýddi ekkert að fara að þrátta um þetta. Meðan hún hélt áfram að tala við Valerie, hugs- aði hún með sér, að þetta væri þó ekki Coral að kenna. Ekki gat hún vitað að Bill og Valerie væru forfölluð þetta kvöld. Coral brosti út í annað munnvikið á leiðinni heim. Það var svei mér heppilegt að hún hafði heyrt Valerie Wilson segja kunningjakonu sinni að hún og Bill væru boðin út þann nítjánda. Því minna, sem Irena hafði af Valerie að segja, því betra. Því minna, sem Irena var með fólki, sem gat veitt henni stuðning, því betra. Nema Fairburn, hugsaði Coral með sér. Hann gæti orðið að liði ef rétt væri farið með hann. Hún var ekki í vafa um að hún gæti haft ráð hans — og yfirleitt öll ráð — í hans hendi sér. Bezt að bjóða honum í samkvæm- ið, hugsaði Coral með sér. Hún stakk upp á þessu við Irenu, þegar þær hittust næst. Eiginlega gerði hún sér ferð þangað eingöngu til þess að stinga upp á þessu, þegar Hugh væri í skrifstofunni. Hún byrjaði með því að harma að Bill og Valerie skyldu ekki geta komið. — Mikið var það leiðinlegt, úr því að þig langaði til að þau kæmu. 10. VERÐLAUNA- KROSSGÁTA FÁLKANS FÁLKINN birtir verð- laimakrossgátu í hverju blaði. Hér birtist hin tíunda. Verðlaunin eru 100 krónur. Frestur til að skila lausnum er þrjár vikur. Lausn á gátu nr. 8 er á bls. 34. 2 Ul I 26 FÁLKINN Z L. < z iTAfl L£6R| TALS * 5KST AGDÐI SKmJö FEL 20. ALDAR MANIY ORYK|< MAW SNAFN SKST MAJ.M AFBRoT * VIDAR TEd. V/N- TEG- ONO * AF- HÝÐ- IR SOG' L)R öEyóoi Slö- CjORT UPP- HRÓP 0 N KINV. NAFN RIT- STJORA KLUK KA kOLL A05T0R LANDA 8 01 KVE-OJA 5TEINT. SKAL SKIPA 5MAO ÓARá GRISA KÓNCr OR TIND SKST ] t-EMSt RAÐ* OR OLHUS ELD~ 5TÆBI UND SKST TON- VERK GrOL ÞÖKK NUOCr A SKITA ÚT 5MA' ORB SKOLI END- iNGr * ÍÆR- 0 ÓMN U M V l-Ð - SKIP7A VIN- ANNA

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.