Fálkinn


Fálkinn - 05.07.1961, Síða 32

Fálkinn - 05.07.1961, Síða 32
Himnaförin - Frh. af bls. 15 O-ég kippi mér nú ekki aldailis upp við svoleiðis smátitlingaskít, svaraði fjárhættuspilarinn fyrirlitlega, það er ekki nema það sem ég hef alltaf gert sjálfur fyrir utan önnur smá tötrabrögð sem ekki er á allra færi að hafa eftir, og glampa brá fyrir í augnatóftum meistarans. Þér ætlið þá kannski að lána mér spilin? Glettnisblik skein í augum skipherra og hann svaraði: Skilið frá mér til brytans að hann skuli ljá yður spil. Þúsund þakkir, kæri herra! Ja, hvort ég skal verða fljótur að galla mig upp! Og hinn þakkláti farþegi flýtti sér svo brott að brast í öllum liðamótum. Ekki var fjárhættuspilarinn fyrr horf- inn af sjónarsviðinu en annar farþegi, gömul kona, kom haltrandi og fór eins hratt yfir og hinir nýju, reynslulausu fætur gátu frekast orkað. Og nú kross- brá Jóni ríka: Og hver djöfullinn sjálfur! hrökk út úr honum. Er nú loksins ein af þess- um herjans niðursetukerlingum hrokk- in upp af! Hann hnippti í skipherrann: Ja, það vona ég, virðulegi skipráð- andi, að þér stímið með hana þessa beint niður í iður jarðar. — Skipherrann tók fálega undir beiðni Jóns. Hann bandaði honum frá sér og ávarpaði gamalmennið hlýlega: Hvað vilt þú, kona góð? Ég vildi nú fyrst spyrja yður að því, yndislegi, voldugi andi, hvort ég eigi yðar háæruverðugheitum að þakka þennan hvíta, áferðarslétta kropp, sem gömlu kerlingarskari heíur hlotnazt al- veg að óverðskulduðu? Nei, frú mín. Ég er aðeins einn af mörgum þjónum Herrans. Vilduð þér þá ekki. voldugi Guðs- þjónn, skila til hins himneska húsbónda yðar mínu innilegasta þakklæti, því ég, ein hinna minnstu smælingja, mun síður fá tækifæri til að tjá honum perónu- lega þakkir mínar. Þetta er nú meiri andskotans barlóm- urinn, sem kemur frá kerlingunni, hnussaði í Jóni. Alltaf er hún söm við sig. — Það skal ég vissulega gera, svaraði skipherra vinsamlega, svo framarlega að ég hitti hann á undan yður. Og hann hneigði sig fyrir gömlu konunni. En nú kom sá gamla auga á Jón og rak upp stór augu: Nei, — hvað sjá mín nýju augu! Eruð þetta þér sjálfur í eigin persónu, Jón ríki? Svo er víst, kerling, svaraði hann fýldur. Ja hérna! Og standið hér jafnslyppur óg snauður og ég, vesæll arminginn. En það er fjarri mér, hélt gamla konan áfram eftir andartaks hik, að kasta 32 FÁLKINN steini á yður, þér höfðuð þó allt að yfirgefa, en ég ekkert. Vil ég þess vegna óska yður alls góðs, og að þér fáið þann samastað, er hæfir svo mikilsvirtum manni. Og hún snéri aftur máli sínu til skipherra: Konunglegi skipráðandi, hóf hún máls, ég bið yður allra undirdánugast að fyrirgefa mér bannsetta forvitnina, sem rekur mig til að spyrjast fyrir um hvert förinni sé heitið mér viðvíkjandi? Lítið um öxl, kona góð svaraði skip- herra og tók ofan höfuðfatið, staður- inn blasir við. Gamla konan gerði svo og rak upp hrifningaróp. Út við sjóndeildarhringinn blasti við augum hennar undurfögur landsýn, sveipuð gullinni blámóðu morgunroðans. En þetta er sjálf paradís, sem Toppu- veslingurinn sér, sagði gamla hróið og vætti hönd skipherrans fagnaðartárum. Hvað hef ég, hin aumasta allra, unn- ið til að eiga í vændum þessa miklu dásemd? Þeirri spurningu svarar sá einn, er þarna ræður húsum og þekkir hjörtu mannanna, svaraði skipherra. Verið viðbúnar, kona góð, að stíga inn í paradís, því stutt verður viðstaðan. Gamla konan jós blessunarorðunum yfir skipherrann, fórnaði höndunum í þakkargjörð og flýtti sér niður á þilfar. Hafið allt tilbúið undir lendingu, kall- aði skipherra. Hvar er brytinn? Hér, herra. Brytinn kom hikandi í ljós og læddist til yfirmanns síns. Skipherrann rak upp stór augu. Hvað er að sjá yður, maður! Brytinn tvísteig vandræðalega. Já, stiklið