Fálkinn


Fálkinn - 05.07.1961, Qupperneq 12

Fálkinn - 05.07.1961, Qupperneq 12
Við skulum hefja þessa frásögn í sveit hér sunnanlands. Það er há- sumar og mildll annatimi. Það er nóg að gera lijá ungum vikapilti og liálf- gildings kaupamanni. En þrátt fyr- ir það að hann gangi þreyttur i livílu að kvöldi, gefur hann sér tíma til að lesa nokkrar hlaðsíður í merki- legri hók, er hann fékk lánaða hjá prestinum, sem hefur umsjá með bókasafni sveitarinnar. Bókin er undursamlega spennandi og persónur sögunnar og örlög þeirra orka sterkt á óheizlað ímyndunarafl- Nokkrar litl- ar svipmynd- ir frá borg borganna - PARÍS ið. — Sagan er i tveim, þrem bind- um og mjög löng og heitir: Leynd- ardómar Parísarborgar. Svo er það noklcrum árum siðar, að þessi vikapiltur er vaxinn úr grasi og heldur til þessarar borgar, sem svo margir þrá að komast í kynm við. Og sem liann ekur um úthverfi horgarinnar, í fyrsta sinn á erlendri grund, kemur þessi makalausa saga upp i kollinum á honum og hann finnur til mikillar ánægju — það er satt, París er merkilegri en aðr- ar borgir. ★ Bifreiðin ekur í átt til miðborgarinn- ar. Það er allt svo merkilegt, sem sést út um glugga bifreiðarinnar. Það er fremur fátæklegt í úthverfunum. Kaup- menn setja allar vörur sínar fram á gangstéttina, meira að segja heilar bú- slóðir. Á götuhornum standa konur og virðast hnakkrífast. ★ Svo ertu farinn að spranga um göt- urnar og andar að þér þessu sérkenni- lega lofti stórborgarinnar. París hefur sína sérstöku lykt. Það er kvöld, og þú gengur eftir breiðgötu — ekki mjög finni, og það er kaffistofa í öðru hverju húsi. Allir virðast vera á götunni, því þegar þú lítur upp og skoðar efri glugga húsanna, sérðu varla ljós í einum ein- asta glugga. Og þú sérð allskonar fólk, Parísarbúa og sæg af útlendingum úr öllum áttum. Og þú horfir ekki á neinn sérstakan, því allir eru jú meira og minna skrítnir í þínum augum. Það er ómögulegt að segja, að Parísar- búar láti hlutina afskiptalausa. Á kaffi- húsunum mala þeir um allt milli him- ins og jarðar. ★ Það er eitt dálítið sérkennilegt. París- arbúi kaupir sér blað að morgni og hann skilur það ekki við sig allan dag- inn. Eitt blað kostar sinn pening, og það er ástæðulaust að henda því fyrr en maður hefur lesið það upp til agna. Svo eru blöðin að koma í mörgum út- gáfum allan liðlangan daginn. Það eru sérstakir blaðasalar sem selja stórblöðin amerísku, og þeir eru merktir í bak og fyrir og skjótast fram og aftur um kaffihúsin á kvöldin. Maður með blað í hönd og langt brauð er einna mest einkennandi fyrir Parísarbúa. ★ Á fínustu breiðgötunum er mikil ljósa- dýrð og þar eru margir fínir staðir og á þeim margt fínt fólk. Á gangstétt- inni spranga pelsklæddar gleðikonur og bíða viðskiptavinar. Þær eru yfirleitt ungar, og sumar mjög fagrar. Og fas þeirra og göngulag er sem hjá tignum konum. En í þröngum götum á ófínni stöðum bera gleðikonurnar annan svip. Þær hafa kannski einhverntíma verið nógu fallegar og fínar til að vera sam- keppnisfærar á breiðgötunni. ★ Þú ert frá þessari saklausu eyju í norðri og er byrjar að morgna situr þú á venjulegu veitingahúsi og færð þér í svanginn. Inn kemur par, sem kemur þér undarlega fyrir sjónir, og er þú skoðar það betur, sérðu, að þetta eru tvær konur, en önnur er klædd karlmannsfötum og stuttklippt sem karl- maður. Parið sezt við borð, og ,,karl- maðurinn11 stjanar mjög við maka sinn, bugtar sig og beygir, tekur undir höku unnustunnar og horfir djúpt í augu hennar og talar með karlmannshreim einhver seiðmögnuð orð. Einstaka sinn- um bregður fyrir fölskum tón, en þá reynir unnustinn að tala enn dýpra á eftir. Þegar unnustinn hreyfir sig í sætinu, sjást brjóst hans bifast og bung- ast út í jakkann. Þú ert íslendingur og ert mjög hissa og veizt varla hvernig þú átt að haga þér í námunda við svo ástfangið par. ★ Við getum brugðið okkur í leigubíl. Leigubílstjórar í París eru margir sér- kennilegir og skemmtilegir. Þeir aka eins og vitlausir í þessari ógnar umferð, 12 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.