Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1961, Blaðsíða 10

Fálkinn - 26.07.1961, Blaðsíða 10
Þrír gripir úr eigu Matthíasar Jochumssonar, yzt til vinstri er bikarinn frá Einari Benediktssyni, sem minnst er á hér í greininni. ar gott var veður( segir Mar- teinn. — Hérna vantar okkur borð og stóla úr sefi, sem Stein- grímur Matthíasson gaf föð- ur sínum. Það er ýmislegt, sem okkur vantar enn. en vonandi bætist stöðugt í sáfn- dð smátt og smátt. Við yfirgefum Matthíasar- safn, höldum aftur út í sól- skinið og hugsum til þess, að ræktarsemi Akureyringa við skáld sín mætti verða mörg- um bæjum og byggðarlögum hollt eftirdæmi. SÍÐAR UM DAGINN erum við svo heppnir að hitta Gunnar Matthíasson á heimili Árna Bjarnasonar bóksala, en Gunnar var viðstaddur opnun Matthíasarsafns júní síðastliðinn. — Það sem dró mig hingað fyrst og fremst að þessu sinni var að vera viðstaddur þetta einstaka tækifæri, segir Gunnar í örstuttu spjalli, sem við áttum við hann. — Það stóð til að konan mín kæmi með mér hingað, en því miður gat ekki orðið af því. — Fannst yður ekki und- arlegt að koma í Matthíasar- safn? — Jú, það var það vissu- lega. Annars eru 51 ár síðan ég sá heimili okkar og þá kom ég heim eftir 11 ára fjarveru. — Hafið þér fundið til heimþrár vestra? — Að vissu leyti. En það er heimþrá, sem ekki er auð- Gunnar Matthíasson kom alla leið frá Los Angeles til þess að vera viðstaddur opnun Matthíasarsafns. velt að sinna. Þess ber að gæta, að öll mín fjölskylda er búsett þarna vestra. Á heim- ili mínu er ekki töluð annað en enska. Islenzkan er á för- um. En hugurinn er engu að síður alltaf heima. — Hvað álitið þér um fram- tíð íslenzkunnar og íslenzks þjóðernis í Vesturheimi? — Þetta deyr út. Unga fólkið glatar íslenzkunni. Það finnur ekki þörf hjá sér til að læra hana. Þegar fólk les ekki íslenzkar bækur og finnur ekki þörf hjá sér til að fylgj- ast með málefnum heima, þá er þetta allt fyrir bí. — Finnst yður ekki margt breytt hér heima? — Jú, breytingarnar eru ótrúlegar. Ég held áreiðan- Frh. á bls. 34. Þessi fjölskyldumynd hangir fyrir ofan skrifborðið í skrif- stofu séra Matthíasar. Á henni eru yzt til vinstri: Vigfús Einarsson skrifstofustj. og Herdís,, dóttir Matthíasar. Fyrir miðju er-mynd af Stein- grími Matthíassyni og Krist- ínu Thoroddsen. Myndin þar fyrir ofan er af sonum þeirra, Baldri og Braga. Yzt til hægri er loks mynd af Elínu Lax- dal, sem giftist Jóni Laxdal, tónskáldi, ásamt fóstursyni og einkadóttur.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.