Fálkinn - 05.07.1961, Page 24
TILVALINN TENGDAS
Þegar Johnson opnaði dyrnar og sá,
hver var í fylgd með dóttur hans, datt
honum fyrst í hug að toga Sally inn
og loka unga manninn úti, en Sallý
var á annarri skoðun.
— Góða kvöldið, pabbi! sagði hún.
— Fyrirgefðu, að ég vakti þig, en ég
gleymdi að taka húslykilinn með mér.
— Það gerir ekkert til! sagði faðir
hennar byrstur. — Það vill svo vel til,
að við erum ekki háttuð eða
kannski þú haldir að ég sofi í öllum
fötunum?
— Svona, svona, vertu nú ekki ergi-
legur.
— Bjóddu vini þínum góða nótt og
komdu með mér inn.
— Nei, hann kemur líka! Hann
bjargaði lífi mínu og ég er viss um,
að þig langar til að þakka honum fyr-
.ir það. Ég veit að mamma gerir það
að minnsta kosti, þó að þú viljir það
ekki.
Þetta hitti — beint í mark.
Johnson varð hátíðlegur og sagði:
—- Afsakið, herra ?
— Kallið mig bara Georg.
— Afsakið, Georg, viljið þér ekki
koma inn fyrir?
Hann gekk á undan þeim inn í setu-
stofuna, þar sem hann kynnti Georg
sem „einn af vinum Sallýar, sem hafði
víst bjargað lífi hennar“.
.— Af hverju segirðu það! sagði Sallý
æst. — Hann bjargaði lífi mínu! Við
hittumst á ballinu og svo biluðu ljósin
á vespunni minni. Geoi’g gerði við þau
fyrir mig. Annars er ég v.iss um, að
ég hefði ekið út af veginum. Þarna
sjáið þið!
Johnson lét fallast niður í hæginda-
stólinn við arininn og benti gesti ,sín-
um að setjast í sófann. Sallý settist á
sófabríkina, krosslagði fæturna og
sýndi meira af öðrum nælonsokknum
en góðu hófi gegndi. Móðir hennar tók
eftir því og sagði: — Sallý! Sallý færði
til fótinn og lét sem hún togaði kjól-
inn lengra niður.
Nú tók faðir hennar til máls. —
Það var fallegt af yður að bjarga lífi
Sallýar, herra .... hm . . . Georg.
Við erum yður ákaflega þakklát.
— Þetta vissi ég alltaf, sagði Sallý.
— Og þá ertu áreiðanlega til í að
bjóða Georg til miðdegisverðar á
morgun? Hann hefur ekkert sérstakt
fyrir stafni, og ég þarf ekki á sjúkra-
húsið fyrr en hinn daginn.
— Já, eigum við ekki að gera það?
Það gæti verið ljómandi gaman, sagði
frú Johnson.
-—■ Ágætt! Gætum við þá ekki farið
að hátta? Það er ekki af Því að mig langi
til að fleygja yður á dyr ...
Miðdegisverðurinn daginn eftir tókst
24
engan veginn vel, þó að Sallý og móð-
ir hennar legðu sig allar fram. Georg
var enginn snillingur í að halda uppi
samræðum, og Johnson, sem gat verið
léttur og kátur þegar því var að skipta,
kærði sig ekkert um að sýna á sér þessa
betri hlið.
Öllum létti, þegar staðið var upp frá
borðum, og Sallý bauðst til að þvo
upp, bæði sín vegna og Georgs. Án
minnstu umhugsunar fór frú Jöhnson
að hreyfa mótmælum, en sagði svo
skyndilega: — Jú, ef þið viljið það
endilega
— Auðvitað vilja þau það, sagði
Johnson. — Komdu, við skulum fara
inn í setustofuna og vita, hvort nokkuð
er í sjónvarpinu.
Uppþvotturinn tók heilan klukku-
tíma, og sá tími fór ekki til spillis hjá
Georg og Sallý. Þau færðust nær hvort
öðru meðan þau þvoðu upp. Og þegar
vinsæll dægurlagasöngvari í sjónvarp-
inu byrjaði að syngja svo hátt, að
heyrðist fram í eldhúsið, áður en John-
son gat lækkað — „Að eilífu ert þú
mín, að eilífu ert þú mín“ — studdi
Sallý olnbogunum á eldhúsborðið,
starði dreymandi augum ofan í upp-
þvottavatnið og andvarpaði: — Er líf-
ið ekki dásamlegt?
