Fálkinn


Fálkinn - 05.07.1961, Side 30

Fálkinn - 05.07.1961, Side 30
Tengdasonur - Frh. af bls. 25 svo fjarri því. Guð má vita, hversu margir bíleigendur hafa þjáðst fyrir kæruleysi hans. Mér rennur kallt vatn milli skinns og hörunds í hvert skipti er ég hugsa um þessa útblásturspípu. Þar eð hvorki var andstaða né möguleiki á viðunandi lausn, datt sam- talið niður, og frú Johnson lét að lok- um falla nokkur huggunarorð: — Þeim liggur að minnsta kosti ekki á. Og ég er viss um, að þessi trúlofun fer út um þúfur; svona skyndiskot eru aldrei til langframa. Mannstu hvað það stóð lengi hjá okkur, Alfreð? En frú Johnson skjátlaðist. Þetta var ekki einnar nætur ást. og hún óx og glæddist, þrátt fyrir áhugaleysi for- eldranna .... eða kannski öllu heldur vegna þess. Þau létu ekkert bera á ó- ánægju sinni og lögðu engan stein í götu þeirra og þau buðu George meira að segja heim hvenær sem Sallý átti frídag. Johnson var mikill áhugamaður um bíla, og nú var eitthvað, sem skrölti i bílnum hans, og hann gat ekki fundið, hvaðan skröltið kom. svo að hann var alveg að ganga af göflunum. Loks sagði hann Georg frá þessu. Georg lyfti upp hlífinni og athugaði vélina. Hann hélt, að eitthvað væri athugavert við flaut- una, þó að það sæist ekki í fljótu bragði og bjóst við, að hann gæti gert við það. Hann sagðist skyldu koma eitt- hvert kvöldið, þegar hann væri búinn í vinnunni. Þegar á leið fór Georg að koma á hverju kvöldi, jafnvel þegar Sallý var ekki heima, til að líta á bílinn, og þeg- ar hann að lokum gat gert fullkomlega við útblásturspípuna, var Johnosn orð- inn tryggur bandamaður hans. — Sjáið þér til, herra Johnson, sagði Georg eitt kvöldið, þegar hann lá undir bílnum og athugaði hemlana, — ég kunni ekki við að þér hefðuð óþarfa útgjöld og keyptuð nýjá útblásturs- pípu, ef hægt væri að komast hjá því. Þess vegna reyndi ég fyrst að losa hana til að athuga, hvort hun gæti gengið lengra inn i hljóðdemparann, en þá kallaði verkstjórinn í mig og bað mig að fara í annað, svo að ég hafði engan tíma til að reyna bílinn yðar. Ég hélt, að verkstjórinn ætlaði að gera það .... nú, stígðu svolítið fastar á hemlana .... já, svona .... og þess vegna fór eins og fór. Með útblásturspípuna, á ég við. Ég sagði aldrei, að hún væri í lagi, eins og þér munið. Það var verkstjórinn, sem sagði það. Johnson blygðaðst sín. Svona auð- velt var það að dæma menn rangt! Ef Georg hefði ekki sagt honum frá þessu, hefði hann vantreyst honum alla sína ævi. 30 FÁLKINN Nú átti Georg bara eftir að vinna traust móðurinnar, og það yrði ekki erfitt — smá gullhamrar öðru hverju, þegar vel stæði á .... En einmitt þegar himinn ástarinnar var sem heiðastur, dró allt í einu upp dökka bliku. Foreldrar Sallýar höfðu um tíma grunað, að tilfinningar henn- ar væru að dofna, en sá grunur þeirra varð að vissu, þegar þau fengu bréf frá henni, þar sem hún sagðist ekki koma heim á næsta frídegi, því að það átti að vera ball í sjúkrahúsinu og einn af læknanemunum hafði boðið henni með sér. Hafði Georg orðið fyrir vonbrigðum lét hann að minnsta kosti ekki á neinu bera og sagði aðeins: — Jæja, þá höfum við helgina fyrir okkur við að koma bílnum í lag. Við þurfum víst að líta á blöndunginn og kveikjuna! — Já, ég er til í það — ef þú nennir því! sagði Johnson. Rétt fyrir hádegisverð á sunnudaginn kom Sallý skyndilega heim. Johnson og Georg höfðu þá verið á kafi í vél- inni næstum tvo klukkutíma, og þeir voru enn ekki búnir. Þeim þótti auð- vitað gaman að sjá hana, en óhjá- kvæmilega fannst þeim, að hún hefði ekki valið hentugasta tímann til heim- sóknar. Einkum af því, að hún kom ekki ein á vespunni sinni, heldur með ung- um manni í gömlum sportbíl. Hún var sýnilega