ekki þarna eins og kýr með kálfsótt — hm — reynið að koma upp orði. Hvern sjálfan þremilinn -—- hum — hafið þér gert af fötunum yðar? Bið afsökunar herra, — tapaði þeim í spilum. Ætlið þér að halda fram þeirri firru, að maður með yðar sálarsýn hafi látið hlunnfara sig svo skammarlega? Höfðum ekki roð við honum, herra! Hann er gæddur þeim klókindum, sem við þekkjum ekki nú — því fór sem fór. Þér ætlið mér þó ekki að trúa, að hásetarnir -—? Bið afsökunar, herra, — standa líka eftir á nærbuxunum! O hvar eru þessi níu fífl — hm — þessir níu? Ég sé þá hvergi að störfum. Húka niðri í lest, herra. Ég var sá eini, sem aftur sneri. Kallið þá tafarlaust til starfa! Bryt- inn hélt áleiðis til að gegna skipun herra síns, en þá kallaði skipherrann: Andartak, bryti, — hvar er farþeg- inn annars? í svefnklefa stýrimannsins, herra, svaraði brytinn og hífði upp um sig nærskjólið sem hugðist fiýja blygðun- arfullan eiganda sinn. Og sjá! í stýrimannsklefanum sat hinn bý- ræfni spilari og lét greipar sópa. Ein- mitt þessa stundina var hann að ljúka við að vinna síðustu flíkina af stýri- manninum. Rétt á eftir sat hið nýrúna guðslamb aleitt og yfirgefið og reyndi í fáti miklu að hylja berar kríkurnar. Hvað í ósköpunum gerir mannfj — hm — blessaður maðurinn við öll föt- in? varð skipherra að orði. Er búinn að klæða alla farþegana upp á, herra, svaraði brytinn, að undan- skildri gömlu frúnni með fallegu fæt- urna, —en hún vildi ekki fyrir nokk- urn mun hylja sinn guðlega líkama. Það var mjög virðingarverð viðleitni af hans hálfu, anzaði skipherrann. Vera hans á eynni verður stytt til mikilla muna fyrir þá einstöku hugulsemi. Jæja, bryti, verið tilbúinn að afskrá þá far- þega, sem hér eiga að hverfa frá borði. Skal gert, herra! Skömmu síðar skreið skipið undan lygnum straumi upp að ströndinni, for- garði paradísar. Loftið ómaði af glað- legu fuglakvakf og litir yfirjarðneskrar náttúru runnu saman í eina órofa heild og mynduðu hvelfingu yfir þó nokkrum slatta af frelsuðum sálum, sem tipluðu fram og aftur íklæddar drifhvítum skykkjum og þefuðu af blómum milli þess sem þær gáðu til veðurs langþreytt- ar á tilbreytingarleysinu. Skipsfarþegum var nú smalað saman upp á Þiljur af brytanum, en sjálfur tók hann sér stöðu við innganginn og þreif ofan kaskeytið í lotningarskyni við höfuðengil, sem nú steig á skipsfjöl í fylgd tveggja englaþjóna. Erkiengill- inn tók sér stöðu framan við farþega- hópinn og lét rannsakandi augun hvarfla frá einum til annars, en farþegarnir fylgdust með, fullir eftirvæntingar. Loks tók engillinn ákvörðun og leiddi tvo þeirra úr hópnum, Tobbu gömlu og prestlegan náunga einn, með rykfallinn doðrant undir hendinni. Ósjálfrátt, án þess að gera sér nokkra grein fyrir því, létti hinum farþegunum. Velkominn sértu í sælu paradísar, þú samvizkusami þjónn, mælti engillinn há- tíðlega og blessaði yfir prestinn. Presturinn kyssti klæðafald engilsins, gagntekinn auðmýkt og þakklæti. Hann fann það nefnilega innra með sér, að þrátt fyrir allt var hann ekki með öllu syndlaus. Iionum hafði sem sé ávallt reynzt svo fjarska erfitt að trúa hinu heilaga orði, sem hann prédikaði svo dyggilega fyrir öðrum. í sannleika sagt — hafði hann aldrei trúað einum ein- asta bókstaf! Og hinn samvizusami guðsþjónn hélt hálf utan við sig og í þungum þönkum inn á milli trjánna. í paradísargarðinum. Baksvipur hans vekur hneyksliskennd hinna frómu íbúa. Þeim sýnist ekki bet- ur en að þessi nýkomna sál reiki i spori líkt og pöddufullur strætisróni.— Nú er ég alsæl, sagði Tobba gamla og staðnæmdist í miðri landgöngu- brúnni. Bara að blessaður drengurinn minn sé nú einhversstaðar hérna á næstu grösum, til að fagna henni gömlu móður sinni.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.