Fálkinn


Fálkinn - 20.06.1962, Blaðsíða 7

Fálkinn - 20.06.1962, Blaðsíða 7
Næturráp. Svo vildi til fyrir nokkru, að ég þurfti að taka næturvakt um helgi. Fer heldur litlum sögum af vinn- unni, enda gekk hún sinn vana gang. Um morguninn þegar ég var búinn, langaði mig til að fá mér svolítið í gogginn, enda var mér ekki vanþörf á því, því að matar- laus hafði ég verið alla nótt- ina. En er ég fór að huga að sjoppunum, voru þær allar harðlokaðar. Mér finnst, að borgarstjórnin blessuð ætti að leyfa einum stað í miðbænum að hafa opið allan sólarhring- inn, svo að menn, sem vinna kannski vaktir, geti keypt sér eitthvað í sarpinn. Virðingarfyllst. Gummi. Svar: Það finnst okkur lílca, en þér heföuö átt aö koma þessu aö í dagblööunum fyrir borgar- stjórnarkosningarnar. Ef til vill heföi þá öllu fögru veriö lofaö, hvernig svo sem efndirnar heföu oröiö. Dráttur. --------Það er undarlegur ósiður sumra manna, að draga allt, sem þeir eiga að gera, þangað til í eindaga er komið. Ég nefni til dæmis andskotans happdrættin; þeim er stund- um frestað svo mánuðum skiptir. Ég man það, að ég keypti einu sinni happdrættis- miða hjá einhverri góðgerðar- stofnun. Það var um jólaleyt- ið og átti að draga á aðfanga- dag. Ég held, að það hafi ver- ið dregið á Þorláksmessu árið eftir.-------- K. Svar: Þér ættuð bara ekki að kaupa happdœttismiða fram- ar. Knattspyrna. — -—■ -— Hvers vegna kynn- ið þið ekki líka annarar deild- ar lið. Þar eru jú ágætir knattspyrnumenn og mér finnst, að þið ættuð að kynna þá líka.-------- Svar: Vissulega eru þar ágœtir knattspyrnumenn, en okkur finnst of mikið að kynna svo mörg félög á skömmum tíma. SÁPA HINNA LÍFSGLÖÐU • Dial sápa inniheldur undraefnið AT. 7. sem kemur í veg fyrir svitalykt. • Dial sápa inniheldur dýrustu og beztu ilmefni sem notuð eru í handsápur. • Ef öllum líkar vel við yður mun yður líka Dial. Heildsölub. Kristján Ó. Skagfjörö REYKJAVÍK. Nýja framhaldssagan, — -— -— Um leið og ég votta ykkur ánægju mína vegna hinnar ágætu framhaldssögu, sem var í blaðinu, vil ég segja, að mér líkar sú nýja alveg stórvel. Reyndar er hún ekki eins spennandi, en spennandi samt. — — — Húsmóðir. Svar: Hún mun verða enn meira spennandi, þegar á líður. Póstafgreiðsla á kvöldin. -----Mér finnst nú bara alveg óhæft, að póstafgreiðsl- an á pósthúsinu sé ekki opin á kvöldin. Þetta fyrirkomulag getur verið svo bagalegt, að ég á engin orð yfir það. Hvergi hægt að fá frímerki, því að sjálfsalinn í fordyri pósthússins er ónýtur og oft- ast nær engin frímerki úr honum að fá.-------- Svar: Viö eigum engin orö yfir þetta. Neftóbak. Heill og sæll, Fálki góður. — Mér finnst, að þú ættir á þessum lungnakrabbatímum að berjast fyrir því að menn taki í nefið. Ég veit ekkert hollara en góðan slurk af fínu korni í nef. Það hressir mann svo vel og endurnærir, og ekki skapast bölvaður krabbinn af því. í mínu ungdæmi var nef- tóbak og steinolía brúkuð jöfnum höndum sem læknis- lyf, þótti óbrigðult. Veit ég til dæmis um. einn frænda minn, sem bar þetta á kláða- sár, sem hann hafði á heldur óþægilegum stað, og læknað- ist kláðinn algjörlega. Veit ég gjörla um önnur dæmi slík. Tóbaksnefur. Svar: Ekki vitum við um sann- leiksgildi þessara orða, en bendum fólki á að reyna nef- tóbakið. FALKINN 7

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.