Fálkinn


Fálkinn - 05.07.1961, Blaðsíða 15

Fálkinn - 05.07.1961, Blaðsíða 15
vesalingarnir jafn átakanlega berir og hann vildu gjarnan gera slíkt hið sama. Varð því nýdauður farþegahópurinn einna líkastur mislitum taðköggli, þarna sem hann valt upp skipsbrúna. — Hún hefði nú mátt vera heldur minni um sig þessi nýja líkamsmynd, tautaði Jón gamli og hallaði sér móður að borðstokknum. Það var alveg óþarfa smámunasemi að miða hana svo ná- kvæmlega eftir þeirri gömlu að ekki vantaði eitt gramm uppá. Eru allir hættir? kallaði mikilúð- leg rödd. Allir með tölu! svaraði brytinn um leið og hann ritaði síðasta nafnið á skrána. Leysið þá landfestar! skipaði skip- stjórinn. Skal gert, skipherra! Skerandi hljóð eimflautunnar skar kvöldkyrrðina, vélarnar fóru á hreyf- ingu og skipið lagði úr höfn. Nú maður á að fylgjast með eitthvað útí óvissuna, sagði Jón gamli órólegur. Ætli það væri nú til ofmikils mælzt þó maður færi nú fram á að vita um næsta ákvörðunarstað. Og hann hélt upp á stjórnpall. Heyrið þér þarna. — Hvert á að halda? Skipstjórinn leit forvitnislega á Jón: Ég get nú tæplega gefið yður full- nægjandi svar við þeirri spurningu. Þér getáð þó altént gefið mér vís- bendingu um hvernig landslagi fram- tíðarstaðarins er háttað. — Ja hvort þar er hiti ellegar kuldi. Ekki fara allir til sama staðar, mælti skipherra hátíðlega. Sumir eignast sitt framtíðarheimili í myrkrd og kulda heimskautanæturinnar, aðrir meðal mýrafláka hitabeltisins. Aðeins hinir útvöldu öðlast vist undir skini sólarinn- ar í félagsskap ljósenglanna. Nú, það er annaðhvort of eða van, greip Jón fram í ókátur. Ég bdð forláts. — En er enginn viðkomustaður á leið yðar á þeirri breiddargráðu sem maður hefur nú hingað til vanist, án þess þó að hafna í félagsskap fólks — ja, sem maður á ekkert sameiginlegt með? Yður er ekki gefið vald til að velja og hafna maður minn, svaraði skip- herra alvörugefinn. Yður verður kom- ið fyrir í því umhverfi er hæfdr yðar þroskastigi. Jón sló útí aðra sálma: Tekur ferðin langan tíma? Hún er ekki tímabundin. Ekki fellur mér í geð slík óná- kvæmni, svaraðd hagsýnismaðurinn Jónt tíminn er verðmætur. Er þvílíkt hirðuleysi með vitund skipafélagsins? Hinir heilögu stjórnendur vdta allt. Allt? endurtók Jón og varð hugsi. Nú það er svo slæmt, varð Jóni að orði. En svo við víkjum nú aftur að skipferðinni. Hann komst ekki lengra. Hratt fóta- tak nálgaðist og einn farþeganna, lang- ur, mjósleginn karlmaður svo horaður að telja mátti rifin, gulur á hörund og með sótthitagljáa í augunum kom ask- vaðandi: Herra skipstjóri! hrópaði hann æstur og stillti sér upp frammi fyrir skip- herra. Ég hef nú ferðazt með skipum mest alla ævi mína. Íburðarmiklum farþega- skipum bæði stórum og smáum búnum fullkomnustu þægindum, einnig ryðg- uðum, sóðalegum kláfum, þar sem ekki var einu sinni mygluð brauðskorpa innanborðs, en skyrbjúg og innantökur hið daglega brauð! Samt sem áður get ég fullvissað yður um að ekkert þeirra fjölmörgu skipa, sem ég hafði mitt lífs- framfæri á, hefur þó nokkru sinni verið svo skítrúið allri menningu að ekki væru þar fimmtíu og tveir spilaræflar innanborðs! Fjárhættuspilarinn lamdi holdlausri kjúkunni í stýrdshúsið. Hvað hyggist þér gera við spil mað- ur minn? spurði skipherra. Náttúrlega slá í slag við hásetana á frívaktdnni! Ekkert er af farþegaræfi- unum að hafa hvort eð er. Þeir eru rún- ir öllum verðmætum og eiga ekki einu sinni fataleppana utan á sig fremur en ég! Þér græðið ekkert á hásetunum mað- ur minn, fullvissaði skipherra. Sál þeirra er orðin svo þroskuð að þeir sjá auðveldlega gegnum þau spil er þér hafið á hendi. Frh. á bls. 32 FALKINN 15

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.