dálítið hissa að sjá Georg, en lét sem ekkert væri og kynnti félaga sinn. — Þetta er herra Fraser. Hann er að læra læknisfræði á sjúkrahúsinu. Hann þurfti í smáferð og bauðst til að aka mér hingað. Fannst ykkur það ekki fallega boðið? Johnson leit á kámugar hendurnar og gafst upp á því að heilsa gestinum með handabandi. En Georg lét ekkert aftra sér Hann greip hönd Frasers og þrýsti hana lengi og fast, áður en hann baðst afsökunar á að hann skyldi ata hann svona út. Fraser, sem .sýndist mjög lítill við hilðina á Georg, svaraði tilgerðarlega — Það er allt í lagi, um leið og hann leitaði að einhverju til að þurrka sér á. — Við áttum ekkert von á þér heima, Sallý, sagði Georg. — Annars hefðum við ekki byrjað á að gera við bílinn. En ég get ekki hætt við hann núna. Hvenær þarftu aftur á sjúkrahúsið? — Ég þarf að vera komin þangað klukkan hálffjögur. En þú skalt ekki hafa neinar áhyggjur af því. Fraser ekur mér þangað . . er það ekki, Ian? Fraser sagðist skyldi gera það með glöðu geði, ef hann gæti komið þessum gamla bílskrjóð í gang. En nú ætlaði hann að stinga af og vita, hvort hann gæti ekki einhvers staðar fengið sér matarbita. Mál hans var enn tilgerðar- legt. Sallý sagði, að mamma sín væri al- veg á móti því að hann færi, og hún dró hann með sér inn. Johnson og Georg héldu áfram að vinna úti í bílskúrnum, en voru þögul- ir. Johnson ræksti sig tvisvar og opn- aði munninn til að segja eitthvað, en hætti við það. Þeim létti báðum mikið, þegar frú Johnson kom út og sagði, að miðdegisverðurinn væri til. Herra Farser var alveg töfrandi. og auðvitað átti Georg að borða með þeim! Georg þakkaði fyrir, en það væri synd að segja, að hann hefði notið mál- tíðarinnar. Hann hvarf eins og hinir í skuggann af mælsku og fyndni Fras- ers, sem virtist hafa yfir að ráða ó- þrjótandi uppsprettu af gamansögum. En allt tekur enda, og Johnson og Georg fóru aftur út í bílskúrinn til að ljúka viðgerðinni, meðan Ian hjálpaði Sallý og móður hennar að þvo upp. Og svo kom að því, að Sallý þurfti að fara. Hún kom út til að kveðja föð- ur sinn og Georg og skildi Ian eftir inni hjá móður sinni. Hún var hrífandi, þar sem hún stóð með ljósa hárð greitt fast upp undir rauðu húfuna og grannar línur líkamans urðu enn meira áber- andi í þröngri kápunni. En það hafði engin áhrif á Georg. Ekki einu sinni þegar hún gekk fast að honum og sagði óvænt í bænarrómi: — Viltu ekki aka mér á sjúkrahúsið, Georg, í bílnum hans pabba? Er hann ekki tilbúinn? — Hvað með þennan skottulækni þinn? sagði Georg. — O, hann! Ég tók hann með bara til að gera hann afbrýðissaman. Hann er á eftir öllum hjúkrunarkonunum. Þér er það ekki nema mátulegt, Georg. Það lítur helzt út fyrir að það séu pabbi og mamma, sem þú hefir áhuga fyrir, en ekki ég! — Hvers vegna hefurðu ekki sagt mér það? í stað þess að taka upp á þessum asnastrikum. — Ó, svo þér finnst það? — Já! — Allt í lagi! Fraser kom út í sömu svifum og sló botninn í þetta andríka samtal. — Bless, pabbi, sagði Sallý hvasst og klifr- aði upp í bílskrjóðinn. En garmurinn fór ekki í gang. Vélin hóstaði dálítið, en lét sig ekki, hvernig sem Ian streittist við. Hann varð að lokum að játa ósigur sinn. Sallý leit á úrið sitt og varir hennar fóru að sjálfa. — Ég verð að komast þangað klukk- an hálffögur, sagði hún. — Hvað á ég að gera? Það verður ógurlegt uppi- stand! Georg byrjaði að klæða sig úr sam- festingnum. — Ef þér þorið að trúa mér fyrir bílnum, Johnson, sagði hann, — þá skal ég aka Sallý á sjúkrahúsið .... ef hún þá vill! — Ó, já, Georg, sagði Sallý, — en flýttu þér! Allt er gott, sem endar vel. Og þann- ig fór um Sallý og Georg. Það var auð-

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.