Georg hafði verið að hugsa um það
sama góða stund. Nú sagði hann djarf-
lega: — Ég veit ekki, hvort tilveran
er dásamleg. En þú ert það!
Sallý gaut augunum til hans og sagði
lágt: — Finnst þér það? Hvernig þá?
Georg ,stóð í sömu sporum og vafði
þvottaklútnum um úlnliðinn á sér af
einskærri feimni; það leit helzt út fyr-
ir að hann væri að binda gordíonshnút.
Sallý tók af honum klútinn og færði
sig alveg að honum, og rödd Georgs
skalf, þegar hann sagði:
— Heldurðu, að tvær manneskjur
geti verið skapaðar hvor handa ann-
arri?
— Forlögin — er það þau, sem þú
átt við?
— Þú getur kallað það því nafni.
Sjáðu til...... í gærkvöldi, þegar þú
. . fór ég að hugsa um að mig lang-
aði til að giftast þér!
— Var það?
— Já, og mig langar enn til þess.
Mér finnst þú dásamleg. Viltu giftast
mér?
— Auðvitað.
— Ó, Georg!
— Ó, Sallý!
Kossinn, sem á eftir fylgdi, var kann-
ski ekki fyrsta flokks, en hann var
mildur og fu-llur ástríðu, hann var gef-
inn og þeginn af hreinum hug og
hjarta, hamingjutákn þeirra beggja. Og
það var langur koss; en þau urðu þó
einhvern tíma að draga andann.
— Við verðum að segja mömmu og
pabba frá þessu, sagði Sallý. — Ó,
Georg, er það ekki dásamllegt? Nei, það
er alls ekki rétta orðið yfir það
Johnson-hjónin sátu í dagstofunni
og nutu þess að hlusta á uppáhalds-
hljómsveitina sína, þegar Sallý og
Georg komu þjótandi inn.
— Langar ykkur annars nokkuð til
að hlusta á þetta? sagði Sallý og skrúf-
aði fyrir sjónvarpið.
Johnson opnaði munninn til að segja
eitthvað, ásakandi, en mundi svo að
það var gestur í stofunni og sagði að-
eins: — Ef þér er mikið í mun að fá
svar, þá erum við að hlusta. Þetta
hefur náttúrlega átt að vera bráðsnjöll
spurning?
— Okkur Georg langar til að tala
við ykkur, sagði Sallý. — Um brúð-
kaupið okkar.
Johnson hafði næstum gleypt síga-
rettuna. Konan hans, sem var að
prjóna, missti niður fimm lykkjur, og
þau settust bæði upp með snöggu við-
bragði.
— Sagðirðu brúðkaup? hvíslaði John-
son. — Nú, þið þekkist varla ennþá!
Og frú Johnson sagði kjökrandi: —
Ykkur er ekki alvara?
Sallý settist á hægindastólbrík og
sagði : — Seztu, Georg.
— Já, setjist þér, Georg, endurtók
frú Johnson. -—• Ég býst við, að þér sé-
uð alveg eins furðu lostinn og við?
— Nei, það held ég ekki.
— Ekki það?
— Nei. Ég hef haft heilan dag til
að hugsa málið.
— Einmitt það, heilan dag? Það -er
enginn smáræðis tími. Nógu langur til
að ákveða framtíð yðar ... og Sallý-
ar.
— Sallý ákveður hana sjálf.
— Það er satt! Ef við gerum það
ekki fyrir hana . þér vitið að hún
hefur ekki náð lögaldri ennþá. Mætti
ég spyrja, hve gamall þér eruð?
— Ég er tuttugu og þriggja.
— Tuttugu og þriggja. Og þér hafið
góða og trygga framtíðaratvinnu? Þér
ætlið að sjá um að Sallý hafi nóg föt,
snyrtivörur og þess háttar? Og miða
í leikhús og bíó og aðrar lífsnauðsynj-
ar? Eða á hún kannski að hætta hjúkr-
unarmálinu og fá sér vinnu úti?
Georg roðnaði, en lét þetta að öðru
leyti ekki á sig fá.
— Ég er bifvélavirki, eins og þér
vitið, herra Johnson. Mér þótti þetta
leiðinlegt með bílinn yðar, en það var
ekki mér að kenna ....
Mæðgurnar litu hvor á aðra og sögðu
báðar í einu: — Hafið þið hitzt áður?
FALKINN