Fálkinn - 05.07.1961, Qupperneq 22
/ l/ leóferd liímnci kanda
í gamla daga voru rauðar, hrjúfar
hendur eins óhjákvæmilegar og þær
voru fyrirgefanlegar. Þær voru aðals-
merki hinna duglegu húsmæðra, — og
þótt maður í dag þurfi langt frá því að
skammast sín vegna „vinnuhanda", er
hægt að komast hjá þeim. Nú fast alls
Texti undir mynd 1:
Þerrið hendurnar vel eftir hvem þvott.
Munið jafnframt að ýta naglaböndun-
um aftur.
Texti undir mynd 2:
Reynið að venja ykkur við að nota
gúmmíhanzka við óþrifaleg heimilisstörf.
Texti undir mynd 3:
Notið reglulega góðan handábur'ð eða
lotion, sem vemdar og mýkir húðina.
kyns verndandi smyrsl og tæki, svo að
jafnvel hið óþrifalegasta starf þarf ekki
að skilja eftir varanleg merki.
Heilbrigð húð hrindir að vissu marki
frá sér óhreinindum, en í þeim tilfell-
um, að hendurnar Þurfa að vera í miklu
vatnssulli, hverfur hin verndandi himna
og hendurnar verða sérstaklega mót-
tækilegar. Hirðið því hendur yðar eins
vel og hörund andlitsins.
Notið góða sápu, þegar hendurnar eru
þvegnar, skolið sápuna vel af og þerrið
hendurnar sérstaklega vel. Berið krem
eða lotion á hendurnar eftir hvern
handaþvott. Nýjustu handáburðirnir
innihalda „silicone“, efni, sem eykur
viðnám húðarinnar.
Auk þess fást glycerináburðir í lyfja-
verzlunum. Ágætir á þurrar og hrjúfar
hendur, — en eru aftur á móti dálítið
feitir og smitandi. En hér á við eins
og við önnur krem, að bezt er að prófa
sig áfram og nota svo það, sem manni
fellur bezt.
Við óhrein störf er ýmist hægt að
nota gúmmíhanzka eða sérstaka áburði,
sem eru eins og hanzkar (t. d. kero-
tex). En athugið, að fylgja nákvæmlega
leiðarvísi.
Sé húðin mjög þurr, er ágætt að
bera feitt krem á hendurnar á kvöldin
og sofa með bómullarhanzka. Einnig er
nudd gott fyrir hendurnar, byrja á fing-
urgómunum og nudda upp eftir, láta
olnboga hvíla á borði
Sé blóðrásin treg, svo að höndunum
hætti til að verða blárauðar eða fingr-
unum að „deyja“, er ágætt að fara í
víxlbað. Höndunum er dyfið til skiptis
ofan í kalt og heitt vatn, endað á köldu.
Hafi maður tilhneigingu til að svitna
á höndunum, er ágætt að þvo hendurn-
ar í ediksvatni eða álúnsvatni. 1 msk.
álún leyst upp í 1 1 af heitu vatni. Hönd-
unum haldið í þessu í 15 mínútur. End-
urtekið tvisvar á dag í viku.
Efni: Ólitað bast, plastbast, óltiað eða
í sterkum lit, til að sama saman með,
gróf nál með odd.
Aðferðin: Bleytið bastið og látið
það liggja í hreinu handklæði yfir nótt,
þá verður bastið auðvelt í meðförum.
Búið til fléttu úr bastinu, nál. 1 cm
breiða, hafið bastið tvöfalt í fléttunni,
sem þarf að vera rúmlega 5 m löng,
auk þess þarf fléttu í hankann, nál. 130
cm.
Fyrst er botninn saumaður. Myndið
hring úr fléttunni, byrjað frá miðju,
hver umferð vörpuð við þá á undan,
þar til botninn er nál. 8 cm í þvermál.
Saumið því næst fyrstu umferð hlið-
arinnar á seinustu umferð botnsins
þannig, að það myndist rísandi brún.
Bætið 9 umferðum við. Það er ágætt
að vefja og sauma utan um tóman
blómsturpott, svo að lagið verði rétt.
Festið bastendunum vel svo að ekki
rakni upp.
Setjið skrautkant á pottaplöntuhlífina,
með því að 2 umferðir af fléttu eru
saumaðar ofan á brúnina, eins og mynd-
in sýnir, en þess gætt að skilja eftir
ósaumað op á báðum hliðum, þar sem
hankafléttunni er stungið í gegnum.
Vefjið dálítið upp á hankaendann, saum-
ið vefjurnar vel saman og festið hauk-
inn vel í sjálfa hlífina.