Fálkinn


Fálkinn - 05.07.1961, Page 17

Fálkinn - 05.07.1961, Page 17
Krefjumst við of mikils af hjónabandinu? Þegar við giftum okkur, er það vegna þess að okkur langar til að fullnægja þrá okkar til að elska og vera elskuð; við vonumst eftir að geta myndað traust vináttusamþand; okkur langar til þess að finna til tryggðar og öryggis — að vera örugg og frjáls, svo að við verð- um þess fullkomlega vör, að við erum og getum verið við sjálf. Það er eink- um á þessum mannlegu grunnkenndum, sem hjónaþandið byggist, en ekki, eins og ýmsir nútíma sálfræðingar halda fram, á kynferðislegri gagnfullnægingu. Hvað þessu atriði viðvíkur, mun heil- brigt kynferðislíf næstum alltaf koma af sjálfu sér. Kynferðislíf milli hjóna er auðvitað líffræðileg hvöt, sem ekki má sniðganga, en andleg samstilling og skilningur ræð- ur hér miklu meiru — þetta fæ ég hvað eftir annað staðfest, er ég sem læknir hlusta á áhyggjufullar eiginkon- ur og eiginmenn, sem trúa mér fyrir vandamálum sínum út af hjónabandinu. Ef ekki er hlúð að tilfinningunni um andlega samstillingu og tryggð er brotin á bak aftur vegna vonbrigða, erfiðleika og leiðinda, — ja, þá er það undir hæl- inn lagt, hvernig fer um hina kynferðis- legu hlið hjónabandsins. Sá eiginmaður, sem er skeytingar- og tillitslaus gagnvart eiginkonu sinni, get- ur ekki vænzt þess að finna til um hyggju og skilnings af hennar hálfu. Og sú eiginkona, sem alltaf er önug í viðmóti og staglar stöðugt, verður um síðir að sætta sig við, að eiginmaður hennar missi bæði áhugann á henni og flestu í heimi hér. Það stoðar ekki að þjóta til læknisins til þess að fá hor- móntöflur eða til lögfræðingsins og tala um skilnað; menn ættu heldur að leggja það á sig að leita að betra skilningi — grafast fyrir um þær orsakir, sem liggja að baki hinum tillitslausari gjörðum eða kuldalegu viðmóti. í stuttu máli, reynið að komast að raun um, hvað það er, sem þér og maki yðar leitið að hvort hjá öðru, og gerið síðan í sameiningu allt, sem þér framast getið til þess að láta óskir yðar rætast. Nútíminn hefur lagt nýjar byrðar á hjónabandið. í fyrsta lagi eru þeir, sem við umgöngumst, orðnir miklu fleiri, og það orðið meira af tilviljun, hverjir það eru, heldur en á dögum afa okkar og ömmu. Við eigum fleiri kunningja, færri vini. Nýtízku samgöngutæki gera okkur hægara um vik að „líta inn“; í gamla daga, þegar það var erfiðara að ferðast, voru menn lengur hver hjá öðr- um og tengdust hver öðrum tryggari böndum. Þá skrifuðu menn löng og efnis- mikil bréf til vina sinna; nú senda menn bréfspjald eða síma. Fyrri vinátta und- angenginna ættliða stuðlaði að því, að veita mönnum skerf af þeirri tryggð og ánægju, sem við öll þörfnumst, og við enn væntum af hjónabandinu. Enn ein byrði hefur verið lögð á hjónabandið þar eð nútímaaðstæður veita okkur ekki tækifæri til þess að lifa atburðina í sameiningu í sama mæli og fyrr. Hugsið ykkur smábæi fyrri tíma, þar sem frændinn var vanur að koma heim til morgunverðar; stóri bróð- ir vann með honum á verkstæðinu eða í verzluninni; systirin hjálpaði mömmu við saumaskapinn, og á kvöldin var öll fjölskyldan samankomin við lampann í dagstofunni. Nú á tímum hafa hinir ýmsu meðlimir fjölskyldunnar fá tæki- færi til þess að vinna saman, og það er enn sjaldar, sem þeir eru saman í frístundum sínum. Vegna þessa skortir mörg nútímahjónabönd þá festu og sam- heldni, sem myndast við samlíf fjöl- skyldunnar. Allmikil byrði fyrir hjónabandið er hin breytta aðstaða konunnar í þjóðfé- laginu; frá því að vera lítilsmetin vera, er hún orðin sjálfstæður einstaklingur. Þessari þróun er ekki að fullu lokið enn, og sálfræðilega séð hefur konunni ekki verið það kleift að losa sig úr hin- um hefðbundnu viðjum. Aðeins fáar konur, sem hafa vinnu utan heimilis- ins, geta haldið hinu rétta jafnvægi á milli skyldunnar á vinnustaðum og skyldu sinnar við fjölskylduna. Þess vegna er hin gifta kona, sem sér fyrir sér sjálf, oft klofin vegna hinna stríð- andi aðstæðna í sjálfri sér, sem meta hana ýmist sem húsmóður eða fullkom- lega sjálfstæða veru. Þetta vandamál verður enn erfiðara vegna þess, að venjulega skilur eiginmaðurinn það ekki; hið innra með sér á hann bágt með að viðurkenna hið breytta hlut- skipti og starf konunnar. í stað þess að skilja konu sína og hjálpa henni, gerir hann vandamál oft enn erfiðara fyrir hana með því að vera skilnings- daufur, særður eða þá öfundarfullur. Þegar maður og kona ganga í hjóna- band, flytja þau með sér tvo ólíka per- sónuleika. Og jafnvel þótt þau hafi til að bera hinar sömu sálrænu þarfir, er ekki víst að þær tjái sig á sama hátt. Einn krefst ef til vill stöðugra ástar- votta í orði og gjörðum, sem öðrum finnst þreytandi; einn metur mikils ró- Jegar og þægilegar kvöldstundir á heim- Frh. á bls. 26 Kunnur bandarískur prófessor í uppeldis- fræði, Harvey Zor- baugh, skrifar athyglis- verða grein um hjóna- band í þjóðfélagi nútímans FALKINN 17

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.