Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1961, Qupperneq 24

Fálkinn - 26.07.1961, Qupperneq 24
— I : 9 (fagAÍHA CHH k VERZLUNARMANNAHELGI Þar sem verzlunarmannahelgin er nú á næstu grösum, langar mig til að gera hana að umtalsefni. Og ég ætla að beina máli mínu sérstaklega til unga fólksins, því þetta er fyrst og fremst þairra hátíðisdagur, sá næst stærsti á árinu, á eftir bindindisdeginum, 1. febrúar. í fyrra hélt æskan sérlega glæsilega upp á daginn, blandaði geði við hina óspilltu náttúru, þ.e. landsins, eins og t.d. berlega kom í ljós í út- varpi frá fagnaði ungmennanna í Þórs- mörk, en þar ilmaði lengi á eftir gubbu- lykt og þótti mörgum það skemmtileg nýbreytni, því alla jafnan er þar þessi líka þokkalegi skógarþefur. Já, nú eru aðalhátíðahöldin inni á Þórsmörk, en hér áður var Hreðavatn miðdepillinn. Það var þegar Fúsi vert var og hét, með veitingamennskuna að aðalstarfi en ferðalögin sem aukastarf. Þá hópaðist fólkið upp eftir og tjald- aði allt í kringum skálann hans, en hann flúði ekki af hólmi. Hann hafði ekki einu sinni lögregluvörð, en lét sér nægja hjálp nokkurra vel hraustra pilta. Fyrir svo sem 10 árum lagði ég þangað einu sinni leið mína í hópi nokkurra félaga, en við störfuðum við sumarvinnu þar ekki langt frá. Þá var maður ungur og æskuglaður og vissi ekki hvað víxill var. Maður tók niður glferaugun ef maður fór á dansleik, ef svo vel skyldi vilja til, að maður lenti í vangadansi. Rétt aðeins vorum við farnir að dreypa á glasi, en umgeng- umst tárið með stakri virðingu og vin- semd. Enda vissi enginn okkar, hvað timburmenn voru, og maður þurfti lít- ið að sofa um bjartar sumarnætur. Það er annað en nú, maður minn. Við fengum okkur saman eina flösku og vorum átta talsins, félagarnir. Ekki er beint hægt að segja, -að við höfum verið stórtækir. Það var líka alltaf vandamál, hve fljótt við fundum á okk- ur, og hve fljótt það rauk úr okkur aftur. Þegap drukkið var af stút, var sá fyrsti búinn að finna á sér áður en sá þriðji saup á, en þegar sá áttundi hafði fengið sinn sopa, var runnið af þeim fyrsta. Það var náttúrlega dansleikur hjá Fúsa strax á laugardagskvöldið. Sam- koma sú fór fram í svonefndu fjósi, sem stóð neðan við veginn, gegnt skál- anum sjálfum. Þar voru fá húsgögn, nema tveir stólar fyrir dragspilarann og trommarann. Engin var þar lýsing, og var almenn ánægja ríkjandi yfir því meðal dansgesta. Setti nú Fúsi tvo af skjaldsveinum sínum við dyrnar og seldu þeir gráðugt inn á 15 krónur. Þegar þeir höfðu selt inn eins mikið og inn komst, flúðu þeir yfir veginn og inn í skálann, en þar hafði vertinn lok- að að sér og sett hlera fyrir alla glugga á neðstu hæð. Niðri í fjósinu höfðu samkomugest- irnir nú allt á valdi sínu. Var þar svaml- að um gólfið í einni kös nokkurn tíma, eða þangað til að „hljómsveitin“ var hálfpartinn troðin undir. Komst hún við illan leik út og inn í vígið Fúsa. Þótti þá einhverjum heitt í salnum, en opnanlegir gluggar ónógir. Sá sendi því tæmda pytlu sína út um eitt glerið og varð þar af brot mikið, en úr því hófst upp frekari iðkun þessarar ágætu skemmtunar. Því miður voru allt of fá- ar rúður í húsinu því. Varð þá að leita fólki, en það verður að takast fram, að enginn var þá genginn til náða eins og kallað er, heldur dvaldi fólkið í tjöld- unum í öðrum erindum. Urðu þar oft hróp mikil og var Jesú oftlega beðinn aðstoðar og hjálpar. Ég hafði tekið af mér gleraugun, þegar ég hafði krækt mér í eina fagra gyðju til að stíga með dans, en svo illa vildi til í öllu myrkrinu, að hún víxl- aðist fyr.ir aðra, þá er ég sleppti af henni hendinni milli rælanna. Sú, er mér barst upp í hendur, var ekki nánd- ar nærri svo geðsleg sem sú fyrsta. Hún var líka svo aðgangshörð, að ég neydd- ist til að setja upp gleraugun. Ég reyndi hvað eftir annað að tína henni í myrkr- inu, en hún passaði nokk upp á mig. Það virtist helmingi meiri hætta á því, að maður tíndi fallegri stúlku heldur en ljótri. Og er það ekki einmitt svo- leiðis í sjálfu lífinu? Nú, jæja, þegar ég komst út úr fjós- inu, varð ég sannarlega feginn, að ég skyldi hafa sett upp gleraugun, því nú voru kýlingar í algleymi. Allir voru að lemja alla, alveg skipulagslaust. Mér skildist að vísu, að aðallega væru Ak- urnesingar að berja á Borgnesingum eins og fyrri daginn. En auðvitað þorði enginn að ráðast á mann með gleraugu. Síðla nætur, þegar allt var orðið ró- legt, kom Vigfús vert niður að fjósinu til að kanna skemmdirnar á húsi sínu. Ég og einn félaga minna hjálpuðum honum að telja brotnu rúðurnar. Hann tók okkur tali og spurði um hagi okk- ar. Að lokum bauð hann okkur að sofa það sem eftir var nætur, þar sem aug- sýnilegt væri, að við hefðum ekki smakkað áfengi. Fórum við með honum til vígisins og var vísað tál sængur i litlu herbergi, beint uppi yfir herbergi Vigfúsar. Rétt áður en ég sofnaði, heyrði ég mér til skelfingar, að félaginn var að byrja að gubba, en þarna var mjög hljóðbært og hætt við því, að Fúsi heyrði til okkar. En allt fór þó vel, þvi að ég aðstoðaði sjúklinginn við að gubba í annan skóinn sinn, en ég losaði hann svo um morguninn. Fúsi heldur því enn, að hann hafi fundið tvo allsgáða á þess- ari sögulegu helgi. Dagur Anns. 24 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.