Fálkinn - 20.06.1962, Page 13
yfinu
spurningin getur til að mynda verið
þannig: — Hve mörg orð þekkið þið,
sem þýða það sama og sögnin að leiðast
eitthvað. Ef níu rétt svör berast áður
en hálf míúta er liðin, verða stigin
9X50, eða samtals 450.
Þriðja og síðasta spurningin gefur 900
stig fyrir hvert atriði. Þess vegna þarf
hún að vera reglulega erfið eins og til
dæmis þessi: —- Hve marga kvikmynda-
leikara þekkið þér, sem hafa nafn, er
byrjar á T?
Gerist það, að þátttakandi svarar
rangt eða endurtekur svar, sem þegar
hefur verið notað af félaga hans eða
honum sjálfum, tapa þeir félagar tím-
anum sem eftir er, og eru strax úr leik.
•a Þegar þeir fyrstu eru búnir, taka
næstu við og síðan koll af kolli. Leyfi-
legt er að skipta um prófessor við
hverja umferð, en hentugast er, að hafa
eihn til þess að halda reikning yfir allt
saman.
Tvöföldunarleikurinn hafði verið of
erfiður fyrir Pétur, sem er ekki nema
átta ára gamall og yngstur allra, og
það var því ekki nema eðlilegt, að hann
gæti ekki spjarað sig eins og hinir.
Þess vegna stakk Andrés frændi upp á
leik, þar sem hann gæti sýnt listir
sínar.
Kúarekstur.
Leikurinn hét kúarekstur. Valdir eru
tveir kúrekar, — að þessu sinni urðu
þau Pétur og Soffía frænka fyrir val-
inu. Þau fengu tómar mjólkurflöskur.
Þær áttu að tákna kýrnar. Auk þess
fengu þau kústa og skrúbba og nú reið
á, hve fljót þau voru að velta flöskun-
um á undan sér með aðstoð þessara
verkfæra. Áttu þau að velta þeim frá
svefnherberginu í gegnum stofuna og
út á svalirnar eftir ákveðinni leið:
Hringinn í kringum sófann, milli lamp-
ans og hægindastólsins og hringinn í
kringum ruggustólinn.
Þetta virtist ekki vera erfitt, — en
reynið það einu sinni. Soffía frænka
gafst upp, þegar hún komst að ruggu-
stólnum. Einmitt þá tók einhver eftir,
að klukkan var orðin yfir sex, svo að
það þurfti að fara að huga að kvöld-
matnum. Þannig leið þessi dagur án
þess að nokkur tæki eftir því.
Litla golfið.
Næsta dag fór sólin loks að skína aft-
ur. En það var of svalt til þess að fara
niður á ströndina, svo að fjölskyldan
hélt sig í námunda við bústaðinn.
— Ég vildi bara, að við gætum farið
í leiki eins og í gær, sagði Pétur. —
Þar sem við vorum í fyrra var hægt
að fara í bæinn og spila í litla golfinu.
— Við getum einnig spilað hér litla
golfið, sagði hinn lífsglaði Andrés
frændi og hvarf inn.í búst.aðinn. Pétur
var ekki seinn á sér að.elta hann.
Dálítilli stundu seinna komu þeir út
hlaðnir tómum niðursuðudósum, á-
samt könnu, mjólkurfötu, og lítilli leik-
fangafötu.
Með þessum fötum og dósum bjó
Andrés frændi til golfbrautina. Dósun-
um og fötunum var dritað hér og þar á
flötina í hæfilegri fjarlægð hvert frá
öðru. Til þess að allt ylti ekki um koll,
voru smásteinar lagðir upp við föturn-
ar og dósirnar.
Pétur kom með kúlu og kylfurnar
voru göngustafir og alls konar prik.
Það var krossað við þar sem byrja átti
og það var skrifað 1, 2 og 3 o. s. frv.
við dósirnar.
Þegar allt saman var tilbúið, lét
Andrés frændi leggja kúluna á flötina.
Ætlaði hann að reyna að hitta dós nr.
1. Hver leikmaður fékk að slá þrisvar
sinnum og aukalega einu sinni, þegar
hann kom kúlunni í „holu“. Þegar það
gerðist var kúlunni stillt upp rétt við
einhverja dósina og leikmaður miðaði
á þá næstu.
Pabbi Péturs komst fyrstur í gegn.
Hann hafði sérstaka hæfileika fyrir
þetta spil, sem annars var nokkuð örð-
ugt. En á meðan fjölskyldan hamaðist
í þessum leik, var Andrés frændi önn-
um kafinn við að undirbúa næsta leik.
„Leitin að fjársjóðnum.“
Fjársjóðurinn var ofurlítill súkku-
laðimoli í eldspýtustokk. Að vísu telj-
ast margir munir til fjársjóða, en hent-
ugast er að velja hlut, sem ekki tekur
of mikið rúm. Fjársjóðinn þarf nefni-
lega að geyma og geyma vel. Sá, sem
hefur hann í sinni vörzlu, dreifir síðan
miðum um allt, en þeir eiga að gefa
vísbendingu um, hvar fjársjóðinn er
að finna.
Þegar leikurinn byrjar, fær foringi
leiðangursins seðil, sem á stendur til
dæmis: — Farið að gamla eplatrénu.
Einhvers staðar í trénu er að finna
Framhald á bls. 38.
FALKIN
N 13